31.12.2007 | 20:26
Áramótakveðja og áramótahugsun.
Megi komandi ár vera þitt besta ár til þessa, megi komandi ár færa þér og þínum frið, hamingju og ró í hjarta.
Að vera hamingjusamur er eitthvað sem að allir þrá en ekki allir ná. Nú er árið á enda og ég hef verið að reyna að skilja hvernig mér líður og skellt fram spurningunni er ég hamingjusöm?
Ég ákvað að nota jólin til viðmiðunar, hvernig hefur mér liðið síðustu árin?
Ég man ekki lengra aftur en fjögur síðustu jól og þá þessi meðtalin, að hugsa aftur jól fyrir jól þá verður mér þyngra og þyngra fyrir brjóstinu. Sem sagt þessi jól eru mín bestu jól tilfinningalega séð af þessum fjórum og samt er ég ekki með allri fjölskyldunni minni, þetta eru td fyrstu árin á minni ævi sem að ég er ekki með mömmu og pabba. Samt eru þetta bestu jólin mín, ég held að það þýði að ég sé hamingjusöm, lífið er ekki dans á rósum og mér gengur misvel að fúnkera ef að hugur minn reikar aftur um eitt, tvö til þrjú ár en það verður minna og minna sárt nei nú lýg ég en ég hugsa sjaldnar og sjaldnar um þennan tíma og styttra og styttra í hvert sinn.
Ég held að ég sé hamingjusöm, er maður ekki hamingjusamur þegar að maður er ánægður með að vera þar sem að maður er? Mig langar að ná lengra í mörgu á ævinni en það þarf ekki að þýða að ég sé ekki hamingjusöm núna, mig langar í meira svo að ég bara vinn í því að ná mínum markmiðum.
Vertu velkomið, Ár 2008!
Athugasemdir
Takk fyrir falleg orð mín megin
Mér þykir leitt að það búi með þér minningar sem valda þér þyngslum fyrir hjartanu. Við því er víst lítið að gera. því miður. En oft er hægt að taka sára reynslu og nýta hana sjálfum sér til góðs.
Mig langar samt að segja þér að ég hef uppgötvað að hamingjan er andartök. Og mikilvægt er að geta lifað í núinu. Það hefur löngum reynst mér erfitt. Að vera sífellt að bíða eftir að eitthvað í lífinu verði öðruvísi er bara ávísun á leiða og óánægju.... (þegar ég eignast meiri pening, þegar ég verð mjórri/feitari, þegar ég hætti að reykja, þegar ég skipti um vinnu, þegar ég kaupi stærra hús.....)
Þetta er allavega niðurstaða sem ég hef komist að eftir 39 ár
Jóna Á. Gísladóttir, 2.1.2008 kl. 23:23
Þakka þér Jóna, þú gerir manni auðvelt með að finna falleg orð til þín
Takk fyrir hvatninguna, þetta er einmitt það sem að ég er að reyna að gera, vera og lifa hér og nú. Ég held einmitt að þess vegna hafi þessi jól verið betri en ég bjóst við, ég á bara tvö ár í 39 hver veit kannski verð ég búin að ná masternum í þessu þá
Sporðdrekinn, 3.1.2008 kl. 04:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.