Guð minn góður!!

Mannvonskan í heiminum nær enn að koma mér á óvart! Hvernig hægt er að gera svona nokkuð er mér alveg óskiljanlegt. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að ímynda mér hvernig það væri að kveljast til dauða í örbylgjuofni Crying

Ég man þegar að örbylgjuofnar komu fyrst á markaðinn þá voru sögur af gömlum konum sem settu dýrin sín í ofnana til að þurrka þau eða hita. Svona eins og er gert í sveitinni með litlu lömbin, nema hvað þá eru það bakara ofnarnir sem eru notaðir á mjög lágum hita og þeim er ekki lokað!

 


mbl.is Fundin sek um að myrða barn sitt í örbylgjuofni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eitthvað hlýtur að hafa ekki verið rétt gert fyrst dómari hefur fyrirskipað ný réttarhöld. Eigum við ekki að býða með að dæma fyrr en sannleikurinn kemur í ljós. Og ef út í að er farið, kemur sannleikurinn nú ekki alltaf allur í ljós. Saksóknarar geta örugglega "misst" sig stundum eins og sannast hefur oft.

Gunnar (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 23:59

2 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Hún er nú augljóslega ekki í lagi.

Ég þekki eitt svona dæmi héðan frá Íslandi, kona nokkur ( vinkona mín ) sem glímir við alvarlegan geðsjúkdóm myrti dóttur sína og skaðaði son sinn og sjálfa sig.

 Hennar refsing var að koma til sjálfrar sín og átta sig á gjörðum sínum...henni er ekki hægt að refsa frekar.

Hennar verknaður var ekki framinn af illsku, ekki af hatri og henni var alls ekki sjálfrátt, yfirvöldum hafði nokkrum dögum áður verið tilkynnt um að henni væri að hraka hættulega, og hún hætt að taka lyfin sín....en enginn gerði neitt.

Haraldur Davíðsson, 31.8.2008 kl. 00:08

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Geðsjúkdómar eru af ýmsum toga sumir erfiðari en aðrir. Það virðist oft vera eins og að fólk setji "Klikkaðu" stimpilinn á suma geðsjúka. Svo eru það þessir geðsjúkdómar sem að eru svo lúmskir að fólk er dæmt, letingjar, aumingjar eða annað slíkt.

Mér þykir leit að heyra um vinkonu þína Haraldur, ég vona að henni og syni hennar líði vel í dag.

Gunnar: Þetta er útkoman. Fyrri réttarhöld voru ómerkt en þessi standa.

Sporðdrekinn, 31.8.2008 kl. 01:45

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta er bara fárveik kona.....og ekki mun henni líða vel þegar hún áttar sig.  Hryllingur

Hólmdís Hjartardóttir, 31.8.2008 kl. 01:51

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Ef hún áttar sig, maður veit ekki hversu veik hún er.

Sporðdrekinn, 31.8.2008 kl. 03:12

6 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

Úff þetta er viðbjóðslegt að gera en veiku fólki er víst ekki sjálfrátt, en sumir eru líka bara illa innrættir. 

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 31.8.2008 kl. 18:02

7 Smámynd: Dísa Dóra

Fæ alltaf hroll þegar ég les svona og hvað þá þegar verið er að kvelja og myrða lítil algjörlega ósjálfbjarga börn sem eru svo algjörlega upp á okkur komin með að lifa af.

Heimurinn er svo ótrúlega hættulegur börnum að það er í raun kraftaverk ef þau komast ósködduð í gegn um bernskuna.

Dísa Dóra, 31.8.2008 kl. 21:18

8 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Það þarf ekki að vera kraftaverk, það gæti verið sjálfsagt.

Yngstu eru framtíðin, en við látum alltaf eins og enginn sé morgundagurinn.

Haraldur Davíðsson, 31.8.2008 kl. 21:47

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 31.8.2008 kl. 22:13

10 Smámynd: Sporðdrekinn

Það ætti að vera sjálfsagt, en eins grimmur og heimurinn er þá finnst manni það oft kraftaverk að börn skuli lifa af.

Sporðdrekinn, 31.8.2008 kl. 23:57

11 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Vissulega er heimurinn grimmur, við erum grimm, ekki endilega viljandi heldur samdauna.....

Haraldur Davíðsson, 1.9.2008 kl. 01:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband