Mín stakk líka af :o(

 Þegar að við hjónin vorum búin að koma okkur fyrir í okkar fyrstu íbúð í NY komst Sporðdrekinn ekki hjá því að taka eftir öllum meðleigjendunum. Þessir meðleigjendur borguðu ekki leigu og fóru og komu eins og þeim sýndist. Þeir komu aðallega í myrkri og fóru í ljósi. Þeir voru í öllum stærðum og létu þeir stærstu heyra vel í sér þegar að þeir stukku af stað til að fela sig. Nei við þetta gátum við ekki búið, en það var sama hversu oft var eitrað alltaf komu þeir aftur. Já þetta voru kakkalakkar, ógeðsleg kvikindi sem fara alstaðar og bera allt með sér  Sick

Við brugðum við með því að fá okkur eðlu. Ég var nú ekkert allt of hrifinn af hugmyndinni fyrst, bjóst reyndar ekki við miklu, hvernig átti ein lítil eðla að borða alla þessa bjakkalakka!? En svo fór heilinn af stað og ég gerði mér grein fyrir því að ég hafði nú búið í stuttan tíma í landi þar sem að eðlur löbbuðu inn og út úr íbúðinni minni eins og þeim hentaði og þar var ég fegin að hafa þær. Þær héldu jú skorkvikindunum í skefjum.

Svo úr því varð að við hjónin fórum í dýrabúð og keyptum krúttlega eðlu. Þetta var gecko eðla, hún/hann var falleg á litinn. Við gáfum henni nafn og þar með var hún orðin hann, köllum hann bar G hér.

G sinnti sínu starfi vel og ekki leið á löngu þar til að hann hafði komið því svo við að engir bjakalakkar voru eftir í okkar íbúð og þeir sem bjuggu í næstu íbúðum þorðu ekki fyrir sitt litla líf að koma í heimsókn. Þetta var ÆÐI! En.... elsku G hafði nú ekkert að borða! Hvað skyldi nú til bragðs taka? Ég var að spá í að leigja hann nágrönnunum fyrir gott verð en var hrædd um að fá hann ekki til baka

Svo að Sporðdrekinn vað því fasta kúnni í dýrabúð að kaupa í matinn fyrir G. G var sólkinn í engisprettur, þessi elska tók á móti mér við dyrnar þegar að hann heyrði í matnum sínum.

En svo urðu miklar breytingar í lífi Sporðdrekans og gleymdist of oft að koma við í dýrabúð á leiðinni heim frá vinnu. Dýrabúðir voru ekki opnar jafnlengi og matvöruverslanir okkar mannanna og því var G orðin ansi svangur.

Það kom að því að hann lýsti óhamingju sinni í verki og stakk af! Ég horfði á eftir "vini" mínum og hreinsitækni lalla sér út um gluggann hjá okkur. Æ hvað ég varð leið, tárin streymdu niður kinnar mínar og samviskubitið nagaði hjartað. Hvað verður nú um hann? Spurði ég Ljónið, "Elsku Sporðdreki minn, það er nóg að éta fyrir hann þarna úti og inni í næstu íbúðum". Já ok það er gott að hugsa um þetta svona.

Ég sannfærði mig því um að G væri bara glaður með þetta allt samann. Og núna þegar að ég hugsa um G sé ég fyrir mér stóra og mikla eðlu kjaga sadda um götur NY borgar Cool

 

En ég vill koma því fram að ég skil ekki hugsunarháttinn hjá fólki sem smyglar dýrum inn í landið okkar! Þarna er verið að taka áhættu, áhættu sem að enginn á ekki að leyfa sér að taka.


mbl.is Eðla á ferð í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Eðluanginn ... einhver sár núna!

Kakkalakkakrakkar .... piff og bjakk!

www.zordis.com, 16.7.2008 kl. 17:17

2 Smámynd: Skattborgari

Þetta eru skemmtileg gæludýr mér finnst að það eigi að leyfa að flytja svona eðlur inn. Þú gætir þá fengið þér sporðdreka sem gæludýr.

Skattborgari, 16.7.2008 kl. 17:32

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

eðlur eru nú dálítið sætar....

Hólmdís Hjartardóttir, 16.7.2008 kl. 20:08

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég piffa og bjakka með þér Zordis

Það væri nú ekki mikið mál fyrir mig að ná mér í sporðdreka þar sem að ég bý núna Skattborgari. En eins og þú veist kannski þá eru tveir sporðdrekar á sama heimili oft til vandræða..... Ég veit ekki hvað veldur  

Hólmdís mér finnst það líka.

Sporðdrekinn, 17.7.2008 kl. 02:26

5 Smámynd: www.zordis.com

Takk fyrir fallegu orðin þín! 

Fræin eru yndisleg og ég þakka fyrir mig  .....

www.zordis.com, 17.7.2008 kl. 21:11

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Zordis:

Sporðdrekinn, 18.7.2008 kl. 02:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband