6.8.2008 | 03:49
Smá útskýring frá mér
Ég hef ekki verið að segja mikið um líf mitt undanfarið. En hér er smá sem að kannski útskýrir málið pínu:
Er doðinn umlíkur líkama og sál
Og hamingjan virðist Sporðdrekanum hál.
Er börnin búa við þungbúna móðir.
Að ég bið þig um aðstoð,
Guð vertu svo góður.
.
Hvar er sú kona sem eitt sinn ég þekkti.
Þegar að stutt var í hlátur og púka glettni.
Ég bið þig um aðstoð,
Guð vertu svo góður.
Ég fór í ræktina tvisvar sinnum í dag. Í fyrra skiptið til að koma mér út úr rúminu og í seinna skiptið til að halda mér frá rúminu. Svo ef að mér fer ekki að líða betur andlega þá verður líkaminn alla vega voða flottur.
E.S. Ég veit ekki af hverju en ég get ekki minkað eina línuna, sama hvað ég reyni hún vill ekki vera í sömu stærð og hinar. Kannski er það vegna þess hversu hátt ég bið.
Sporðdreki: Rífðu upp stemninguna í kringum þig, líka hvað varðar líkama þinn, föt, heimili og bíl. Ef þér líkar efnisheimurinn þinn, ertu rólegur hið innra.
Já er það ekki! Nú er stjörnuspáin farin að segja mér að taka til!
Athugasemdir
....allt tekur enda, allt líður hjá......
....hjálpin er að hálfu leiti falin í að biðja um hana...hitt er að trúa á sjálfan sig og þá sem gefa sig að þér...
Haraldur Davíðsson, 6.8.2008 kl. 18:11
Vonandi lidur thettad hja,eg thekki thessa tilfinningu lika mjog vel.Og bara ad lesa thettad hja ther kom mer i gang med ad sinna plontunum minum sem eg hef aetlad ad gera a hverjum degi en bara hef ekki threkid i thad.Nu aetla eg ad skella i thaer naeringu sem orugglega naerir mig i leidinni.
Gangi ther vel.
Ásta Björk Solis, 6.8.2008 kl. 18:25
Sendi þér alla þá orku sem ég á yfir hafið. Ég týndi sjálfri mér fyrir 8 árum.
Hólmdís Hjartardóttir, 6.8.2008 kl. 23:32
Já þetta er rétt hjá þér Haraldur.
Takk Ásta B. og sömuleiðis.
Takk Hólmdís, bæði fyrir orð þín og rós. Ég vona að þú sért búin að finna þig.
Sporðdrekinn, 6.8.2008 kl. 23:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.