Hálf tómt í kotinu

Nú eru mamma og pabbi farinn Crying, það er því hálf tómt í kotinu. Við áttum yndislegar stundir á meðan að þau voru hér.

Minnsti unginn brast í grát í gærkveldi þegar að hann var að fara að sofa "Ég sakna ömmu og afa" sagði hann þegar að ég spurði hvað væri að. Hann hafði fengið hana ömmu sína til að kúra hjá sér flest kvöld á meðan að hún var hér, ég veit að það var það sem að hann vantaði í gær. Mamma er yndislega mjúk og góð kona, hún fékk sig ekki til að fara frá honum fyrr en að hann var sofnaður og þá iðjulega með litlu puttana sína flækta í hárinu á henni.

Við finnum öll fyrir tómarúmi núna, það er hálf erfitt að koma rútínu á hlutina aftur.

Ég sakna þess að hafa angandi kaffi ilm í húsinu, en pabbi var með könnuna í gangi mest allan daginn. Ég sakna þess tíma sem að við mamma áttum saman, sitjandi úti undir stjörnunum flissandi eins og smá stelpur, leysandi gátur alheimsins og sudoku.

Við munum hittast aftur á næsta ári, en vá hvað það er langt þangað til. Á næsta ári!.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Elsku dúlla, það er alltaf vont þegar tómarúmið fyllir húsið!  Kaffi ilmurinn og nærvera foreldra eru yndisleg en þegar upp er staðið þá er árið ekki svo lengi að líða!

Ég sé það best þegar ég horfi á tímans tákn í vexti barnanna.  Knús á þig kæra og vonandi eru sátt og sæl OG tilbúin í allt.

www.zordis.com, 14.7.2008 kl. 16:26

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 14.7.2008 kl. 16:30

3 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

Kvitt kvitt gangi vel.

Gunnar Gunnarsson, 14.7.2008 kl. 17:07

4 Smámynd: Dísa Dóra

Dísa Dóra, 14.7.2008 kl. 17:49

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Það er rétt Zordis árið er ekki svo lengi að líða, það eru bara fyrstu dagarnir og vikurnar sem sligast áfram.

Tilbúin eða ekki tilbúin, hér hefur verið tekið á hlutunum en ekki er allt orðið eins og Sporðdrekinn óskar sér. En enn er unnið í hlutunum og þá er alltaf von.

Knús á ykkur Öll kæru BloggVinir  og takk fyrir innlitið!

Sporðdrekinn, 14.7.2008 kl. 17:53

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 14.7.2008 kl. 23:45

7 Smámynd: Ein-stök

Mikið er nú yndislegt að lesa þessar lýsingar af ykkar tíma saman  Frábært hvað þið höfðuð það gott. Ég skil vel að þér þyki eitt ár langur tími núna en það er líka af því að þú ert svo heppin að hafa mikils að sakna  

Gangi þér vel við VINNUNA

Ein-stök, 15.7.2008 kl. 10:13

8 Smámynd: Sporðdrekinn

Takk Ein-stök

Sporðdrekinn, 15.7.2008 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband