Ég var að vinna stóran vinning!!

Já hvorki meira né minna en "NINE HUNDRED AND FIFTY THOUSAND,TWO HUNDRED AND FIFTEEN DOLLARS"!!!

Þetta er ekkert smá peningur og kemur hann sér vel akkúrat núna. Ljónið þarf að kaupa nýjan bíl vegna vinnunnar og mig langar til að skipta Jeppanum út fyrir 8 manna bíl. Svo á Ripp afmæli í vikunni og það kostar sitt. Afmælisgjöfin auðvitað, boð fyrir fjölskylduna og svo fyrir vinina líka.

Það er svo frábært að það eina sem að ég þarf að gera til að fá peninginn, er að senda einhverjum gaur allar upplýsingarnar mínar. Eða ekki allar, hann er með tölvupóstfangið mitt. Ég var nefnilega valin af einhverjum 105,000 tölvupóstföngum alstaðar af úr heiminum. Ein ekkert smá heppin! Ég meina hverjar eru líkurnar á að maður vinni svona pening fyrir það eitt að hafa tölvupóstfang?! Ég verð að segja það aftur "Ég er ekkert smá heppin" GrinWizard

Ég var svo spennt þegar að ég las að ég hefði unnið að ég var að láta ykkur vita strax! Ég læt ykkur líka vita þegar að ég er komin með peninginn í hendurnar.

Núna ætla ég hinsvegar að flýta mér að senda allar upplýsingarnar mínar til þessa ókunna mans svo að ég geti fengið peninginn minn!

 

Eða ekki....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Heyrðu já ég hef einmitt verið svona heppin, ég er búin að gefa allar upplýsingar mínar, þurfti að gefa upp kortanúmerið mitt til að þeir gætu lagt inn á mig.  Nú bíð ég bara eftir stóra pottinum.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 3.3.2008 kl. 20:25

2 Smámynd: www.zordis.com

  Ég græt bara af gleði!  Til hamingju .......

www.zordis.com, 3.3.2008 kl. 20:28

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Frábært Nanna!! Ég samgleðst þér svo innilega

Takk Zordis, ég græt líka...  

Sporðdrekinn, 3.3.2008 kl. 21:14

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Vá!! Til lukku!!!!! Ég vann líka svona

Huld S. Ringsted, 3.3.2008 kl. 22:16

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Takk og sömuleiðis Huld . Það er meira hvað við eru heppnar

Sporðdrekinn, 4.3.2008 kl. 00:04

6 Smámynd: Dísa Dóra

Vá til hamingju!!!!

Hmmmm ég ætti kannski að fara að endurskoða málið og senda allar upplýsingar til þeirra sem alltaf eru að senda á mig bréf um slíka vinninga Væri sennilega orðin ríkasta persóna íslands þá

Dísa Dóra, 4.3.2008 kl. 10:53

7 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Geðveikt.... fékk einmitt eitthvað svipað bréf. Beiðni um að aðstoð við að ná fleiri millljörðum útaf einhverjum reikningi, og ég átti sko að fá 30% af öllu saman. Hlakka ekki smá ýkt mikið til. Þarf bara að gefa einhverja bankaupplýsingar og borga eitthvað pínu svona.

Markús frá Djúpalæk, 4.3.2008 kl. 14:16

8 Smámynd: Sporðdrekinn

Hau Hau Hau! Ef að ég er bara ekki með heppnustu bloggvini landsins eða bara heimsins!  Og ég sem hélt að þetta væri eitthvað einsdæmi hjá mér

Sporðdrekinn, 4.3.2008 kl. 16:28

9 Smámynd: Sævar Einarsson

Já vá ! ég vann líka í einhverju lottói um daginn, ég var ekkert smá happy, ég gef frat í þetta víkingalotto, þeir segja að maður verði að kaupa miða til að eiga séns á að vinna, piffftt ég vann sko í þessu lottói ánþess að hafa verslað mér miða og yfir höfuð man ég ekki eftir því að hafa tekið þátt, en það er önnur saga! maður þurfti bara að gefa þeim upp kreditkortanúmerið sitt svo þeir gætu staðfest að ég væri ekki að svindla og væri einhver annar en ég er, auðvitað skil ég þá vel og sendi þeim númerin af VISA og Masterkortinu, maður verður jú að passa sig.

Sævar Einarsson, 4.3.2008 kl. 21:45

10 Smámynd: Sporðdrekinn

Það er eins gott að þú sendir þeim nr. af báðum kortunum Sævarinn, það hefði verið ömurlegt ef að þeir hefðu viljað Visa og þú bara sennt Masterinn

Sporðdrekinn, 5.3.2008 kl. 03:18

11 Smámynd: Sporðdrekinn

Anna K. Takk fyrir að benda á þessa síðu það er alltaf gaman að frétta af fólki sem dettur í lukku pottinn.

Þú ert algerlega að misskilja mig ef að þú heldur að ég sé að gera grín af fólki sem tekur þátt í lottó og öðru slíku, ég spila stundum sjálf og bíð spennt eftir að fá fleiri en þrjár tölur réttar.

Þú hlýtur að sjá muninn á að senda ókunnugri manneskju banka upplýsingarnar þínar og að fara út í sjoppu og kaupa lottómiða eða setja 50 kr. í spilakassa.

Mér finnst fólk kjánalegt ef að það trúir að það hafa unnið miljónir í einhverju happdrætti úti í heimi sem að það hefur ekki einu sinni skráð sig í eða keypt miða í. Ég finn til með því fólki sem að hefur sent fullt af pening til ókunnugra og glatað þeim, en ég get ekki skilið af hverju fólk gerir þetta.

Kannski er það hálf notalegt að hugsa til þess að það skuli vera til svona saklaust fólk í heiminum. En þegar að það er misnotað svona þá er það sorglegt.

Svo aftur á móti er ég kannski að misskilja innleggið þitt. Kannski vildir þú bara benda á það hvað Þórður var heppinn og glaður með sinn vinning.

En hvort sem það er, þá takk fyrir að kíkja inn og skilja eftir spor í bloggsandinn minn

Sporðdrekinn, 5.3.2008 kl. 03:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband