14.2.2008 | 14:21
Reglur eru reglur
Ég er ánægð með ákvörðun ráðamanna lestakerfisins í London, ekki það að ég hafi neitt á móti þessu málverki. Það er nefnilega svo auðvelt að missa sig alveg í að beygja reglurnar og svo á endanum brotna þær bara.
Það er allt of mikið um nekt í fjölmiðlum, nekt og kynlíf er notað til að selja allan andsko.... Við fullorðna fólkið þurfum að fara að spá í hvaða áhrif þetta hefur, ég tala nú ekki um á börnin okkar.
![]() |
Mynd af nakinni Venus bönnuð í lestum London |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Æji, í guðanna bænum, ætlar þessi Viktoríutímabils-tepruskapur aldrei að drepast?
Að nota nekt og kynlíf til að selja eitthvað gerir ekkert nema að hugsanlega selja meira af einhverju drasli. Það er ekkert vandamál, það fer enginn á hausinn við það, það er ekki heilaþvottur, það eru bara auglýsingar. Hvort sem það er nekt eða eitthvað annað kemur málinu ekkert við, vegna þess að það er ekkert að nekt.
Nekt hefur aldrei orðið samfélagi að falli. Né fyrirtæki, né skóla, né einu eða neina. Þetta er 100% tepruskapur, og þú nefnir "börnin okkar" í þeim eina tilgangi að vekja upp móðursýkislegar tilfinningar sem verða til vegna þess að okkur þykir vænt um börnin okkar.
Ást okkar á börnum okkar gerir hvorki nekt né kynlíf neinu hættulegri en ella.
Og reglurnar mega fara til fjandans þegar þær eru byggðar á 150 ára gömlu siðferði frá frumstæðum og hjátrúarfullum tímum. Það er ekkert að nekt og þú veist það.
Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 15:10
Langar líka að minna á 95. og 125. greinar laga 19/1940 (almennra hegningarlaga) sem banna að gera grín að "draga dár að eða smána" aðra þjóðfána, Sameinuðu Þjóðirnar, leiðtoga annarra ríkja og nokkur trúarbrögð sem eru viðurkennd á þessu landi.
Ætlarðu í alvöru að reyna að sannfæra nokkurn mann um að þú sért nógu *vitlaus* til að styðja að slíkum lögum sé upphaldið? Það á að brjóta þær, margbrjóta þær, í spað.
Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 15:13
hahahaha það er aldrei
Þetta hefur ekkert með tepruskap að gera, ef að þú vissir hvernig ég klæði mig þá vissir þú að ég geri ekki mikið til að fela brjóstaskoru, fallegar línur fótleggja minna og rass.
Það er rétt hjá þér að það er ekkert að nekt, nakinn líkami er fallegur. Það er hinsvegar eitthvað að því hvernig nekt er notuð í auglýsingar. Og kannski ekki einu sinni nektin sjálf heldur hvað allt er gert kynferðislegt. Já það er það sem að fer í taugarnar á mér, að ekki sé hægt að selja neitt nú til dags án þessa að gera kynferðislega auglýsingu.
Ég sagðist vera ánægð með ákvörðun ráðamanna lestakerfisins í London, ekki vegna þess að mér finnist þetta málverk vera svo kynferðislegt. Heldur eins og ég sagði "Það er nefnilega svo auðvelt að missa sig alveg í að beygja reglurnar og svo á endanum brotna þær bara".
Finnst þér myndin mín tepruleg?

Sporðdrekinn, 14.2.2008 kl. 15:31
Hmm "vitlaus" nei ég held ekki, ég hef alla veganna aldrei verið kölluð það.
Það er rétt að sumar reglur eru alveg út í hött. Grín er vandmeðfarið, hér er dæmi:
Ég á einstaklega auðvelt með að gera grín að sjálfri mér og hlæ manna mest þegar að mér er gert grín, í góðu auðvitað. Ég á þrjá syni tveir þeirra eru eins og ég en einn er mjög viðkvæmur fyrir svoleiðis gríni. Hann getur hlegið með okkur hinu á má meðan að við gerum grín hvort að öðru en á svo mjög erfitt og fer jafnvel að gráta ef að grínið færist í hans átt. Ég mun gera mitt besta til að kenna honum að vera ekki svona hörundssár.
Grín er bara grín ef að þér finnst það sniðugt, sama hvað öðrum finnst.
Sporðdrekinn, 14.2.2008 kl. 15:40
Í fyrsta lagi er þetta pólitísk rétthugsun sem hefur gengið alltof langt og í öðru lagi hljótum við að gera mun á því þegar að nekt er notuð til selja hluti og þegar að verið er að auglýsa málverkasýningu með einu frægasta málverki málarans. Hvað næst? Klæða Davíð e. Michelangelo í nærbuxur?
Hafsteinn Hafsteinsson (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 17:52
Ég er auðsjáanlega ekki að koma þessu rétt frá mér. Nei, ekki tel ég að það eigi að klæða Davíð e. Michelangelo í nærbuxur
Ég sagði i upphafi að ég hef ekki neitt á móti þessu málverki, ég hef heldur ekkert á móti Davíð M. Ég hef reyndar ekkert á móti nekt.
Ég er á móti því af nekt og kynlíf sé notað til að selja alla skapaða hluti og ég tel að ef ráðamenn lestakerfisins í London beygi þessa reglu sina þá sé ekki langt i að hún verði brotin.
Sporðdrekinn, 14.2.2008 kl. 18:35
En sjáðu til, ekki er um neina reglu að ræða. Þetta er siðferðisspurning. Það er ekki verið að brjóta neinar reglur. A.m.k. er hvergi minnst á eina einustu reglu í fréttinni. Þar ferð þú út af sporinu. Og það að tengja málverk sem er frá 15., 16. öld við það hvernig kynlíf og nekt er notað í nútímanum til að selja hluti er ansi far fetched svo ég sletti nú aðeins.
Hafsteinn Hafsteinsson (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 19:18
C/P úr fréttinni: "Talsmenn neðanjarðarlestakerfisins í London segja viðmiðunarreglur hafa verið brotnar".
Hafsteinn, ég er búin að reyna að útskýra fyrir þér hvað ég meinti þegar að ég fór að tala um nekt og kynlíf í sambandi við þessa frétt.
Sporðdrekinn, 14.2.2008 kl. 20:16
Þegar nekt er annars vegar er mér yfirleitt ekki misboðið og mér finnst skrítið að ef að það eru einhverjar viðmiðunarreglur hjá neðanjarðarkerfinu í London um nekt að það skuli ekki vera gerð undanþága í svona tilfelli þ.e. gamallt frægt málverk. Ég tel að það skaði börnin okkar ekki mikið. En aftur á móti er líka mikið af byssum og öðrum vopnum í auglýsingum og það held ég að hafi meiri áhrif á börnin okkar.
Rebekka (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 16:20
Já það er alveg rétt hjá þér Rebekka. Vopn, morð og ofbeldi er alstaðar og það getur bara ekki annað en haft slæm áhrif á börnin.
Sporðdrekinn, 15.2.2008 kl. 17:09
Virðist hafa misskilið attitudið í þér, Sporðdrekinn. :) Fyrirgefðu ef ég var aðeins of kjaftfor, ég fer einhvern veginn sjálfkrafa í pólitíkusar-gírinn hér á Morgunblaðrinu. ;)
Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 21:52
Ekkert mál Helgi
Ég virðist hafa komið þessu hálf asnalega frá mér, jafnvel þó að ég hafa reynt að útskýra mál mitt fyrir þér og Hafsteini þá virðist ég ekki hafa tjáð mig nógu vel því að Rebekka nær mér ekki heldur
Sporðdrekinn, 16.2.2008 kl. 03:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.