Hvernig getur fólk verið svona grimmt?

Við erum að tala um unglinga hér, dreng og stúlku, hvað fær þau til að fremja svona voðaverk?!

Ég skil ekki svona grimmd, þau voru ekki að sækjast eftir neinu öðru en að skemmta sér við að pína stúlkuna! oohhhh ég fæ svo illt í hjartað.

Ekki veit ég hvort að heimurinn fari síversnandi eða þá að við heyrum bara meira af því sem er að gersat í honum. Ég man bara ekki eftir að hafa nokkurn tíman heyrt svona áður.


mbl.is Misþyrmdu fatlaðri stúlku í 6 klukkustundir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Þetta er of hræðileg lýsing. En sem betur fer fær þetta fólk ríkulega refsingu fyrir það sem það gerði. Ef þetta reynist allt satt. Úff.

Markús frá Djúpalæk, 26.2.2008 kl. 15:43

2 Smámynd: www.zordis.com

Hrikalegt og ógeðslegt að fólk getur verið ógeðsslegt!  Mér finst að unglingar á þessum aldri séu orðin ábyrg og það á að dæma þau sem fullorðna einstaklinga.

Þvílíkt og annað eins

www.zordis.com, 26.2.2008 kl. 19:51

3 Smámynd: Ólöf Anna Brynjarsdóttir

Vá!! Ég varð virkilega reið!
Mér er alveg sama hvort að manneskja sé fötluð eða ekki, þetta er alltaf jafn ógeðslegt!
Mikið vona ég innilega að þau fá LANGANN dóm!

Ólöf Anna Brynjarsdóttir, 26.2.2008 kl. 20:42

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Óhugnalegt!! að það skuli vera til svona mannvonska

Huld S. Ringsted, 26.2.2008 kl. 22:05

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Já það er sko vonandi að þau fái langan dóm. Eins vona ég að stúlkan fái sálfræði hjálp eftir þetta, ég get ekki ímyndað mér annað en að hún þurfi þess.

Sporðdrekinn, 26.2.2008 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband