5.8.2008 | 04:57
Að takast á við sorgina - Cute
Ástarsorg er missir, að missa einhvern sem að við elskum hvort sem að það er vegna höfnunar eða vegna andláts getur verið mikil sorg. Sorg getur tekið mikið á, þá bæði andlega og líkamlega. Þetta veit ég af eigin raun og ég vona að þið sem að eigið vini, kunningja eða ástvini sem lenda í ástarsorg, gerið ykkur grein fyrir þessu.
Mér finnst þetta því stórgóð hugmynd hjá þessum Austurríkjamönnum/konum, ég vona að ráðgjöfin þeirra sé jafn góð og hugmyndin.
Sporðdreki: Þú ert vitrari en aldur þinn segir til um, en það þýðir ekki að þú viljir nýta þér viskuna. Þú ert mjög unglegur á marga vegu og fólki finnst það heillandi.
Jú jú það getur verið voða gaman þegar að fólk heldur að maður sé yngri en að maður er. En ég er nú samt stundum að spá í það hvort að kona á mínum aldri (komin mjög nálægt 40) eigi að vera kölluð "Sweetie", "Cute" og svipuðum nöfnum og það meira að segja af ókunnugum
Kannski verð ég alltaf nær því að vera eins og unglingur en eins og hinar mömmurnar. Því heldur elsti-Unginn minn alla veganna fram
![]() |
Aðstoð í ástarsorg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
vona að þetta virki þar sem að ótal einstaklingar lenda í hræðilegum sálarkvölum vegna missis. Við eigum ekki að þegja tilfinningar okkar í hel eins og tíðkaðist í gamla gamla daga þegar mamma var ung og amma ungpía!
Held að "cute" sé ekki alveg það sem mín eyru þyldu en "why not" annað slagið er næs að fá sæt orð í eyra!!!
Sólskíns knús frá "bráðnandi klakanum" ..............
www.zordis.com, 5.8.2008 kl. 10:30
Við erum nú voðalega mikil KRÚTT....ha..er það ekki...????.....hehe..
Agnes Ólöf Thorarensen, 5.8.2008 kl. 12:03
Sorg vegna skilnaðar er ekki minni en við andlát. þoli ekki þegar ókunnugir kalla mig "vænan" eða álíka
Hólmdís Hjartardóttir, 5.8.2008 kl. 13:28
Eins og Zordis segir þá er næs að fá sæt orð í eyra annað slagið og jú Agnes við erum allar voða mikil krútt. Og þetta er allt blessað og gott á meðan að það eru okkar nánustu sem annað hvort hvísla eða hlæja þessum orðum í eyru okkar. En eins og Hólmdís segir þá eru það þessir ókunnugu sem ættu ekki að nota þessi nöf á mann.
Dæmi: Ég fór með bílinn minn á verkstæði um daginn og þegar að ég kom að sækja hann sagði maðurinn sem var að afgreiða mig áður en að ég skrapp frá "Hi Sweetie" Mér leið svona

Sporðdrekinn, 5.8.2008 kl. 16:52
Eru BNA ríkin ekki alveg spes í svona gullhömrum (veit ekki hvort þetta sé rétt skrifað) ..... Man þegar ég var þarna þá fannst mér allt svo miklu meira gerfi, svona falskt yfirbragð.
Þegar ég var í bna þá man ég eftir að fólk gat látið þig vera eitthvað sérstakt bara með orðum og athygli en þegar betur var að gáð þá var þetta bara þeirra leið! ........ Sammála Hólmdísi, það er ekki sama hver rignir yfir þig dúlluorðunum!
www.zordis.com, 5.8.2008 kl. 19:21
wow, ég er farin að endurtaka mig ..... gamli góði vínyllinn farinn að rispa
www.zordis.com, 5.8.2008 kl. 19:22
Jú þið eruð krútt.
Gunnar Gunnarsson, 5.8.2008 kl. 19:54
Ég er alveg sammála þér Zordis, stundum talar fólk hér með svotan sykurtón að ég fæ illt í tennur og eyru
En málið fyrir mig er að ég er ekki krakki, ég er fullorðin kona, þótt að ég sé lávaxin og fíngerð.
Ó Gunnar minn, þú ert líka krútt
Sporðdrekinn, 6.8.2008 kl. 02:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.