4.1.2008 | 04:15
Átta vikna gamalt barn hjá dagmömmu
Ég er kannski smá ósanngjörn og jafnvel smá vond en ég bara skil þetta ekki .
Konan hér hinumegin við götuna hjá mér rekur daggæslu, í vikunni byrjaði barn hjá henni, þetta barn er núna með pláss í níu tíma á dag í daggæslu. Þið eruð sjálfsagt að hugsa að það sé ekkert óalgengur tími fyrir barn í daggæslu, við þurfum jú öll að vinna fyrir okkur.
En ein eins og kemur fram hér ofar þá er barnið átta vikna, það var sex vikna þegar að móðirin kom og vildi fá pláss fyrir það... daginn eftir viðtalið takk fyrir. En ekkert losnaði fyrr en núna barnið þá orðið átta vikna. Ó ég gæti svo skilið þetta ef að konan ætti í fjárhagslegum erfiðleikum og bara yrði að fara til vinnu, en svona er þetta:
Móðirin vinnur heima, faðirinn vinnur að hluta til heima og hluta til að utan heimilis. Það vantar ekki peninga af þeim er nóg.
Barnið er ættleit og því er örugglega búið að bíða lengi eftir komu þess, ég meina þegar að fólk ákveður að ættleiða þá er það búið að far í allan pakkann og þetta er loka lausn til að eignast barn, eða hvað.
Kannski er ég vond og kannski er ég skilningslaus, en mér finnst þetta normal og mér finnst barnið eiga að fá að kúra í faðmi foreldra sinna en ekki hjá ókunnugum fyrstu mánuði ævinnar.
Athugasemdir
Eitthvað mikið er að.
HólmdísHjartardóttir (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 04:27
Sammála.... Hvað er að fólki?
Hélt alltaf að þeir foreldrar sem ættleiddu væru ástríkari. Við vitum öll, að stundum unga óábyrgasta fólkið út börnum í massasvís.
En það læra börnin sem fyrir þeim er haft....
Fishandchips, 4.1.2008 kl. 05:08
Furðulegt, er enginn til að fylgjast með ?
Jónína Dúadóttir, 4.1.2008 kl. 07:07
Ja hérna
ég er líka alveg standandi hissa á að einhver dagmamma sé tilbúin að bera ábyrgð á svo ungu barni.
ég er sammála því að maður telur alltaf að fólk sem ættleiðir hljóti að verða fyrirmyndarforeldrar í alla staði en það er víst ekki alveg þannig. Ég er samt að spá í hvort þetta dæmi sem þú nefnir geti verið eitthvað af heilsufarsástæðum eða fjölskyldumálum. T.d. ef móðirin er einkabarn og þarf að hugsa um veikan ættingja eða eitthvað slíkt.... það er svo margt sem getur búið að baki og maður má ekki vera of fljótur að dæma.
Jóna Á. Gísladóttir, 4.1.2008 kl. 09:28
Fishandships: Ég hélt það líka að foreldrar sem ættleiddu væru frekar svona ýktir í að gera allt 100%
Jónína: Fylgjast með? Jú það er fylgst með dagmömmu hér jafn og heima, en það eru engin lög um það hversu gömul börnin verða að vera áður en að þau byrja hjá dagmömmu. Ég er reyndar ekkert viss um að það séu nein lög um það heima heldur.
Jóna: Dagmamman er enn með aðlögunartíma og hún er búin að segja við mömmuna að hún vilji ekki vera með barnið allan daginn frá og með næstu viku, heldur sé hún tilbúin til að vera með það fyrir hádegi því að þá sé hún bara með 2 önnur börn og geti því annað því betur.
Það er svo rétt hjá þér að maður má ekki vera of fljótur að dæma. Eins og ég sagði ofar þá finnst mér ég vera smá ósanngjörn og vond að hugsa svona og er það að því að ég þekki ekki alla söguna en mömmu hjartað mitt bara kramdist og ég varð svo hissa.
Ég vona bara að þetta barn fái mikla ath og ást frá foreldrunum þegar að það er heima.
Sporðdrekinn, 4.1.2008 kl. 14:23
Nú er mér léttar um hjartað, mamman hefur ákveðið að prufa "nanny". Vonandi gengur það vel, því þó að það sé ekki mamman þá er það alla vegana einhver sem er heima hjá barninu og er bara að annast það og hefur því meiri tíma til að knúsast og gæla við barnið
Sporðdrekinn, 4.1.2008 kl. 22:45
Jæja, það er gott að heyra. Sennilega þekkir þú dagmömmuna, er það ekki? Ég sé að þú talar um ''hér'' og ''heima''. Ertu þá í útttttlöndum?
Jóna Á. Gísladóttir, 5.1.2008 kl. 10:54
Já ég þekki dagmömmuna vel, börnin okkar eru óaðskiljanleg
. Já, ég er í USA eins og er.
Sporðdrekinn, 5.1.2008 kl. 21:37
Hvað er fæðingarorlof langt í USA?? Hreinlega veit ekki hvenær tíðkast að konur fara að vinn aftur eftir fæðingu þar en ehv minnir mig að það sé ótrúlega fljótt
Manni finnst samt að 8 vikna gamalt barn eigi bara að vera heima hjá foreldrunum og að þeir sem eru að ættleiða ættu að vera búnir að gera ráð fyrir því fjárhagslega að geta verið mun lengur hjá barninu.
Dísa Dóra, 8.1.2008 kl. 19:52
Ég verð nú bara að viðurkenna að ég veit ekki hvernig það er í dag, það urðu einhverjar breytingar á síðasta ári að ég held. En ég veit að fæðingarorlofið var þrír mánuðir fyrir c. 13 árum en ég er ekki einu sinni viss um að konur hafi verið á launum þessa þrjá mánuði. Ég þarf að kinna mér þetta betur.
Já en sjáðu til í þessu tilviki þá vinnur mamman heima og pabbinn 50% heima, það fer ekki mikill tími í að smella pela í munn, ropa og skipta á þessum krílum þegar að þau eru 8 vikna. Það eru heldur enginn peninga vandræði þarna á ferð, eða virtist ekki vera af því sem að konan sagði. Ég veit ekki hver ástæðan fyrir því er að þetta litla barn þarf pössun allan daginn en ég er nokkuð viss um að það er betra fyrir það að vera með nanny en dagmömmu, þó svo að mamman og pabbinn séu alltaf best, þar að ef að allt er ok heima fyrir.
Sporðdrekinn, 8.1.2008 kl. 22:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.