Íþróttasúlan hennar Hólmdísar

Hún Hólmdís er með þessa frábæru hugmynd um að reisa steinsúlu í Laugardalnum fyrir íþróttafólk. Mér persónulega finnst þetta svo frábær hugmynd að mér þætti synd ef að ekki yrði af þessu. Spurningin er bara: Hvernig verður hugmyndinni hennar Hólmdísar komið á framfæri?

Hér er C/P af síðunni hennar:

REISUM STEINSÚLU Í LAUGARDALNUM MEÐ NÖFNUM AFREKSMANNA Í ÍÞRÓTTUM.

Við  eigum virkilega að halda á lofti nöfnum afreksmanna í íþróttum. Hvað væri glæsilegra eða betur við hæfi en há steinsúla þar sem nöfn afreksmanna í íþróttum væri greypt í stein.  Hafa súluna svo háa að hún  sæist víða að úr borginni. Þetta fólk eru bestu fyrirmyndir sem börn okkar geta átt.  Gaman og verðugt að stefna að því að fá nafn sitt greypt í súluna. Hægt að hafa ljós á toppnum sem aðeins logaði þegar íþróttaafrek hefur verið unnið.  Hvað finnst ykkur?  Við erum öll í silfurvímu......og getum minnst þess í framtíðinni þegar við lesum á súluna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Heyr heyr, þetta er mjög spennandi hugmynd.

Haraldur Davíðsson, 26.8.2008 kl. 00:13

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Já, mér finnst hún snilld!

Sporðdrekinn, 26.8.2008 kl. 00:15

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk, takk..

Hólmdís Hjartardóttir, 26.8.2008 kl. 00:27

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Þakka þér Hólmdís, ég get alveg séð súluna fyrir mér í huganum og hún er svo falleg. Mig hlakkar svo til að sjá hana með eigin augum, ég trúi bara ekki nema af þessu verði!

Sporðdrekinn, 26.8.2008 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband