11.2.2008 | 02:16
"Forgive quickly" Taka tvö
Ég setti sögu hér inn í gær og fékk ábendingu frá Zordisi og Loathor við þá færslu mína, ég sagðist ætla að gera þetta öðruvísi, svo hér kemur það:
Í gærkveldi las ég stutta sögu, hún er um konu og samband hennar við föður hennar. Þetta var erfitt samband og það var farið að taka toll af hjónabandi konunnar, svo hún bað um hjálp frá guði. Konan fékk hjálpina og allt varð gott en sagana endar þó á því að faðirinn deyr (eins og við öll). Það var í raun ekki sagan sjálf sem að vakti hjá mér löngun til að deila þessu með ykkur heldur var það texti sem búið var að bæta við í endann.
Ég vill taka það fram að ég á ekkert sameiginlegt með konunni í sögunni.
Hér kemur textinn og það sem að ég skrifaði við hann í gær:
"Life is too short for drama & petty things, so laugh hard, love truly and forgive quickly.
Live While You Are Alive.
Tell the people you love that you love them, at every opportunity. Forgive now those who made you cry. You might not get a second time.
Þetta er það sem stendur upp úr fyrir mér "forgive quickly".
Ég á mjög erfitt með að fyrirgefa ef að á mér eða mínum er brotið, jafnvel þó að mig langi til og ég reyni að fyrirgefa.
Ég bið Guð oft um að hjálpa mér að fyrirgefa, að taka reiðina úr hjarta mínu og huga. Mig langar til að gleyma og fyrirgefa, kannski einn daginn vakna ég frjáls.
Kannski get ég fyrirgefið."
Mig langar til að bæta við þetta í kvöld svona þar sem að ég er búin að spá meira í þessu, eða mér.
Ég veit að ég get fyrirgefið, ég hef fyrirgefið hluti sem að eru það stórir að fólk hefur sagt við mig að það gæti aldrei fyrirgefið neinum sem að gerði þeim slíkt.
En samt er mér illt í hjartanu þegar að ég hugsa um það sem mér var gert í hlut. Ég skil hvað gerðist og ég veit af hverju, en samt er mér illt.
Það er þessi sársauki sem að ég vill að fari, ég held að þó að mér finnist ég skilja hvað gerðist og að ég sé búin að fyrirgefa þá í raun er það ekki svo. Því bið ég um aðstoð og ég vona að mér berist hún, þá verð ég frjáls.
Ætli það sé hægt að fyrirgefa allt ef að mann langar til þess?
Athugasemdir
það getur verið erfitt að fyrirgefa, en er það reindar ekki lengur eins erfitt og áður, fyrirgefning er skilningur, að skilja er að opna vitund sína fyrir því sem er, og hafa pláss fyrir og vita að þú ert eitt með hinum, hluti af öllu.
Bless til þín á mánudagsmorgni
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.2.2008 kl. 07:37
Nú skil ég orðin þín og þann skilning sem þú settir í orðin. Ætli við verðum ekki að setja okkur á hærra plan til að komast framhjá sársaukanum en það er ósköp eðlilegt að finna fyrir sárum, tárum (kanski ekki tár en rímaði svo smart) þegar örin hvíla á sálinni.
Smá saman hverfur þessi tilfinning ef við blessum hana og sendum kærleik til þeirra er ullu okkur þessari tilfinningu.
Kærleikskveðja til þín!
www.zordis.com, 11.2.2008 kl. 07:59
ullu / ollu .... sennilega á að nota ollu
www.zordis.com, 11.2.2008 kl. 08:00
Takk fyrir orðin ykkar og kveðjurnar stelpur.
Sporðdrekinn, 11.2.2008 kl. 13:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.