5.6.2008 | 16:37
Ofsaveður - Rafmagnsleysi - Börn
Það fór ofsaveður yfir hjá okkur í gær, við erum heppnari en margir því hér er allt ok. Yngsti Unginn var hræddur við að fara að sofa, var viss um að það kæmi hvirfilbylur hjá okkur. Í endann lá ég hjá honum þar til að hann sofnaði. Hann róaðist fullt þegar að ég fór að tala um hvað mér finnist notalegt að heyra í þrumunum og rigningunni þarna úti. Fyrst horfði hann á mig undrandi, svo glaður og í endann sofnaði gullið með bros á vör
Það fóru tré niður allt í kringum okkur og er því rafmagnslaust á mjög mörgum stöðum talið var að um 500,000 heimili væru án rafmagns í gærkveldi. Þar á meðal eru nágrannar mínir hinu megin við götuna, ég er svo þakklát fyrir að hafa sloppið. Einnig er rafmagnslaust í skólum Unganna og voru því allir sendir heim eftir c. 3 - 4 tíma í skólanum.
Hér er því fullt hús! Fimm stk háværir unglingar hafa sparkað af sér skónum, dregið fyrir gluggana í stofunni, fengið sér gos og eru nú að spila tölvuleik. Þar sem að þeir sitja allir í sama herbergi og nokkrir á sama sófa, þá er alveg nauðsynlegt að öskra allt sem segja þarf og hlæja hærra en sá sem situr við hliðina á þér
Yngri Ungarnir fengu líka sína vini yfir en sem betur fer langar þeim að leika úti! Við sjáum hvað það endist lengi, ég er nokkuð viss um að þau koma hlaupandi inn þegar að þeim verður of heitt.
Ég þakka fyrir að börnin mín vilja koma heim með vini sína og þá sérstaklega unglinga-Unginn, það er gott að vita að þeim líður vel hér. Við Unginn tölu stundum samann á Íslensku þegar að vinir hans eru hér. Oft heyri ég Ungan segja þegar að ég labba í burtu "Veistu hvað mamma sagði ......." svo kemur í vininum " Nei! Ertu ekki að djóka!" "Nei" svo er hlegið. Ég er víst ekkert allt of stíf og finnst vinum unglinga Ungans oft mjög gaman af húmornum mínum. En þeir eru líka snöggir að þakka fyrir sig og biðjast afsökunar ef þarf, þá kemur "Sorry Mrs. Sporðdreki" eða "Thank you Mrs. Sporðdreki". Þetta eru svo vel uppaldnir ólátabelgir
Ég þakka líka fyrir að ekki hafi neinn slasast eða eitthvað eyðilagst hér hjá okkur. Það varð mikið tjón hjá mörgum og ekki það langt frá okkur.
Athugasemdir
gott að allt er í lagi..hér er rigning
Hólmdís Hjartardóttir, 5.6.2008 kl. 16:51
Hvar byrd thu ?Her hja mer vantar mikid rigningu alltaf 34-39,stiga hiti og sol.
Ásta Björk Solis, 5.6.2008 kl. 16:56
Hólmdís: Takk
Ásta B.: Ég er í VA. USA. Hér hefur sko ekki vantað rigningu undanfarnar vikur, það er víst langt síðan að það hefur rignt svona mikið. En það vantar ekki hitan af honum er nóg og í bland við rakann jakkk
Og ekki á það eftir að skána, ég er svotan óhemja á hita og raka 
Síðan að ég setti inn þetta blogg, hefur aukist í barna hópnum!
Sporðdrekinn, 5.6.2008 kl. 17:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.