Loftgítar, Frank Zappa og unglingur

Ég er búin að vera með höfuðið ofan í sandi síðustu mánuði eða ár, erfitt að horfa upp á barnið breytast í ungling svo að sandurinn sem hefur verið í augunum á mér hefur alveg komið í veg fyrir að ég sjái nokkurn hlut.

Hann byrjaði á því að verða stærri en mamma sín og fá djúpa rödd. núna er vaskað upp með Frank Zappa. 

Ég var í þvottahúsinu eitt kvöldið og sonur minn var að vaska upp í eldhúsinu sem er beint fyrir ofan þvottahúsið. Allt í einu fer gólfið að titra og ég heyri í Frank og syni mínum syngja "We come from the landof the iceand snow,
from the midnight sun where the hot springs blow........"

Ég varð bara að fá að sjá þetta með eigin augum svo að ég fór upp í eldhús, þar tekur sonurinn á móti mér spilandi á loftgítar á fullu, syngjandi af fullum hálsi, þegar að hann sá mig þá breiddist þetta líka stóra bros út á andlitinu á honum og hann sagði "Finnst þér þetta ekki frábært? hann er að syngja um Ísland! where the hot springs blow....

Mig langaði mest til að knúsa drenginn og innramma svo þetta augnablik InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband