18.6.2008 | 18:25
Skammist ykkar!
Það er það sem ég segi, virðing fer þverrandi.
Það er ekki bara þessi mikla vanvirðing sem sýnd var með að stela Íslenska fánanum af leiði Jóns Sigurðssonar. Heldur sér maður þetta út um allt. Hvernig fólk talar, ber sig, kemur fram hvort við annað og eigur annarra. Já og ekki bara eigur annarra heldur sína eigin líka. Stundum er eins og það sé bara svalt að vera með sem mestu óvirðinguna. Sýna lítinn sem engan áhuga á því að gera vel við náungan eða umhverfið.
Er málið kannski að virðing fyrir sjálfinu ver dvínandi og því dvínar einnig virðing fyrir mönnum, dýrum, jörð og hlutum í leiðinni?
Hver svo sem ástæðan er, þá óska ég af öllu hjarta að þessi þróun snúist við.
E.S. Ég mun vera lítið hér á næstunni, vona að þið saknið mín ekki um of
![]() |
Fánum stolið af leiði Jóns Sigurðssonar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já sammála þér virðingarleysi .
Gunnar Gunnarsson, 18.6.2008 kl. 19:14
heyrðu á eftir að sakna þín
Gunnar Gunnarsson, 18.6.2008 kl. 19:15
Hjartanlega sammála. Virðing fyrir öðrum er orðin undantekning frekar en regla. Miss you already
Ein-stök, 18.6.2008 kl. 23:41
Þetta er sorglegt dæmi um hnignun þjóðar sem gleymir uppruna sínum...
Haraldur Davíðsson, 19.6.2008 kl. 00:50
Takk Gunnar og Ein-stök
, ég mun líka sakna ykkar.
Ég mun nú samt kíkja inn annað slægið, en næstu 3 vikurnar verð ég með mömmu og pabba hjá mér! Ég er að deyja úr spenningi, fer af stað til að sækja þau eftir c. klukkutíma!
Sporðdrekinn, 19.6.2008 kl. 01:52
Njóttu foreldrafaðms og kjarnans.
Sakn sakn ...
www.zordis.com, 19.6.2008 kl. 08:14
Tek undir með Zordísi - njóttu þess að vera með foreldrum þínum
Hlakka til að heyra frá þér þegar færi gefst.
Ein-stök, 19.6.2008 kl. 11:26
Á eftir að sakna þín og til hamingju með daginn
Huld S. Ringsted, 19.6.2008 kl. 15:58
til hamingju með daginn
Hólmdís Hjartardóttir, 19.6.2008 kl. 22:29
Sammála þér - virðingarleysi.
Dísa Dóra, 20.6.2008 kl. 10:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.