Íslenska Ofurkonan berst fyrir landinu OKKAR!

Þetta er frábært framtak hjá Björk og meðlimum hljómsveitarinnar Sigur Rós!

Það er vonandi að þau fái gott veður og að almenningur njóti þess sem að þessir frábæru lystamenn eru að bjóða uppá.

Ég vona líka að þetta þétti fólk saman til að passa upp á landið sitt. Það eru nefnilega ekki bara stórvirki sem ógna landinu heldur er það líka drasl og vanvirðing gagnvart nátúrunni. Já drasl sem að fólki finnst of erfitt aðfara með í næsta rusl og fleygir því frá sér út í náttúruna.

Höldum landinu hreinu og fallegu og borginni okkar líka!

Ég vill persónulega þakka Björk og meðlimum hljómsveitarinnar Sigur Rós fyrir frábært framtak!


mbl.is Ísland verði áfram númer eitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 5.6.2008 kl. 21:17

2 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

já sammála

Gunnar Gunnarsson, 5.6.2008 kl. 23:06

3 Smámynd: Linda litla

Ég hef enga skoðun á þessu. Finsnt bara hálf asnalegt að Björk Guðmundsdóttir sem býr ekki á landinu að hún skuli koma til að mótmæla......

En kannski er ég bara vona asnaleg..

Góða nótt

Linda litla, 6.6.2008 kl. 00:40

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Jæja Linda mín, nú verð ég að taka þig í Æðjarðar kúrs nr. 1

Ekki bý ég á Íslandi eins og er, en Ísland er landið mitt! Það mun aldrei neitt annað land verða landið mitt jafnvel þó að ég ætti aldrei eftir að fara aftur til Ísland.

Ungarnir mínir eru 1/2 ísl og 1/2 ensk. Það er ekki spurning hvort landið er "þeirra" land, þeir ætla allir að búa á Íslandi þegar að þeir verða fullorðnir.

Íslendingar eru mjög stolt þjóð og við megum líka alveg vera það, auðvitað eru svartir sauðir á Íslandi eins og annarstaðar og stjórnvöldin eru nú ekki alveg til að hrópa húrra fyrir stundum.  En allt í allt þá mega Íslendingar vera stoltir.

Ég hef verið spurð hvort að ég ætli ekki að sækja um bandarískan ríkisborgararétt. "NEI! Ég er ánægð með að vera Íslenskur ríkisborgari og hef engan áhuga á að breyta því." Stundum er ég víst einum of ákveðin og ég sé á fólki að að því bregður

Ísland er stórkostlegt og stórbrotið land, ég stolt af því að vera Íslendingur!

Svo að ég skil vel að Björk vilji leggja sitt af mörkum til að "passa" landið okkar

Sporðdrekinn, 6.6.2008 kl. 01:29

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sporðdrekinn minn Auðvitað biðjum við fyrir öllum börnum heims,
og ég bið yfirleitt fyrir öllum.
Já við erum og megum vera stolt og það þarf bæði að vernda rétta fallega staði
jafnframt því að lifa í landinu okkar og er það ætíð spurning hvernig við gerum það.
Hafðu það gott ætíð með þínu fólki.

Sporðdrekar eru ætíð ákveðnir, ég er einn.
                   Knús til þín Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.6.2008 kl. 08:55

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Takk fyrir innlitið Milla

Ég veit þetta er snúið mál, ég vona bara að besta lausnin finnist fyrir land og þjóð. Takk Milla mín.

Já hehe Fjölskyldan hefur oft sagt við mig eitthvað á þessa leið: Hvernig getur svona lítil kona verið svona ákveðin og sterk? Ég hef alltaf sagt að það sé vegna víkinga blóðsins, en ætli það sé ekki bland af sporðdreka og víking sem að gerir mig að mér

Knús á móti

Sporðdrekinn, 6.6.2008 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband