Ég er að spá í að henda myndavélinni í gólfið!

Smá framhald frá fyrri færslu: 

Ég varð nú að taka skæri í hönd og aðeins klippa inn í hárið á mér hér og þar eftir þvott og þurrk í morgunn. Ég verð að viðurkenna að mér kveið smá fyrir að sjá hvað ég hafði gert Undecided

En svei mér þá ég er bara nokkuð ánægð með hárið á mér, svo að annað hvort er ég að missa vitið og enda eins og reitt hænurassgat eða ég er búin að finna góða leið til að spara. Annars koma systir mín og mágur til mín bráðum Grin og þau munu segja mér sannleikann. Annað hvort kemur "Ó elsku systir mín á ég að lána þér fyrir klippingu" eða "Hey! Cool, flott hjá þér". Nú er bara að bíða og sjá  Wink

Ég snéri mér í hringi fyrir mákonu mína í dag og spurði "Hvernig finnst þér?"

"Fínt" Var svarið sem að ég fékk.

"Ég gerði það sjálf...."

"Hvernig sástu hvað þú varst að gera?!?"

"Ég sá það ekki"

"Ó, ok, veistu að þú ert með tvo lengri lokka að aftan?..."

"Já, ég vill hafa það svona"

"Ok, vildi bara vera viss, þetta er fínt"

Ég tek það fram að mákona mín vinnur á mjög virtum stað og allt er fínt og pússað alstaðar hjá henni. Hún er svona fín kona (svona eins og ég sagði Kay að ég vildi ekki vera Wink), hún er ekkert snobb eða neitt svoleiðis en hún er heldur enginn ég Tounge

Þegar að ég var búin að taka mig til fyrir ræktina í dag fékk ég smá fiðrildi í magann "Ætli Ljónið verði þar..." (hann er þar stundum). Ég lagaði hárið extra vel, sérstaklega extra þar sem að ég var nú bara að fara í ræktina Tounge Ég lagaði líkamsstöðuna og ég sver að ég hækkaði um 20 cm, svo lagði ég af stað.

En ekki var Ljónið á staðnum. En skítt með það mér leið vel og það er það eina sem skiptir máli.... ekki satt?

 

Svona þar sem að Dísa Dóra bað um myndir fór ég að ath með myndavélina sem enn ekki virkar. Ég er mikið að spá í að henda henni bara aftur í gólfið og ath hvort að hún lagist ekki bara við skellinn Whistling

E.S. Þó að ég tali um að ég eygi ekki fyrir klippingu þá er ég nú ekki alveg svo krúnk, en mér finnst gott að geta sparað þegar að peningarnir eru ekki að flæða inn. Ég tala nú ekki um þegar að það snýr að mér....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Það hefði verið það fyrsta sem ég hefði prófað, að ´henda henni aftur í gólfið...

Haraldur Davíðsson, 2.9.2008 kl. 03:53

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Já er það ekki Haraldur   Ég man að pabbi var/er vanur að berja í sjónvarpið, sparka í frystikistuna og slá í hnakkann á mér   Ég tek það fram að ekkert af þessu virkaði

Svo að kannski ég hendi henni bara í gólfið

Sporðdrekinn, 2.9.2008 kl. 04:19

3 Smámynd: Linda litla

ha ha ha ég man eftir sjónvarpinu heima hjá pabba og mömmu þegar ég var krakki, það þurfti líka að berja aðeins í það

Annars.... til hvers að eyða pening í klippingu ef að maður getur klippt sig sjálfur ??

Linda litla, 2.9.2008 kl. 05:55

4 Smámynd: Dísa Dóra

Vildi að ég gæti klippt mig sjálf - hárið vex eins og arfi og ég mundi spara umtalsvert með að klippa mig sjálf.

Knús til þín skvís - látt vélina vaða og krossum putta fyrir að eftir það fáum við mynd

Dísa Dóra, 2.9.2008 kl. 09:07

5 Smámynd: www.zordis.com

Látt´ana gossa!

Eða einhver af ungunum gæti tekið hana í sundur og reynt heimaviðgerð.

Ekki amalegt að fá myndir ..... tala nú ekki um 20cm stærri myndir.  Njottu dagsins

www.zordis.com, 2.9.2008 kl. 09:32

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

  er ekki alveg viss um að þessi aðferð þín virki best á vélina en mann langar stundum

Hólmdís Hjartardóttir, 2.9.2008 kl. 10:33

7 Smámynd: Sporðdrekinn

Segðu Linda

Dísa D. og Zordis: Ég er enn að telja í mig kjark, ég mun hugsa til ykkar þegar að vélin er í loftinu 

Ef að einhver tekur hana í sundur þá verðu það ég. Ég missti einu sinni vídeóvélina í gólfið (ég veit brussa) og auðvitað hætti hún að virka. Hana lagaði frú Sporðdreki, ekkert mál Ég man að svipurinn á Ljóninu var ekkert allt of jákvæður þegar að hann kom að mér með opna vélina hehehe en allt fór vel.

Heldur þú ekki Hólmdís? Ég er búin að hrista hana fram og til baka, og hóta henni lendingar á gólfinu en ekkert virkaði

Sporðdrekinn, 2.9.2008 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband