3.11.2007 | 02:41
Næstum því nágrannar mínir.
Ég var að leita mér að íbúð í NY fyrir nokkrum árum og skoðaði ég íbúðir út um allt og í mismunandi hlutum borgarinnar góðu. Ein íbúðin var í ekki svo fínu hverfi og mér leyst ekkert allt of vel á, þá sagði konan sem var að sína mér íbúðina að það væri ekkert um innbrot í þessari götu og enginn læti. Ég spurði hana hvernig það mætti vera, Þá sagði hún og benti mér á hurð sem að við gengum framhjá: Þetta er fundarstaður Vítisenglana. Já OK hehehe Ég sem sagt leigði ekki íbúðina
.
![]() |
Félögum í Vítisenglum neitað um landgöngu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
hvurslags fordómar eru þetta í þér að hafa ekki leigt íbúðina
Brynjar Jóhannsson, 3.11.2007 kl. 10:58
Já ég veit, þarna var ég búin að dæma fólkið áður en að ég "fékk" að kynnast þeim. Ég ætti að skammast mín
, ég sem er alltaf að berjast
fyrir þeim sem minna mega sín í samfélaginu.
Sporðdrekinn, 3.11.2007 kl. 18:21
Er þetta ekki allt sama "fjölskyldan"?
Sporðdrekinn, 5.11.2007 kl. 17:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.