14.2.2008 | 15:10
Blóm - Konfekt - Vanþakklæti - samviskubit
Japps þetta er dagurinn í dag hjá mér.
Ég fékk sendingu áðan, fallega blómaskreytingu í vasa, konfektkassa og kort með fallegum orðum.
Ég ætti að vera hoppandi ánægð, ég varð að fá þessa fallegu gjöf frá ljóninu og ungunum okkar, en.....
Ég vill ekki fá sendingu, ég vill að hann/þeir rétti mér þetta sjálfir, en ekki einhver kona sem að ég hef aldrei séð áður, "Kvitta takk".
Ég vill ekki falleg orð skrifuð af ókunnugum.
Ég vill ekki eyða pening í óþarfa..... Ég held reyndar að það pirri mig mest. Já og ég veit að ég er að vera vanþakklát.
Stórt knús og koss hefðu sko alveg dugað mér (meiri vanþakklæti ).
Ég veit að þetta er falleg hugsun hjá Ljóninu mínu og kannski er hann alinn upp við að það sé meira rómó eða spés þegar að maður fær gjöfina senda. Æ ég veit ekki.... En eitt er þó víst að ég verð að vera voða voða glöð og ánægð í rödd, andliti og líkamshreyfingum þegar að Ljónið og ungarnir koma heim.
Ekki vill ég sýnast vanþakklát.....
Ég er með samviskubit yfir að mér líði svona, ég veit að þetta er gert af ást og góðum hug. Kannski ef að ég borða allan konfektkassann núna strax þá líði mér betur
![]() |
Tvöföld blómasala í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Elsku krúttudúllan mín,
Ég fór nú bara og keypti 7 rauðar rósir og sagði við Fjallið, þessi blóm eigum við saman! Hann sagði við mig að hann hefði hugsað út í að kaupa eitthvað sætt en varð fastur í vinnunni .... en blómin eru falleg og ilmurinn er dásamlegur. Ég ætla að kveikja í arninum í kvöld, bjóða honum upp á kampavínsglas og næla mér í einn koss!
Ekki vera með samviskubit það hefði verið meira rómo að fá blómin og konfektið frá Ljóninu og ungunum. Geta horft í augun og sé the tender loving flame!
til þín í tilefni dagsins!
www.zordis.com, 14.2.2008 kl. 19:09
þú færð
til baka í tilefni dagsins 
Sporðdrekinn, 14.2.2008 kl. 20:05
Æ, er það ekki hugurinn sem gildir? Það er alltaf verið að hvetja okkur karlmennina til að vera spontant og koma konunni á óvart. Kannski hefur hann einmitt haldið að þetta væri þannig dæmi. Sætt af honum
Markús frá Djúpalæk, 14.2.2008 kl. 20:14
Æ njóttu þess að fá svona frá þinni yndislegu fjölskyldu, þú knúsar þau bara fyrir þegar þau koma heim
Huld S. Ringsted, 14.2.2008 kl. 20:22
Njóttu þess bara og hámaðu í þig konfektið...
...namm...namm...
Agnes Ólöf Thorarensen, 14.2.2008 kl. 20:31
Já, Æ, Ljón krúttið hringdi svo í mig í dag (eftir "I Love you" sms og svona) og sagðist ætla að fara með mig út að borða á föstudaginn "just you and me"
.
Já ég er ofdekruð frekju skrudda
, mikið rosalega skal ég knúsa hann og kyssa þegar að hann kemur heim í kvöld. Hver veit, kannski ég gefi honum meira að segja nudd 
Þetta er rétt hjá ykkur öllum. Ég er búin að ákveða að njóta þessarar gjafar, knúsa Ljónið og ungana, borða konfekt og vera sæl
Eigið yndislegar stundir það sem eftir er kvöldsins
og ævinnar ef að út í það er farið 
Sporðdrekinn, 14.2.2008 kl. 22:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.