Talandi um þjófa....

.. þá verð ég bara að deila með ykkur reynslu minni af nýrri tegund veskjaþjófa. Ég veit að það er ekki Wal Mart á Íslandi en ef að þig þekkið einhverjar konur sem búa erlendis og versla í Wal Mart endilega látið þær vita af þessu!!

Ég var sem sagt að setja vörurnar mínar í bílinn eftir að hafa verið að versla í Wal Mart. Þá komu til mín tveir vel vaxnir, gullfallegir menn, svona kúrekatýpur.

Hvorugur er í skyrtu og fara þeir að þrífa framrúðuna hjá mér með klútum og rúðuúða. Á meðan þeir struku rúðuna hjá mér gat ég ekki annað en horft á vel þjálfaða brjóstvöðvana og grjóthörðu magavöðvana. Þegar að ég bauð þeim svo þjórfé afþökkuðu þeir, en báðu mig þess í stað að keyra sig í aðra búð. Ég ákvað því að skutla þeim og þeir setjast báðir í aftursætið.

Á leiðinni fara þeir að tala um hvað þeim langaði til að gera við mig kynferðislega. Svo klifrar annar þeirra fram í og fer að kyssa á mér hálsinn og biður mig að stoppa bílinn svo að við getum haft samfarir!!

Nú á meðan að þetta gerist stelur hinn gaurinn veskinu mínu!!

Veskinu mínu var stolið síðasta Laugardag, Sunnudag, tvisvar á Mánudaginn, og aftur á Miðvikudaginn, í gær og mjög líklega aftur á morgun.


mbl.is Bannað að taka skó þjófa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 30.5.2008 kl. 18:24

2 Smámynd: Ein-stök

 Ég kem til USA og þú bendir mér á réttu búðina  Veskið mitt er hvort eð er ekkert merkilegt, hvorki veskið sjálft né innihaldið svo það má alveg fórna því

Ein-stök, 30.5.2008 kl. 21:15

3 Smámynd: Dísa Dóra

Dísa Dóra, 30.5.2008 kl. 22:46

4 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

...og ég sem var byrjuð í huganum,æææ þetta hefur verið alveg ferlegt fyrir hana að lenda í þessu,svo kom upptalningin..........hehe....þú náðir mér....hehehe............

Agnes Ólöf Thorarensen, 30.5.2008 kl. 23:56

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Ekki málið Ein-stök, við förum í Wal Mart að versla veski!  íííííHaaa..!

Agnes: hehe

Sporðdrekinn, 31.5.2008 kl. 03:07

6 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Naughty!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 1.6.2008 kl. 16:15

7 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 1.6.2008 kl. 16:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband