27.8.2008 | 18:02
Næstum pissaði í buxurnar
Ég var gestur í húsi einu fyrir nokkrum vikum, sá sem að ég var í heimsókn hjá bjó á efri hæð hússins en í kjallara var par með hund. Fyrir aftanhúsið er stór garður og verönd, mjög kósý. Ég ákvað að skella mér út til að anda að mér "fersku lofti". Þegar að ég er búin að loka hurðinni að baki mér kemur eitt stk "Pit bull" stökkvandi upp tröppurnar og stillti sér fyrir framan mig.
"Ekki ver hrædd" hugsaði ég
"Ekki láta hann finna á lyktinni að þú ert alveg að pissa í þig af hræðslu"
Svo að ég fór að tala við hann með skjálfandi röddu "Hæ, hundur", "ó góður hundur".
Auðvitað sagði ég honum að hann væri góður, ég bara þorði ekki annað!
Ég veit ekki hvort að það var gott eða slæmt en ég angaði af hundalykt (var nýbúin að knúsast í Snata). Hundurinn fór að þefa af mér allri og ég bara þorði ekki að hreifa mig, var nokkuð viss um að ef að ég myndi gera það þá myndi hann bíta mig.
Svo allt í einu stekkur hundurinn aftur á bak, skellir rassinum upp í loft, höfðinu niður í jörð og urrgeltir á mig.
Ég ákvað að nú væri nægilega langt á milli okkar til að ég gæti stokkið inn og skellt hurðinni á eftir mér.
Auðvitað fór ég fyrir framan húsið til að anda að mér "hreina loftinu", ég þurfti mun meyra á því að halda núna. Þá tók ég eftir stóru skilti á girðingunni:
"Varúð! Passið ykkur á hundinum!"
E.S.
Gott að ekki fór verr hjá drengnum í fréttinni!
![]() |
Rottweiler kom ungum dreng til bjargar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hundur með hausinn í jörðinni og rassinn uppí loft er í leik. Pitbull bara bítur, ef hann ætlar að bíta.
Annars eru þetta engin gæludýr.....
Haraldur Davíðsson, 27.8.2008 kl. 18:25
Huld S. Ringsted, 27.8.2008 kl. 21:52
Ég lenti í smá aksjón með sjéffer hund ... ekki gaman en þá var einmitt markmiðið að halda kúlinu og bjarga 2 konum sem ferðuðust með mér (viðskiptavinir) og vera með urrandi kjaft við rassinn ... Vænn biti ef hundurinn hefði treyst sér!
Það bara gerist eitthvað við svona scary aðstæður!
www.zordis.com, 28.8.2008 kl. 01:37
Úff stundum verð ég svo hrædd við hunda.....en líkar svo vel við aðra
Hólmdís Hjartardóttir, 28.8.2008 kl. 01:59
Hundar eru tau dýr sem drepa flesta menn í heiminum hvert einasta ár. Flestir hundar bíta aldrei. Enn svo eru hinir sem bíta. Flestum er kent að gera tað og svo sleppa teir eða er sleppt og tetta eru afleiðingarnar.
óli (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 02:44
Það eru ekki hundar sem eru hættulegir heldur fólk, reglurnar eiga ekki að snúa að hundunum heldur eigendunum. Það þarf kunnáttu og tíma stjórnunarhæfileika til að vera hæfur í að vera með stóran hund, og til þess að gera , hvaða hund sem er. Það er hægt að búa til villidýr úr hvaða hundi sem er, það er hægt að ofdekra þá og gera þá óstöðuga, svolítið eins og börn, þau verða það sem þú mótar úr þeim.
Svo er það þessi tegund Pitbull terrier. Hann er ekkert endilega brjálæðingur eins og margir halda, en þarf aga og helst ákveðið hlutverk, hann er ekkert gæludýr og er heimaríkur og frekur á sitt og sína. Hann getur líka verið blíður og góður, fjörmikill og óþreytandi í leik, reiptog við pitbull er ekki góð hugmynd, hann vinnur og það er önnur slæm hugmynd.
Það er nefnilega ekki jafnmikið undir eigandanum komið hvað úr Pitbull verður, því hann getur verið fínn í mörg ár jafnvel, svo einn daginn klippir hann kött nágrannans í tvennt. Þetta á sjaldnast við um Doberman, Schäfer eða Rottweiler, en það eru hins vegar vinnuhundar eins og pitbull, og þurfa aga og hlutverk. En þeir eru ekki svona óútreiknanlegir. Schäferinn t.d. er með lítið hjarta en hefur varðeðli og myndi vaða eld og brennistein fyrir fólkið sitt, eins og Rottweilerinn, Doberman þyrfti smá hvatningu...þótt hann sé snjallasti varðhundurinn, hann hleypir þér inn en ekki út Aftur. Bottom line, það þarf að gera meiri kröfur til þeirra sem ætla sér að eiga stóran og sterkan hund.
Haraldur Davíðsson, 28.8.2008 kl. 03:48
Hef verið bitinn af tveimur stórum Dalmatian hundum þegar ég bjó í Pittsburgh, en ákvað að vera samt ekki hrædd við hunda, en viðurkenni að mér er mein illa við þá tegund en þetta er góður punktur hjá Halla með kunnáttu, stjórnun og tíma. Ótti er til að sigrast á, fólk hræðir mig meira en hundar.
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 28.8.2008 kl. 16:50
Haraldur: Það getur alveg verið rétt hjá þér að hundinum langaði bara til að leika, en hljóðið sem að hann gaf frá sér var sko ekkert "komdu að leika" hljóð. Ég er venjulega ekkert hrædd við hunda, en þarna varð ég hrædd, sjálfsagt vegna þess hversu oft maður heyrir miður góðar sögur af þessari tegund.
Ég er sko alveg sammála þér að það eru eigendurnir sem þurfa að vera heilir til að ala upp heilan hund, í þessu tilfelli þekkti ég hvorki hundinn né eigandann. Svo eru það þessir sem klikkast
Zordis: Kjörkuð lystakona, missir aftur endann í von um góða sölu
Hólmdís: Við verðum víst bara að treysta okkar eigin innsæi, betra að fara of alvarlega en hitt!
Óli: Sumir hundar klikkast líka bara, jafnvel þó að eigandinn sé ok.
Emma: Dalmatian! Ég hélt að þeir væru svo voða góðir..... kannski vegna þess að þeir eru svotan dúllur í Disney myndinni
Ég vona að þetta hafi ekki verið mikið.
Sporðdrekinn, 28.8.2008 kl. 20:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.