18.7.2008 | 03:54
Ég er tilbúinn!!
Fátt gleddi mig meira (ok ég er að ýkja) en ef að ég gæti keypt heilsubótaefni unnin úr fiskislóg! Fiskurinn er frábær alveg frá a til ö, ég er að segja ykkur það, ég mun kaupa þetta!
Vantar ekki söluaðila í Bandaríkjunum? Látið mig vita
![]() |
Fæðubótarefni úr fiskislógi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
hvad i oskopunum er fiskislog?
Hermann Ingjaldsson (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 12:32
Hefur ekkert með færsluna að gera. En ég bara verð að tjá þá skoðun mína; þú ert hrikalega skemmtileg!
Heiða Þórðar, 18.7.2008 kl. 13:14
Tek undir með Heiðu
Ég var einmitt að enda við að skrifa athugasemd á síðuna hennar um "slöppu handartökin"
Rosalega ertu annars búin að vera dugleg við að lesa Moggann í dag
Takk enn og aftur fyrir skemmtilegt blogg og endalaust yndisleg komment

Ein-stök, 19.7.2008 kl. 00:04
Hermann Ingjaldsson (sagt/skrifað með svona smá "skammastu þín" tón) Lastu ekki fréttina drengur?
Fiskislóg eru afgangar, hryggur og fleira, þú veist þetta vannýtta hráefni. Núna er það að ég held urðað, en það má ekki urða það hvar sem er. Hefur meira að segja verið talað um að setja upp brennslustöðvar fyrir það verk að brenna slógið. Sem að án efa lyktar hryllilega, kallar á allskonar flugur og önnur líknár kvikindi og allt er þetta óhollt fyrir okkur mannfólkið, þá sérstaklega lyktin. Ég vona að ég hafi svarið spurningunni þinni nægi lega vel Hermann I.
E.S. Mína miklu þekkingu um fiskislóg fékk ég úr fyrrgreindri frétt og af þessum glugga: http://www.google.com/search?sourceid=navclient&ie=UTF-8&rls=GGLG,GGLG:2005-51,GGLG:en&q=fiskisl%c3%b3g . Maður kann að bjarga sér
Sporðdrekinn, 19.7.2008 kl. 02:37
Takk!Heiða, ég tek þessu sem miklu hrósi komið frá þér, svona þar sem að mér finnst þú vera hrikalega skemmtileg og alveg temmilega á mörkunum með að vera klúrin. Ég elska svoleiðis húmor!
grrrr... Ég held að það sé sporðdrekinn í mér 
HAHAHA Eins-stök, ég er búin að fara þar inn aftur og lesa skrif þín þar. Hvað segir þú annars, hversu gott var handtakið hjá þér þegar að þú tókst í "höndina" á fyrrverandi vinnuveitanda þínum?
Já ég verð að vera dugleg við eitthvað, ekki fer ég að taka til eða þrífa þvott!
Takk sömuleiðis stelpa

Sporðdrekinn, 19.7.2008 kl. 02:42
ju eg las frettina og thad kom ekkert fram hvad fiskislog er.
rett hja ther ad refsa hverjum theim sem dirfist ad spyrja.
eg skal passa mig i framtidinni a thvi ad vera hraeddur vid thad.
Hermann Ingjaldsson (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 08:15
Ég ætla að taka þessu sem gríni frá þér Hermann svona þar sem að svar mitt til þín var á þeim nótunum. Ég er búin að lesa svar mitt til þín nokkrum sinnum og ég bara get ekki séð hvað við það gæti hrætt þig. Nema þá kannski að þú getir ekki tekið gríni sem beint er að þér. Við lærum ekkert ef að við spyrjum ekki, svo eru sumir sem læra þegar að þeir eru spurðir
Svona þar sem að ég er smá forvitinn, hver var refsingin?
Sporðdrekinn, 19.7.2008 kl. 13:16
Var þetta ekki eins og sannur sporðdreki að svara.. HANDTAKIÐ var þétt og gott.. ég hef sko engin vettlingatök við hlutina
Ein-stök, 19.7.2008 kl. 13:46
Sporðdrekinn, 19.7.2008 kl. 13:51
"Svona þar sem að ég er smá forvitinn, hver var refsingin?"
thvi var haldid fram ad eg aetti ad skammast min fyrir ad hafa spurt.
Hermann Ingjaldsson (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 17:00
Hermann I.: Ég skrifaði "(sagt/skrifað með svona smá "skammastu þín" tón)".
Mér þykir þú nokkuð hörundssár ef að þér finnst þetta vera refsing. Refsing væri ef að ég hefði bannað þér að koma inn á bloggið mitt og lesa
Sporðdrekinn, 20.7.2008 kl. 02:53
mer thykir svo ekki.
mer thykir thad neikvaett ef folk segir ad eg eigi ad skammast min, kallar mig dreng og gefur i skyn ad eg geti ekki bjargad mer.
hvort ordid se refsing eda eitthvad annad er ekki pointid.
Hermann Ingjaldsson (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 09:41
Já ok, Hermann. Ég er búin að reyna hér nokkrum sinnum að benda þér á að þetta sé grín, ef að þú nærð því ekki þá er ekkert meira sem að ég get gert. Nú þekki ég þig ekki neitt, en ef að þú ert þessi alvarlega típa sem getu rekki gert grín að sjálfum sér þá vill ég benda þér á að hugsa málið. Það er svo miklu skemmtilegra að lifa lífinu ef að maður hefur húmor fyrir sjálfum sér.
Eigði yndislegan dag og ævi.
Sporðdrekinn, 21.7.2008 kl. 18:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.