9.3.2008 | 03:19
Bíddu... ha.. hva... því... ég skil ekki!
Hvernig í ósköpunum getur framhjáhald réttlæt ljúgvitni?
Ég get sagt ykkur það að ég myndi ekki líta svo á málin að maðurinn minn mætti ljúga að mér til að halda heiðrinum. Hvað þá ef mann ........ væri að halda framhjá mér. En hann er náttúrulega karlmaður en ekki kona. Ætli karlmenn megi kannski líka bera ljúgvitni við sömu aðstæður þarna á Ítalíu?
Hvernig geta lygar og svik við makann réttlætt ljúgvitni?
Ég hef alltaf sagt við börnin mín að sannleikurinn sé sagna bestur og ætla ég ekkert að fara að breyta því. En ég á náttúrulega ekki stelpu þannig að..... Nei það bara getur ekki skipt máli hvort kynið er. Sannleikurinn skal sagður! Hann á alltaf að vera númer eitt, tvö og þrjú.
![]() |
Ítalskar konur mega ljúga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er ekki ætlast til að fólk segi afdráttarlausan sannleikan í fjölda tilfella. Í flestum réttarkerfum eru ákvæði um að ekki sé hægt að neyða fólk til að vitna gegn fjölskyldumeðlimum eða jafnvel sjálfum sér. Þetta er af sama stofni.
Elías Halldór Ágústsson, 9.3.2008 kl. 08:04
Þetta er vissulega svolítið spes
.....
Sannleikurinn er jafnan bestur þegar upp er staðið, eða hvað ????
www.zordis.com, 9.3.2008 kl. 12:05
Sannleikurinn er alltaf sagna bestur..
Agnes Ólöf Thorarensen, 9.3.2008 kl. 23:04
Ég skil hvað þú ert að fara Elías, en þetta hljómaði bara ansi asnalega í fréttinni.
Já stelpur mínar, sannleikurinn, sannleikurinn, sannleikurinn.
Sporðdrekinn, 10.3.2008 kl. 01:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.