Bara svona ef að þið voruð ekki viss

 Halo

SporðdrekiSporðdreki: Þú skiptir miklu máli og heldur áfram að gera það eftir þinn tíma. Þú gefur frá þér svo sterka ást að hún getur teygt sig út yfir alheiminn og eilífðina.

 

Eftir minn tíma! Hver segir að það verði einhvern tíman tími eftir mig? Hver veit, kannski er ég ódauðleg! Ég verð alltaf 23 ára gömul sexy og hot Sporðdreka skutla Devil

En svona án als gríns, þá geri ég mér alveg grein fyrir því að ég muni einhvern tíman deyja.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta er nú það eina sem við vitum fyrir víst.....þetta tekur enda

Hólmdís Hjartardóttir, 19.7.2008 kl. 11:04

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Ó já Hólmdís svo er víst.

Lífið er erfitt, það gengur af öllum dauðum sem reyna það.

Sporðdrekinn, 19.7.2008 kl. 13:07

3 Smámynd: Ein-stök

Mér finnst einhvern veginn að bestu bitarnir úr þessari spá séu ekki "virtir viðlits".. comm'on.. Þú skiptir miklu máli ... og  Þú gefur frá þér svo sterka ást að hún getur teygt sig út yfir alheiminn og eilífðina.

Hljómar rosalega vel og ég er sannfærð um að þetta er alveg rétt um þig mín kæra

Ein-stök, 19.7.2008 kl. 13:51

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Ein-stök:

Sporðdrekinn, 19.7.2008 kl. 14:03

5 Smámynd: www.zordis.com

Við erum eilíf og sál okkar mun halda áfram eins og fegursta rós og þú ert falleg kona!  Sporðdreki og hot kvendi!

Lífið er augnablik og við tökum þátt hver á okkar hátt, með kærleikanum vinnum við á og skiljum eftir fegurð fyrir heiminn.  Ekki veitir af

www.zordis.com, 19.7.2008 kl. 14:57

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Já, ég trúi því reyndar líka að sálir okkar svífi um og hjálpi okkar fólki. Það liggur nú bara við að ég roðni undan gullhömrunum  Takk fyrir mig

Þetta er rétt hjá þér, ekki veitir af smá kærleika og ást í heiminn.

Sporðdrekinn, 20.7.2008 kl. 02:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband