6.9.2008 | 19:51
Ég var klukkuð
Þar sem að Sporðdrekinn kemur ekki undir sínu rétta nafni hér þá vill hún ekki gefa upp of mikið af upplýsingum um sjálfa sig. Ein aðferð sem að hún notar til að halda sér í smá fjarlægð er að tala um sjálfa sig í þriðjupersónu .
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Allskonar þjónustustörf
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
Það er fullt af myndum sem að ég get horft á aftur og aftur, en ég man aldrei nein nöfn.
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Reykjavík, Kópavogur, USA og eyja í nafnleynd.
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
House, Law and order (þeir eru nokkrir), svo er einhver sjúkrahúsþáttur sem að ég man ekki nafnið á.
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Spánn, Króatía, Danmörk, Svíþjóð.
Fjórar síður sem ég heimsæki daglega(fyrir utan bloggsíður)
mbl.is,
Fjórir staðir sem ég mundi helst vilja vera á núna:
Heima hjá mér, Ísland, Hawaii, Egiptaland.
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Ég hef ákveðið að klukka engan.
Athugasemdir
samt finnst mér ég vera byrjuð að þekkja þig..............þetta er skrýtið. Stundum sé eg eftir að blogga undir nafni.
Hólmdís Hjartardóttir, 6.9.2008 kl. 19:55
æi............................Ester við getum haft ýmsar ALVÖRU ástæður til að vera í felum. Elsku Sporðdreki keep on
Hólmdís Hjartardóttir, 6.9.2008 kl. 20:12
Hólmdís: Ég held að það sé ekkert skrítið, mér finnst ég líka vera farin að þekkja þig. Segjum að ég heiti Rósmunda og ég bloggi undir því nafni, það breytir samt ekkert hver ég er. Ég er alltaf ég og það sem kemur uppá hjá mér breytist ekki með nafnbreytingu.
Mér þykir gott að hafa þig sem bloggVinkonu
Sporðdrekinn, 6.9.2008 kl. 20:14
Sömuleiðis Sporðdreki og áða elskum við dr. House. Svo það myndi bara skapa vandræði að hitta hann saman undir réttum nöfnum
Hólmdís Hjartardóttir, 6.9.2008 kl. 20:25
báðar.....................arrgh
Hólmdís Hjartardóttir, 6.9.2008 kl. 20:25
híhíhíhí klukkaði þig einmitt af forvitni yfir hvort þú létir eitthvað uppi eða svaraðir þessu yfir höfuð

En við gætum greinilega horft eitthvað á tv saman
Dísa Dóra, 6.9.2008 kl. 20:31
Ester: Ég veit ekki alveg hvernig ég á að svara þér. Ég hef lesið athugasemdir þínar við önnur blogg svo að ég veit að þú ert ekki kjáni, en þessi athugasemd þín er kjánaleg að mínu mati.
Þetta með klukkið, mér finnst ég ekki hafa rétt á að klukka einhvern ef að ég er ekki tilbúin til að setja allar mínar upplýsingar inn sjálf.
Sporðdrekinn, 6.9.2008 kl. 20:34
Klukk svörin þín duga mér..............en ég er skotin í Dr.House.
Hólmdís Hjartardóttir, 6.9.2008 kl. 20:40
Ég hef sterka tilfinningu fyrir því að við höfum upplifað svipaða hluti í lífinu. Trúðu mér á endanum gerir þetta okkur sterkari..................hjá mér er það búið að taka langan tíma....en ég hef upplifað frelsi.
Hólmdís Hjartardóttir, 6.9.2008 kl. 20:50
Það er búið að vera að "trufla" mig hérna en ég ætla nú að reina að klára að svara ykkur snúllur.
Hólmdís: Takk fyrir stuðninginn, ég er ekkert að hætta
Nei nei þú mátt alveg eiga hann, svona á meðan að ég get horft á hann í fjarska
"Það sem ekki drepur okkur styrkir okkur", ekki satt. Ég sagði við mömmu mína um daginn "Mamma, mér finnst ég alveg vera orðin nógu sterk, getur þetta ekki bara farið að hætta núna". Mamma snúlla sagði bara "Það verður ekki meira lagt á þig en þú þolir dóttir mín duglega".
Frelsi, ró og friður í hjarta, þetta er það sem að ég þrái.
Knús til þín
Dísa Dóra: Mér datt það í hug, ég svona hálf tísti hérna fyrir framan skjáinn "Hvað heldur hún að gleymi mér"
Kom þú til mín það eru miklu fleiri stöðvar hér
Ég á popp!
Sporðdrekinn, 6.9.2008 kl. 21:18
Sporðdreki......................
takk fyrir House.................hann er mím týpa
Hólmdís Hjartardóttir, 6.9.2008 kl. 21:44
Ester: Ég vill ekki að fólk viti hver ég er, ég tala hér oft um mjög persónulega hluti og blanda þar inn í frásögn mína fólki sem að vill eflaust ekkert að aðrir viti hvað þeir eru að gera eða af hverju. Og þó að klukkið sé bara saklaus leikur, finnst mér ég ekki hafa rétt á að biðja aðra um að gera sem að ég sjálf er ekki tilbúin til að gera.
Þú pirraðir mig ekkert, ég var bara svolítið hissa. Þegar að fólk er að setja inn færslur á veraldarvefinn og gefur öðrum tækifæri á að svara, þá tekur maður því sem kemur, svo að það er ekkert að afsaka.
Sporðdrekinn, 6.9.2008 kl. 22:36
Hólmdís mín, það er ekkert að þakka
This is what friends are for 
Sporðdrekinn, 6.9.2008 kl. 22:39
Takk fyrir sömuleiðis Ester
Sporðdrekinn, 6.9.2008 kl. 22:49
Ég var líka klukkuð en gleymdi því ....
www.zordis.com, 7.9.2008 kl. 11:45
Takk fyrir að fá að hafa þig.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 7.9.2008 kl. 19:41
Takk sömuleiðis fyrir að fá að hafa þig Anna Ragna
Sporðdrekinn, 7.9.2008 kl. 21:16
Mig langar að koma með smá athugasemd. Hér tjáir sig einhver Ester sem er rétthent stelpa á miðjum aldri sem hefur áhuga á mannfólkinu og virði skoðanir annara. Meira vitum við svosem ekki um hana. Hún birtir á blogginu sínu mynd af einhverri manneskju, sem gæti verið hver sem er. Samt leyfir hún sér að gagnrýna sporðdrekann fyrir nafnleynd með athugasemdum á borð við en ég get ekki af því gert en mér finnst alltaf 1/2 duló þegar fólk er í svona miklum feluleik, ég hef það alltaf á tilfinningunni að það hafi eitthvað að fela, en auðvitað kemur mér ekkert við hvað aðrir gera. Það er ekki í mínu eðli að vera með leiðindi en mér finnst Ester ekkert minna í felum en sporðdrekinn.
Markús frá Djúpalæk, 9.9.2008 kl. 17:11
Það er til fólk sem má tala hvernig sem er um annað fólk, en um leið og einhver leyfir sér að segja eitthvað um það sjálft missir það sig í skæting. Góðar stundir sömuleiðis.
Markús frá Djúpalæk, 9.9.2008 kl. 18:38
Sæl Ester, eina ferðina enn. Ég er sallarólegur líka og já, ég er ágætismannþekkjari. Mér fannst eðlilegra að setja þetta hérna inn í framhaldi af því sem þú sagðir um síðuhöfund; það hefði að mínu mati verið fremur kjánalegt að fara að tala um þetta út í bláinn á þinni síðu, hefur ekkert með manndóm að gera. Að lokum vil ég segja að ég ætla ekkert að fara að karpa við þig eða troða einhverjar illsakir, mér fannst þú bara fullóvægin í skoðunum þínum á sporðdreka og það væri kannski gaman að þú útskýrðir á einfaldan hátt á hvern mínar athugasemdir um þig voru en þær sem þú hafðir í frammi um síðuhöfund hér.
Markús frá Djúpalæk, 9.9.2008 kl. 19:09
Þarna vantaði auðvitað orð. Ætlaði að spyrja: Á hvern hátt eru mínar athugasemdir frábrugðnar þeim sem þú hafðir í frammi um síðuhöfund hér?
Markús frá Djúpalæk, 9.9.2008 kl. 19:27
Rís ekki Markús upp á afturfæturna til að verja Sporðdrekastelpuna
Sporðdrekinn, 9.9.2008 kl. 19:33
Þó það nú væri
.
Markús frá Djúpalæk, 9.9.2008 kl. 20:54
Sömuleiðis Ester.
Markús frá Djúpalæk, 9.9.2008 kl. 20:55
Vitaskuld er Sporðdrekinn í fullum rétti að kjósa nafnleynd á sínu bloggi. Öfugt við marga, sem blogga undir nafni og mynd, þá hef ég aldrei séð hana með skot né skæting á annað fólk. Hvort eða hvernig hún kýs að taka þátt í þessum netleik hlýtur að vera alfarið hennar mál og ákvörðun.
Mbk.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 9.9.2008 kl. 22:04
Helga Guðrún
Sporðdrekinn, 9.9.2008 kl. 23:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.