15.1.2008 | 01:25
Þessar Guðmundsdætur eru allar eins
Ég vil byrja á að óska Björk til hamingju með þessa tilnefningu, ég vona að hún fái þessi verðlaun.
Svo er hérna smá saga af því sem kom fyrir mig fyrir nokkrum árum.
Þegar að ég bjó í NY fékk ég eitt sinn sent þykkt og mikið umslag í pósti merkt "Guðmundsdóttir", hmm , hvað er nú þetta?
Ég varð nú ekkert smá hissa þegar að ég opnaði umslagið og fann inn í því langan spurningarlysta, what the...! Því meira sem að ég las því skýrara varð það fyrir mér að þetta bréf var ekki ætlað mér heldur henni Björk Guðmundsdóttir. Það fyndna var að mér var farið að líða eins og perra að lesa annarra manna póst
Ég vildi nú ekki að þeir sem að sendu bréfið héldu að Björk væri einhver dóni sem að myndi ekki svara þeim svo að ég hringdi í símanúmer sem að ég fann á einu blaðanna. Ég er nefnilega alveg einstaklega vel uppalin og kurteis
Þegar að ég útskýrði fyrir manneskjunni í símanum að ég væri ekki Björk þá fékk ég: "Ó ertu ekki Guðmundsdóttir?"
"Jú jú, það er ég en ég heiti samt ekki Björk."
"Þú ert líka frá Íslandi er það ekki?"
"Jú."
"Getur þú þá ekki komið þessu bréfi til Bjarkar fyrir okkur?"
"Aaa nei... því miður." Ég var ekki alveg að skilja hvað það kæmi málinu við að ég væri frá Íslandi þar sem að ég var búsett í NY.
"hva, veistu ekki hvar Björk á heima, þið eruð skildar er það ekki"?!
Manneskjan á hinum endanum var frekjuleg og það var farið að fjúka smá í mig, ég var jú að vera eins kurteis og ég gat. "Nei við erum ekki skyldar og ég þekki ekki Björk"
"Nú ok, en þú getur sent þetta til hennar er það ekki"?!
"NEI, ég veit ekki hvar hún á heima, ég held reyndar að hún búi í London, finndu sjálfur út hvar hún býr og sendu henni nýjan lista."
Þögn......
"Það var ekkert"! sagði ég og skellti á.
![]() |
Björk tilnefnd til Brit-verðlauna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
híhí, við erum bara eitt lítið smáþorp þar sem allir eru skyldir í augunum á útlendingum, kannast aðeins við það síðan ég bjó í Bretlandi
Huld S. Ringsted, 15.1.2008 kl. 21:25
Ég fékk eitt svona svipað frá nágranna konu minni, það var einhvernvegin svona:
"Ég var að horfa á sjónvarpið í gær og þar var viðtal við mann frá Íslandi..... hann bar sama nafn og hann pabbi þinn....." Hún horfði á mig stórum augum.
"Ok sniðugt"
"Hann var meira að segja með svona svipað andlitsfall og hann pabbi þinn, bara aðeins grennri...."
"Já á.." Ég var ekki alveg viss hvert hún var að fara og þá kom.
"Er nafnið hans kannski algengt á Íslandi?"
Ég sprakk úr hlátri "já það eru nokkrir sem bera nafnið Guðmundur á Íslandi"
Sporðdrekinn, 15.1.2008 kl. 21:44
ég á eina Guðmundsdóttur líka - ætti kannski að fá hana til að svara spurningunum. Verður mjög áhugavert þegar skottið kann ekki að segja já en kann vel að segja nei nei
Dísa Dóra, 16.1.2008 kl. 22:16
Sporðdrekinn, 17.1.2008 kl. 16:01
Hvusskonar leti er þetta í þér manneskja - gastu ekki komið sendingunni á hana frænku þína? Eða nöfnu. Eða hvað á að kalla þetta. Mér heyrðist nú reyndar á pabba hennar, honum Guðmundi, að stúlkan byggi nú um stundir í Nýju Jórvík, hvað sem var þá er þú fékkst sendingu þessa.
Markús frá Djúpalæk, 17.1.2008 kl. 18:01
Sporðdrekinn, 17.1.2008 kl. 19:09
ja hérna hér. Bilað lið.
Bretinn minn sem hefur búið hér í 20 ár á þetta til ennþá: að vilja klína fólki í sömu ætt bara út af því að það er bæði Eggerts-börn eða Davíðar-börn eða eitthvað slíkt.
Jóna Á. Gísladóttir, 19.1.2008 kl. 17:34
hahaha
það er erfitt að kenna göm... ö.. um.. hérna..
útlenskum hundi að sitja
Sporðdrekinn, 19.1.2008 kl. 19:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.