Ég held að ég sé með svarið!

Konur eru byggðar til að ganga með og ala börn. Mjaðmagrind okkar er því gerð til að ganga til og frá, konur þyngjast einnig þegar að þær eru barnshafandi og þetta veit náttúran. Mjaðmagrind okkar þarf því að vera sterk.

Kannski svolítið einföld og barnaleg útskýring en ég held að svona sé þetta bara.


mbl.is Mjaðmir karla þola síður ofþyngd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

.

Gunnar Gunnarsson, 15.6.2008 kl. 03:42

2 Smámynd: Skattborgari

Þetta er sennilega rétt hjá þér oft er einfaldasta skýringin sú rétta.

Skattborgari, 15.6.2008 kl. 05:32

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég held að þetta sé rétt hjá þér

Huld S. Ringsted, 15.6.2008 kl. 11:01

4 Smámynd: Ein-stök

Já ég held að þetta sé einmitt málið og skil nú ekki alveg ef Jónas Franklín sér það ekki sjálfur.

Ein-stök, 15.6.2008 kl. 12:15

5 Smámynd: www.zordis.com

einfalt og gott! 

www.zordis.com, 15.6.2008 kl. 22:13

6 Smámynd: Sporðdrekinn

 Er að spá í að skrifa grein og senda læknariti Íslands (ekki að ég viti hvort að slíkt blað sé til)   hehehe já eða ekki

Sporðdrekinn, 16.6.2008 kl. 02:30

7 Smámynd: Baldvin Jónsson

Ég held að skýringarinnar sé frekar að leita í því hvernig kynin fitna, en körlum hættir frekar til að safnast mikil fita beint framan á vömbina sem síðan skekkir átakið og álagið á mjóbak og mjaðmagrindina af því að þyngdin er svo mikið meiri að framan.

Þetta er mín kenning, my 50 cents.  En reikna svo sem ekki með að setja það í læknablöð neins staðar

Baldvin Jónsson, 16.6.2008 kl. 14:45

8 Smámynd: Ein-stök

Þá væri kannski spurning hvort ólétta hefur sömu áhrif á konur. T.d. hvort þær sem ganga í gegnum margar óléttur þurfi oftar á svona mjaðmaaðgerðum að halda en hinar! Finnst annars þessi kenning hjá Baldvini nokkuð góð. Karlmenn fitna jú oftar beint að framan.

Ein-stök, 16.6.2008 kl. 16:29

9 Smámynd: Sporðdrekinn

Þessi 50 cent þín Baldvin eru nú bara ekkert svo vitlaus. Konur þyngjast oftar jafnt yfir mjaðmirnar en karlar. Annars höfum við konur stærri brjóst að framan sem geta nú kannski komið á móts við bjórbumbu karla . Sú þyngd er líka ofar á líkamanum þannig að skekjan á líkamann verður meiri.

Þetta er auðsjáanlega nokkuð flókið mál (þótt að ég hallist enn að minni fyrstu kenningu) og margt að skoða. Ég bíð með að senda mína skoðun á þessu máli í læknaritin þar til að ég er komin með öruggari útskýringu

Þetta er góður punktur Ein-stök, það mætti ath konur eftir því hversu margar meðgöngur þær hafa farið í gegnum.

Sporðdrekinn, 16.6.2008 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband