1.9.2008 | 04:41
Ætli ég eigi eftir að sjá eftir þessu?
Neyðin kennir nakinni konu að spinna.
Í mínu tilfelli hefur hún "kennt" mér að klippa á mér hárið sjálf! Ekki nakta konan sko, heldur neyðin.
Ég fór um daginn og ætlaði að fá Kay (ég skrifaði um hana hér) til að klippa mig og lita, en hún var upptekin og ég hafði ekki barna píu seinna svo að ég fór bara heim í fýlu. Síðan þá hef ég lært að ég er alveg á kúpunni og get því í raun ekki leyft mér að fara í klippingu og litun núna. Ég hef oft "lagað" á mér hárið á milli klippinga og litað líka, sem ég og hef gert núna einu sinni síðan að ég fór í klippingu síðast. Svo að í raun var kominn tími á að láta fagaðila laga hárið á Sporðdrekanum.
En svo datt mér þetta snjallræði í hug í kvöld eftir að ungarnir sofnuðu "Ég klippi það bara sjálf"
Svo að ég tók til þau tól og tæki sem að ég á til: Skæri sem eru ætluð naglaböndum (hárbeitt og fín), einhverskonar hár hnífur, handspegill án handfangs (það brotnaði af), greiða og jú spegill á vegg.
Svo tók ég bara til höndunum, ég verð að viður kenna að klippa hárið á sjálfum sér að aftan er ekki auðvelt þegar að maður sér ekki hvað maður er að gera. Enn... ég lét það ekkert stoppa mig, áfram skal haldið og hárið fauk.
Þegar að ég var farinn að toga í hárið og giska hvar ég ætti að klippa þá flaug þessi hugsun í gegnum hugann á mér "Kannski að ég ætti að fá mér kokteil" hmm "Best að geyma það þar til að þú ert búin, þú átt nú ekkert allt of gott með að gera beina línu núna án alkahóls" ég er nefnilega hænu haus og finn á mér af einu sopa.
Svo að ég bara klippti og klippt og klippti. Annað slagið kallaði ég á ömmu og bað um hjálp, hún var nefnilega vön að klippa á sér hárið sjálf. Og svei mér þá ef að "okkur" hefur ekki bara tekist þetta nokkuð vel.
Ég er allavega með styttra hár en áður!
Þegar að ég hef verið að reyna að lýsa því fyrir Kay hvernig að ég vilji láta hárið á mér líta út hef ég sagt við hana:
"Ég vill ekki vera eins og frú", hún horfði bara á mig eins og að ég væri smá skrítin.
"Ok, ég vill ekki hafa þetta of fínt", þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig svip ég fékk þá.
"Getur þú ekki látið þetta líta út fyrir að vera næstum því slys?".
"Slys!!" Sagði Kay þá
"já, svona ekki of jafnt, hafa lengri lokka hér og þar" Nú var ég farin að tala með afsökunar tón.
Kay hefur farið fram og þó að hárið á mér líti aldrei út eins og "slys" þá hef ég ekki gefist upp á henni. Hún verður frakkari og frakkari í hvert skipti sem að ég kem.
En mér tókst að láta þetta líta út fyrir að vera slys!
Ég vona bar að eftir sturtu og hárþurrku á morgun líti hárið á mér ekki út eins og stór slys!
Ég varð að plata sjálfa mig til að hætta að klippa. "Hey... þú mátt fá þér kokteil og sígó þegar að þú hættir".
Ég er ekki viss hvað ég varð að hvísla þessu að mér oft áður en að ég hlustaði og lagði frá mér vopnin.
E.S.
Það þýðir ekkert að setja út á þetta kokteil og sígó dæmi hjá mér. Mér til varnar þá drekk ég að jafnaði einn kokteil á mánuði og ég var hætt að reykja. En svo dundu ósköpin yfir og ég byrjaði aftur, en ég mun hætta aftur þegar að mér hentar.
Athugasemdir
Það er gott að setja mörkin, kokteill eða klipping!
Þú ert örugglega mjög smart og gæti trúað því að göngulagið væri eins og fimur köttur .....
Sólskinskveðjur af klakanum.
www.zordis.com, 1.9.2008 kl. 09:03
Hvergi verður hamingjan fundin,handa þér, ef þú getir ekki fundið hana í sjálfum sér.
Átt þú góðan dag.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 1.9.2008 kl. 09:15
hva fáum við ekki fyrir og eftir myndir
Dísa Dóra, 1.9.2008 kl. 09:15
frábær lýsing
Hólmdís Hjartardóttir, 1.9.2008 kl. 10:08
Góð
.
Gunnar Gunnarsson, 1.9.2008 kl. 14:01
Well done! Ég er hárskeri að mennt og ég get ekki klippt sjálfan mig, kokteill eða ekki kokteill..............
Haraldur Davíðsson, 1.9.2008 kl. 14:52
á þurfti eiginlega að hleypa þér í hausinn á mér... ég vil líka hafa hausinn á mér slys
Linda litla, 1.9.2008 kl. 22:30
Zordis: Já veistu ég er ekkert frá því að höfuðið hafi verið borið aðeins hærra í dag og göngulagið bar með sér öryggi
Anna: Þetta er mikið rétt, ég er að reyna að læra og muna þetta. Ég vona að þú hafir átt góðan dag
Dísa D.: Veistu hvað, ég á ekki myndavél! Ég átti tvær, einni var stolið og hina missti ég í gólfið og nú virkar hún ekki
Hólmdís: Takk
Gunnar: Takk
Haraldur: Ég er nú ekkert viss um að þú myndir segja "Well done" ef að þú sægir á mér hárið
En sem betur fer vill ég hafa það villt og skrítið helst engar beinar línur. Ég er nokkuð viss um að þú gætir klippt svona eftir kokteil og með lokuð augun 
Linda: Hurru elskan ekkert mál, komdu bara
Annars gæti þú skipt um skoðun ef að þú sægir á mér hárið 
Sporðdrekinn, 2.9.2008 kl. 00:29
Er ekkert viss um það, ég er alltaf opim fyrir nýungun varðandi hárið á mér
Hárið á mér hefur verið með alla liti t.d. reyndar ekki síðustu árin... en ég er alltaf til í að prófa allt.
Linda litla, 2.9.2008 kl. 05:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.