Ég man þá gömlu góðu daga

Þegar að ég var lítil þá fór ég stundum með ömmu og afa í kartöflugarðana. Þau voru með tvær tegundir, gullauga og hvað heita svo aftur þessar rauðu?

Þegar að litlu stelpunni var farið að leiðast, maður hefur jú ekki þolinmæði fyrir heillsdags "vinnu" undir sex ára aldri, þá tók amma smælki, strauk af þeim moldina og gaf mér. Þetta dugði mér þar til að við komum heim.

Þegar að búið var að skipta um föt og þvo af sér moldina sauð amma smælkin sem að hún hafði valið sérstaklega úr öllum kartöflunum fyrir ömmu skottið. Sælu víman sem að maður komst svo í við að borða þessar pínulitlu kartöflur baðaðar í smjöri mmm jammm..... InLove

Ég sakna ömmu Heart


mbl.is Myndarleg kartöfluuppskera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

smælkið er best...............hef stundum keypt smælki fyrir jólin rándýrt   en gott

Hólmdís Hjartardóttir, 8.9.2008 kl. 17:13

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Æ, mikið var þetta krúttlegt hjá þér

Markús frá Djúpalæk, 8.9.2008 kl. 17:20

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Hólmdís: En vel þess virði er það ekki?

Markús:

Sporðdrekinn, 8.9.2008 kl. 18:08

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Jú.....ég brúna það með hýði og allir ánægðir.....þó smælki sé auðvitað best nýupptekið með smjöri.

Hólmdís Hjartardóttir, 8.9.2008 kl. 18:19

5 Smámynd: Ásta Björk Solis

nammi namm

Ásta Björk Solis, 8.9.2008 kl. 20:58

6 Smámynd: Dísa Dóra

elska nýuppteknar kartöflur (og reyndar gulrætur líka)

Dísa Dóra, 8.9.2008 kl. 21:03

7 Smámynd: Sporðdrekinn

Nýuppteknar gulrætur... það hef ég aldrei fengið að smakka, hljómar nammilegt

Sporðdrekinn, 8.9.2008 kl. 22:12

8 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Nýupptekið grænmeti er best. Í bernsku læddumst við félagarnir í Löngumýrinni á Akureyri og átum okkur sadda úr görðunum í hverfinu, kartöflur ( hráar! ) ,gulrætur, rófur, radísur, rabbarbari, jarðarber, ribsber, graslaukur.............namminamm.s

..summstaðar held ég að það hafi verið búist við okkur, enda varla um mikinn feluleik að ræða hjá 6-7 ára guttum..hehehe

Haraldur Davíðsson, 9.9.2008 kl. 00:19

9 Smámynd: www.zordis.com

ömmumúsin mín var í heimsókn í dag

þær rauðu voru kallaðar rauðar í minningunni ....

www.zordis.com, 9.9.2008 kl. 01:08

10 Smámynd: Sporðdrekinn

Haraldur: Það hefur þá farið betur fyrir ykkur vinunum en mér og mínum. Við reyndum að tæma rabarbaragarð smátt og smátt en bjev.... kallinn sem átti hann varð brjálaður og elti okkur hrópandi og gargandi út úr garðinum. Ég veit ekki hvað hann var að hugsa en ég var að hugsa an...... kallinn að vera heima um miðjan dag!

Þið hljótið að hafa haft mjög heilbrigðar hmmm hægðir, allt þetta grænmeti og ber (sorry ég stóðst ekki mátið  ) Þið hafið líka verið uppfullir af vítamínum

Sporðdrekinn, 9.9.2008 kl. 02:15

11 Smámynd: Sporðdrekinn

Zordis: "ömmumúsin" sætt

"Rauðar" já er það ekki bara

Sporðdrekinn, 9.9.2008 kl. 02:16

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

rauðar íslenskar........

Haraldur ég bjó í Kringlumýri...........

Hólmdís Hjartardóttir, 9.9.2008 kl. 02:38

13 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Hahaha það var nefnilega það, reyndir þú að rækta grænmeti ?

Haraldur Davíðsson, 9.9.2008 kl. 09:34

14 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Krúttlegt hjá þér

Átt þú góðan dag vina.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 9.9.2008 kl. 10:22

15 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Haraldur......ég ræktaði ekkert á Ak..........hafði öðrum hnöppum að hneppa á því tímabili í lífinu.

Hólmdís Hjartardóttir, 9.9.2008 kl. 10:24

16 Smámynd: Ein-stök

Oh.. já ég man eftir smælkis-tínslu með ömmu..  Þetta hefðu getað verið mínar minningar hér fyrir ofan

Ein-stök, 9.9.2008 kl. 10:35

17 Smámynd: Sporðdrekinn

Takk sömu leiðis Anna Ragna

Einstök: Þá hefur þú verið heppin 

Sporðdrekinn, 9.9.2008 kl. 15:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband