12.1.2008 | 21:26
Góð hugmynd..
hjá honum Pétri Ármannssyni.
Við verðum að passa upp á sögu okkar og húsin hafa fullt að segja.
Ég fer alltaf með erlenda gesti í Árbæjarsafnið og hefur enginn kvartað hingað til heldur finnst öllum gaman að sjá hvernig "við" bjuggum. Afi minn sem að ég hitti aldrei átti heima í einu af þessum húsum og það gefur mér alltaf góða tilfinningu í hjartað þegar að ég fer inn í það hús. Já, já ég veit að ansi margir hafa farið þar um síðan að hann flutti þaðan, en mér finnst ég einhvern vegin vera nær honum.
Sagan okkar sem Íslendingar liggur í byggingum, ljóðum, bókum, hlutum og myndum, pössum upp á þetta fyrir afkomendur okkar.
![]() |
Vill nota ágóða af sölu uppgerðra húsa til viðhalds öðrum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Einmitt þess vegna eiga þessi hús heima á safni.
Halla Rut , 13.1.2008 kl. 00:27
Mér finnst nú gömlu húsin í miðbænum gera hann af því sem að hann er
, það væri akkúrat ekkert rómó að rölta niðri í bæ og vera umvafinn núbyggingum á alla kannta 
Sporðdrekinn, 13.1.2008 kl. 01:06
Já hugmynd Péturs er góð. En kannske er hægt að gera hér eins og í Feneyjum. Stórfyrirtæki taka gamlar byggingar í fóstur og gera þau upp. Allir græða á þessu og fyrirtækin fá velvild og góða auglýsingu
Hólmdís Hjartardóttir, 13.1.2008 kl. 17:04
Það er kannski ekkert svo galin hugmynd Hólmdís.
Sporðdrekinn, 13.1.2008 kl. 17:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.