28.11.2007 | 15:21
Þetta virkar best
Ég sé það alla vega á mínum börnum og man eftir því sem krakki að ef að maður þarf að þrífa eftir sig þá gengur maður betur um. Enda bera krakkar jafnt og fullorðnir meiri virðingu fyrir þeim hlutum sem að þeir eiga þátt í að hugsa um, svo látum það vera refsingu fyrir þá sem að ganga illa um landið okkar að þrífa upp eftir sig.
Hér er lítil dæmi saga af mínum tveimur yngri afkvæmum: Ég lét þá sópa samann laufunum sem höfðu safnast samann á pallinum fyrir aftan hús. Þetta var "mikið" verk og voru þeir búnir að vera þarna úti í c. 2 tíma, þessum tíma var þó aðallega eitt í að spangóla á hunda hverfisins og ath hvort að þeir gætu staðið á handriðinu á öðrum fæti án þess að detta . Eftir þessa tvo tíma gat ég ekki setið á mér lengur, sú hugsun kom líka upp í huga mér að kannski hafði ég aldrei kennt þeim að vinna þetta verk og gæti ég því ekki ætlast til að þeir gerðu það bæði hratt og vel. Svo að ég fór út til þeirra til að sýna þeim hvernig á að vinna
Vá! hvað mamma gerir þetta hratt. segir sá eldri (9 ára)
Já og vel. segir yngra skottið (6 ára)
Í sameiningu kláruðum við að sópa samann öllum laufunum og setja þau í poka sem að strákarnir báru síðan niður á götu.
Þegar að þeir koma svo inn kalla ég á þá inn í eldhús og bendi þeim á að líta út um gluggann "hvernig finnst ykkur pallurinn líta út núna?"
Vá hvað hann er stór núna! og hreinn! Þeir voru yfir sig ánægðir með vel unnuð verk.
Ég sagði þeim að það væri best ef að þeir myndu gera þetta um hverja helgi þar til að öll laufin hefðu fallið, svona til að gera verkið auðveldara.
Þá vikuna var eldhús glugginn fyrsta stopp hjá þeim 9 ára þegar að hann kom niður á morgnanna, "hei mamma það hafa ekkert svo mörg lauf fallið í nót" kom fyrsta morgunninn og þann næsta en svo hafði komið reggnstormur þriðju nóttina og hafði því bæst ansi vel á pallinn morguninn eftir, þá kom "Æ nei" svo dæsti hann.
Ég hef ákveðið að láta krakkana þrífa baðherbergi sitt sjálf (undir leiðsögn til að byrja með), sá elsti byrjaði, hann var nú ekkert svaka kátur "Æ nei mamma" stundi greyið þegar að ég sagði honum að hann ætti að þrífa klósetið. En hann stóð sig eins og hetja og vann verk sitt vel.
Með þessu er ég að vona að þeir fari að ganga betur um Ég lifi í draumi
![]() |
Gert að hreinsa upp glerbrotin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Skemmileg sagan þín. Svona læra börnin að bera ábyrgð.
Brjánn Guðjónsson, 28.11.2007 kl. 16:43
Sporðdrekinn, 28.11.2007 kl. 22:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.