Talandi um brjóst

Síðasta bloggfærsla og athugasemdir, fjalla mikið um brjóst.

Ég er búin að vera voða dugleg í ræktinni og að passa upp á matarræðið. Ég varð því rosa ánægð um daginn þegar að ég var að skoða sjálfa mig í speglinum og tók eftir því að ég er farin að sjá fullt af vöðvum sem að ég hafði ekki séð lengi. Svo eru öll fötin mín að verða of víð og ég er farin að þurfa að minka beltin Grin

En.... í morgun fór ég í topp sem hefur alltaf gert mig að voða mikilli kynbombu . Hann hefur ýtt undir brjóstin og látið líta út fyrir að ég væri brjóstgóð. En hvað haldið þið?! Fitan hefur ekki bara farið af maga, mjöðmum, baki, mitti.... heldur líka úr brjóstunum!!!! CryingAngry

Mín er í fílu! Ég er að druslast þetta áfram með tvo tepoka og ég sem drekk ekki einu sinni te!! W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ein-stök

OH já.. þetta er nú það leiðinlega við að losna við fitu, hún fer víst af öllum stöðum líkamans  En í sambandi við tepokana.. er ekki einhver sem "fílar teið"?  

Annars ætlaði ég aðallega að hrósa þér fyrir dugnaðinn. Frábært að sjá svona árangur. Ég er að reyna að taka mig saman í andlitinu þessa dagana en það gerist voðalega hægt

Ein-stök, 8.5.2008 kl. 18:27

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Því miður sit ég ein að tepokunum sem stendur

Takk fyrir það Ég var orðin frekar "flott" fyrir c. ári síðan en meiddist þá á öxl og sleit vöðva í kálfa. Ég varð því að minka allar æfingar og varð svo leið og pirruð á því að ég hætti, ég veit fáránlegt. En ég fór til sjúkraþjálfara fyrir c. tveimur mánuðum sem að fattaði hvað var að öxlinni á mér og hvernig það hafi gerst. Ég þarf að fara varlega og get því miður ekki gert allt sem að ég vildi geta gert, en ég er að vinna í að styrkja vöðvana í kringum öxlina og ég finn mikinn mun.

Góðir hlutir gerast hægt Ein mín

Sporðdrekinn, 8.5.2008 kl. 18:53

3 Smámynd: Ein-stök

Já satt er það góðir hlutir gerast hægt. Ég þarf sífellt að minna sjálfa mig á það núna. Mér líst nú þannig á þig í gegnum skrifin þín að þú eigir ekki eftir að sitja lengi ein að tepokunum heillin mín

Ein-stök, 8.5.2008 kl. 19:05

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

 

Markús frá Djúpalæk, 8.5.2008 kl. 19:09

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Takk fyrir þetta Ein mín, það kemur vonandi í ljós fljótlega.

Sporðdrekinn, 8.5.2008 kl. 19:11

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Hva! Ertu hissa á að ég drekki ekki te Markús?

Sporðdrekinn, 8.5.2008 kl. 19:13

7 Smámynd: www.zordis.com

Frábært hvað þér gengur vel, ekkert smá dugnaður í þér kona!  Tepokarnir gegna sínu góða hlutverki ... fáðu þér para push up wonder bra .....

knús á þig sæta kona!

www.zordis.com, 8.5.2008 kl. 20:00

8 Smámynd: Sporðdrekinn

Takk! wonder bra, það er málið, held samt að ég verði að fara og kaupa minni

Knús á móti falleg

Sporðdrekinn, 8.5.2008 kl. 20:40

9 Smámynd: Dísa Dóra

hva bara kaupa þetta töfrakrem sem seldist víst upp á nótime í englandinu í síðustu viku eða svo

Dísa Dóra, 8.5.2008 kl. 22:28

10 Smámynd: Ein-stök

Mér datt í hug.. fyrst þú ert í svona flottu formi. Hefurðu farið í fituprósentumælingu? Ég hef upplifað það að missa 20 kg (búin að bæta nokkrum á mig aftur í streitunni undanfarna mánuði) og er einmitt ekki sátt við hvernig það fór með blessuð brjóstin. En ég má ennþá missa slatta svo ég enda líklega á "tepoka-stiginu"  Við völsum þá bara um stoltar með stinna rassa, stælta vöðva og sveiflum tepokunum

Ein-stök, 8.5.2008 kl. 22:49

11 Smámynd: Sporðdrekinn

Hvar!? Hvenær!? Er hægt að kaupa krem sem stækkar brjóstin I am inn!

Ég hef ekki farið síðan í Janúar að mig minnir, þá held ég að ég hafi verið 22,5%. Sá sem mældi mig er með töluna, ég var að spá í að láta mæla mig aftur. Annars er bara svo gaman að sjá breytinguna á kropnum að % fjöldin skiptir ekki eins miklu máli . EN djö... væri ég til í að fá þessar % inn í brjóstin, væri það ekki snilld?! Fórst þú í % mælingu?

20 kíló dugleg ertu!  

Hahaha Þú drepur mig með síðustu setningunni "Við völsum þá bara um stoltar með stinna rassa, stælta vöðva og sveiflum tepokunum ". Já við erum flottar! 

Sporðdrekinn, 8.5.2008 kl. 23:50

12 Smámynd: Ein-stök

Ég fór síðast fyrir um 2 mánuðum og var þá einhver 34%. Má því klárlega gera meira í mínum málum. En ég er alveg sammála þér að það besta er að finna og sjá breytinguna á kroppnum. Kílóatölur, sentimetrafjöldi og fituprósenta er jú ákveðið mælitæki til að sjá hvað er að gerast með líkamann og ég fer því reglulega í svoleiðis tékk. Og jú.. væri svo sannarlega til í að fitan safnaðist bara í brjóstin

Já svona verðum við.. og LAAAANGflottastar

Ein-stök, 9.5.2008 kl. 13:41

13 Smámynd: Sporðdrekinn

Það er eins gott að við erum í sitthvoru landinu, held að Ísland myndi brenna yfir um ef að við værum þar báðar í einu

Sporðdrekinn, 9.5.2008 kl. 13:57

14 Smámynd: Ein-stök

Segðu.. sjúkket ma'r fyrir Ísland og USA  

Ein-stök, 9.5.2008 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband