Reglur - Agi - Skýr mörk

Þetta finnst mér vera gott mál.

Það verður þá kannski meira pláss í fangelsum landsins til að hýsa Íslenska afbrotamenn. Það er of mikið um að afbrotamenn fái bara "Skamm ekki gera þetta aftur" og svo eru þeir farnir aftur til fyrri iðju. Ég er ekki að segja að fólk hafi gott af því að vera lokað inni með öðrum sér líkum og jafnvel stærri afbrotmönnum. Það þarf að byggja þá upp og kenna þeim að lifa eftir lögum og reglum landsins.

Við vitum að agi og skýr mörk eru best til að ala upp börnin okkar. Ætli það sé ekki það sama með það fólk sem að á erfitt með að halda sig innan við mörk laganna. Sendum þeim skýr skilaboð, þetta má og þetta má ekki, ef að þú brýtur þennan ramma þá verður þú send/ur út í horn.


mbl.is Litháískir fangar til Litháen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Ég er nýbúin að koma fram fyrir dómi hér á Spáni og það er sá mesti kvíði sem ég hef upplifað.  Ég vorkenndi sakamönnum sem eru að uppruna frá arabalandi en þeir voru dæmdir í fangelsi fengu á bilinu 5 til átta ár fyrir innbrot og falsanir á kreditkortum.  Ég vildi óska þess að glæpamenn væru jafnan sendir til sín heima þar sem eigið siðferðisland refsi og að ríki viðkomandi borgi fyrir flutninginn þannig að skattborgarar þurfi ekki að líða frekari álagningu.

Af hverju getum við ekki bara lifað í sátt og samlyndi?

www.zordis.com, 28.2.2008 kl. 17:23

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Já ég skal trúa því að það hafi verið erfitt. Ég vona að þú hafir komið "vel" út úr því.

Ég veit það ekki Zordis, svei mér þá, ég bara veit það ekki. 

Sporðdrekinn, 28.2.2008 kl. 20:53

3 Smámynd: www.zordis.com

Ég var nú bara þokkaleg get ég sagt þér!  Það kom ró yfir mig áður en ég var kölluð inn í réttarsalinn og þetta er það mesta show sem ég hef upplifað!

Dómarinn og aðstoðarmenn hans, skrumið uppmálað .... yfir okkur hin hafin! 

Allt er gott sem endar vel! 

www.zordis.com, 1.3.2008 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband