Iron chef

 Það er þáttur í sjónvarpinu hérna sem að ég hélt að beri nafnið "Iron chef". Þarna fer virtur yfirkokkur og veitingahúsa eigandi í eldhúsið hjá öðrum veitingarhúsum, hann finnur margt misjafnt svona eins og fannst í Serendipity-3. PinchSick

Þessi maður tekur fólkið algerlega í gegn sem vinnur þarna og eigendur ef að þeir eru á staðnum. Þar sem að maðurinn minn vann sem kokkur og yfirkokkur í mööörg ár þá er ég alltaf opinn fyrir öllu kokkadæmi. Ég þurfti hinsvegar ekki að horfa á nema kynninguna á þætinum og eina auglýsingu til að gera mér grein fyrir því að ég færi sjálfsagt aldrei aftur út að borða ef að ég myndi horfa á þessa þætti, þvílíkur viðbjóður Sick.

Nú vill maðurinn minn fara með mig út að borða um helgina og ég er bara kominn með áhyggjur , hann spurði mig í gær hvað ég vildi borða, mmmhh "Mat" sagði ég undir blítt og brosandi "Já ok góð byrjun" var svarið sem að ég fékk frá hálf glottandi eiginmanni "svona ef að þú gætir verið aðeins nákvæmari þá væri það frábært".

Ég er að hugsa um að biðja hann bara um að fara hér út í skóg, veiða dádýr og elda það fyrir mig í eldhúsinu mínu W00tWhistling 


mbl.is Vinsælu veitingahúsi í New York lokað vegna nagdýra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég mæli eindregið með Lindinni á Laugarvatni! O-já  þar er sko hægt að fá einn besta eftirrétt í heimi (sem Lonley Planet hefur lýst yfir sem besta eftirrétt í heimi!!!) -  og hann var sko góður  Yndislegur staður sem leynir ótrúlega á sér. Frábær þjónusta og mega góður matur - ég er sko ekki að plata hér. Það er soldið skondið að akkúrat þegar ég var á þessum veitingastað (fyrir viku)  með vinkonum að borða þennan dýrindis eftirrétt var ein í hópnum sem vissi af þessum $25.000 eftirrétti með ætilegu gulli og tilheyrandi - nei, þá segi ég nú bara: íslenskt - já takk!!!  

kv. Kitta

Kitta (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 23:28

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Takk fyrir þetta Kitta, kannski að ég kíki á Lindina einhvertímann

Maðurinn minn er sá sem að gaf mér gull að borða í fyrsta skiptið, satt best að segja hélt ég að maðurinn væri ruglaður . Sem og hann sjálfsagt er þar sem að hann er enn með mér

Sporðdrekinn, 16.11.2007 kl. 16:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband