Sjaldan eða aldrei fundist ég svona glötuð mamma! )o;

Ljónið og ungarnir voru að fara í fimm daga ferðalag til annars lands. Öllum er búið að hlakka mikið til og ekki síst mér að fá þennan tíma til að rækta sjálfið.

Það þurfti að vakna um miðja nótt fyrir ferðina allir búnir að pakka og spennan gífurleg. Ég vaknaði án vekjaraklukkunnar með vonda tilfinningu í maganum "vegabréfin". Æ slakaðu á kona, sagði ég við sjálfa mig, þú veist hvar þau eru svo lúrðu nú þangað til klukkan hringir. En ég fékk ekki frið fyrir þessari vondu, vondu tilfinningu að eitthvað væri ekki í lagi. Ég skopaðist því niður til að ná í vegabréfin, jú jú þarna voru þau allt í góðu núna.?

En samt var eitthvað að, hvaða óróleiki er þetta í þér kona? Spurði ég sjálfa mig. Skoðaðu þá bara dagsetningarnar þetta er allt í góðu.

NEI!!!!

Ó nei, ó nei, ó nei, ó nei, hvað hef ég gert?!?

Vegabréf yngsta ungans er útrunnið!!!

Hálf skælandi og stjörf færi ég Ljóninu fréttirnar.

NEI!! Það getur ekki verið! Ó Guð nei! Ertu alveg viss?!? Hann horfði á mig með örvæntingu og von í augum.

Skoðaðu bara sjálfur. Það skipti ekki máli hversu oft við skoðuðum dagsetninguna hún breytist ekki. En hvað með Íslenska vegabréfið hans? Sagði Ljónið. Er það OK?! Ég gat varla kreist orðið "nei" út fyrir varir mínar.

Það varð að koma þeim sem voru að fara út á flugvöll svo að ungarnir voru vaktir og þeim sagðar fréttirnar. Unginn litli tók þessu furðulega vel, ég var hálf hissa. En svo sá hann pabba sinn og fór að hágráta. Þarna stóð Ljónið með ungann í fanginu og þeir grétu báðir. Ég hamaðist við að breyta skipulaginu í töskunum en sá varla fyrir tárum.

Svo nú erum við ein í kotinu ég og unginn minn litli. Honum finnst versta að vera ekki með pabba sínum og svo langaði hann svo mikið að vera á hóteli við ströndina. Mér finnst ég ömurlegasta mamma í heimi. Þessi ferð kom mér reyndar ekkert við að öðru leiti en það að ég vissi að ég þyrfti að pakka fyrir ungana. En ég hefði mátt vita það að ég ætti að spá meira í þessu. Ljónið kennir sér alfarið um, en er hægt að búast við því að hann fari að taka ábyrgð á svona hlutum ef að þeir hafa alltaf verið í mínum höndum? Nei, það er ekki hægt. Þetta er mér að kenna. Og mín hegning er að vita það að ég eyðilagði þessa ferð fyrir barninu mínu. 

Ég er líka einstaklega sjálfselska og fúl yfir því að nú er það ekki bara svo að ég er ekki ein, heldur hef ég enga barna píu og verður því ekkert af neinu sem að ég ætlaði að gera.

Ég mun gera mitt besta til að gera glaða daga fyrir ungann minn. Það er ekki það að það sé ekki yndislegt að vera með honum og að við höfum gott af því að vera bara tvö ein. En planið var annað fyrir okkur bæði.

Ljónið hefur lofað að gera eitthvað með unganum þegar að hann kemur aftur heim. Bara þeir tveir að gera eitthvað spés, það er eins gott að hann standi við það!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ÆÆÆ - en þetta eru mannleg mistök, og ekki þér að kenna!!  Njóttu bara tímans með litla "orminum" og reddaðu svo bara "prófessional" barnapíu þegar þú þarft á að halda!

Edda (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 01:49

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Takk fyrir hughreystingar orðin Edda. Ég mun njóta tímans með unganum það er ekki spurning. En það er annað þetta með barnapíuna, ég treysti ekki ókunnugum fyrir barninu mínu. Ég veit að margir ráða ókunnugar barnapíur en ég bara get það ekki og þar sem að ég hef haft "innbyggða" barnapíu þá hef ég ekki farið út í að ráða mér fasta barnapíu.  

Sporðdrekinn, 23.8.2008 kl. 05:35

3 Smámynd: www.zordis.com

Hrikalega sorglegt fyrir minnsta orminn! 

Hann á vonandi eftir að njóta sín með sætu mömmu, sammála þér með að ráða ekki hvern sem er í b starfið.

www.zordis.com, 23.8.2008 kl. 10:50

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Já þetta er hrikalegt, mig hlakkar til að fá hina heim en um leið kvíðir mig fyrir að sjá andlitið á þeim yngsta þegar að hinir fara að tala um allt sem að þeir upplifðu. Þau plön sem búin voru að gera fyrir þessa ferð eru ævintýri líkast og ekki víst að þeir muni nokkurn tíman gera annað eins, alla vega ekki fyrr en að þeir eru orðnir fullorðnir og borga fyrir sig sjálfir

Sporðdrekinn, 23.8.2008 kl. 18:05

5 identicon

elsku vina ekki kenna þér um þetta

þér að segja þá ferðaðist ég um heiminn i 2 ár með útrunnið vegabréf

og fékk visa á land utan evrópu í þetta vegabréf án vandræða en það var ekki USA að vísu,,, en samt það virkaði 

Mr;Magoo (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 04:35

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Þeir hér voru alveg til í að hleypa honum úr og inn í land aftur, að okkur skildist. En þeir voru ekki vissir um að þeir myndu hleypa honum aftur úr því landi sem að hann var að fara til. Það hefði kostað smá vandamál

Þú virðist hafa prufað ýmislegt, það væri örugglega gaman að heyra ferðasögur þínar.

Sporðdrekinn, 24.8.2008 kl. 06:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband