27.2.2008 | 22:06
Egg - Ungi - Hæna - Hani - Valkvíði
Ungarnir breytast í egg - Móðirin gaggar - Faðirinn er komin með kamb.
Ég er festist stundum í hlutum hvort sem að það eru föt, fjölskylda eða matur. Ég er tildæmis búin að eiga sömu fjölskyldu allt mitt líf. Það bætist í hana reglulega og það fækkar um einn og einn, en þetta er alltaf fjölskyldan mín.
Ég og Ljónið mitt erum einstaklega hrifin af eggjahvítu, gott, gott prótein. Ungarnir eru líka hrifnir af eggjum, sem betur fer.
Ég hef ekki búið til eggja eða túnfisksalat í langan tíma, en svo fyrir fjórum dögum síðan "Hey! hvernig væri að búa til salat?". Ég hef sem sagt "þurft" að búa til salat á hverjum degi eftir það. Það er bara "Namm, Namm" og "Má ég fá meira". Svo í dag þegar að ég er að setja egg í pott í annað sinn á sama degi (Ætla ekki að búa til salat á morgun!), segir Ripp (elsti unginn) "Hey, eigum við að breytast í svona salat fjölskyldu aftur?"
Ég: Ha? Salat fjölskyldu, það hljómar nú ekki vel
Ripp: Nei ég meina svona alltaf að borða salat.
Ripp er skælbrosandi og þvílíkt ánægður með þetta allt saman, en þetta fékk mig til að hugsa:
Er eitthvað að mér?
Af hverju á ég svona erfitt með að breyta út af vananum?
Ég geng yfirleit í sömu fötunum þangað til að það eru komin "göt", þótt svo að ég hafa keypt mér ný. Ég nota veskin mín í svo langan tíma eftir þeirra "normal" lífsdaga að ég er búin að gera við þau aftur og aftur og aftur.....
Ljónið mitt hefur gefið mér veski og seðlaveski oftar en einu sinni og sagt "My Love, I think it is time".
Já og SKÓR! Ekki tala um þá. Það liggur við að það komi göt á sokkana mína vegna þess hversu eyddir skórnir mínir eru.
Mér finnst bara best að vera í "notuðum" fötum. Fötum með sögu.
Þetta hefur sjálfsagt fullt með það að gera að ég bara get ekki valið. Ég er með valkvíða aldarinnar (er hægt að segja svona?). Helst vil ég fá fötin mín, töskur og skó gefins í jólagjöf eða afmælisgjöf. Þá þarf ég ekki að velja!
Systir mín er sem betur með eintaklega gott auga fyrir því hvað er töff (að mér finnst) og hvað fer mér vel. Ég hef ósjaldan hringt í hana og sagt "Elsku systir, nú vantar mig buxur" og viti menn þessi elska finnur alltaf tíma til að fara með stóru/litlu systir að versla.
Ekki það að ég gangi bara í lörfum hahaha þó svo að þetta hljómi sjálfsagt svoleiðis. Og ég geng ekkert í fötum sem að öðrum finnst töff en mér ekki. Enda er ég ekkert að eltast við eitthvað tískudót. Ég en mér finnst bara miklu betra að þurfa ekki að ákveða ALEIN hvað ég á að kaupa.
Talandi um föt, ég þarf að fara að versla vorfötin mín, besta að hringja í systu.
Athugasemdir
Kemur fyrir að kona lendi í svona repeated situation / endurteknar aðstæður í mat, drykk og klæðnaði, lífi og öllu.
Væri satt best að segja til í gott túnfisksalat fyrst þú nefnir það en ðe h-lady má ekki við því og er í andlegum undirbúningi fyrir átök morgundagsins .......
www.zordis.com, 27.2.2008 kl. 22:16
Já en Zordis, túnfisksalat þarf nú ekki að vera svo slæmt fyrir þig. Ef þú notar aðallega eggjahvítuna og lítið af salti og majonesi, þá er þetta bara fínt.
Prótein frá fisknum og eggjahvítunni, fita frá majonesinu svo smá hrökkkex
Sporðdrekinn, 27.2.2008 kl. 22:23
Ég gleymdi hérna smá: Hjúket að ég er ekki eina konan sem er svona vanaföst
Ég er ekkert smá ánægð með þig
"You go lady!!"
Sporðdrekinn, 27.2.2008 kl. 22:30
Takk fyrir það, ég er að versna í harðsperrum ..... vona að þegar ég bregð mér í gerfi að ég nái að hverfa í eigin heim .... Gott að finna fyrir því að kroppurinn hafi verið að bjarga heiminum eins og Spiderman gerir svo oft.
Sko .... ég get keypt spes glúten frítt majó og svo er ég ekki hrifin af rauðunni og þá er ég í góðum málum .... smá hrökkkex (ég sagði aldrei hrökkbrauð fanst svo flott að sjá þrjú kkk saman .... ) hehehh
Ætla að setja lúmskurnar í glas
og fara í innhverfa íhugun!
www.zordis.com, 27.2.2008 kl. 22:42
hahaha ææjj skrifaði ég þetta vitlaust? "Hrökkkex" ég er nefnilega með skrifblindu og er ekkert alltof viss um að ég sé að gera rétt jafnvel þó að ég noti púkann. Sko ekki þá innri púkann
, heldur þennan sem hjálpar til með stafsetninguna.
Glúten frítt majó, ég þarf að ath hvort að ég finni það.
Harðsperrur eru bestar, ég fór einmitt sjálf í ræktina í gær eftir allt of langa pásu. Er öll að stífna upp og mig hlakkar svo mikið til að fara aftur í ræktina á morgun og mýkja upp vöðvana
Sporðdrekinn, 27.2.2008 kl. 23:05
Gæti ég nokkuð fengið systir þína lánaða í verslunarleiðangur??? þjáist líka af svona verslunarvalkvíða

Huld S. Ringsted, 27.2.2008 kl. 23:47
hahaha Já ekkert mál, þú verður bara að skila henni aftur
En hvað er þetta með verslunarvalkvíðan?
Ég er næstum því verri ef að ég á nóg af pening til að eyða, það er eins og ég lokist alveg og barasta sé ekkert sem að mig langar í. En svo ef að ég er alveg staur, þá sé ég það sem að mig langar í. Það er sjálfsagt af því að undirmeðvitundin veit að ég þarf ekkert að velja, get ekkert keypt hvort að er
Sporðdrekinn, 28.2.2008 kl. 02:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.