9.9.2008 | 19:57
Og mamman vissi um þetta!
Það virðist sem ógeðs fólk sé alstaðar í heiminum.
Móðirin segist hafa talað við lögregluna núna (já núna hún vissi af þessu allan tímann) af því að dóttir hennar hafi ekki getað tekið þetta lengur andlega. HALLÓ!!! Er enginn heima, gat dóttirin þá tekið þessu svo vel andlega síðustu sex ár? Gangandi í gegnum tvær meðgöngur, gefa börnin frá sér, faðir sem misnotar hana líkamlega og andlega og móður sem að ekki stendur upp fyrir dóttir sinni.
Ég veit alveg að konan var hrædd, henni var ógnað og allt það, en ég skil samt ekki hvernig hún gat horft upp á þetta í öll þessi ár.
Ég vona að greyið dóttirin fái þá hjálp sem að hún þarf og mamman líka. Og að maðurinn fái dóm sem hentar glæp!
![]() |
Lokaði dóttur sína inni í sex ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
ÓGEÐSLEGT .
Anna Ragna Alexandersdóttir, 9.9.2008 kl. 20:21
Hrollur
Hólmdís Hjartardóttir, 9.9.2008 kl. 20:44
Það er ótrúlega lítið mál að halda menneskju fanginni ef viljinn er fyrir hendi og algjört siðleysi líka. Þau dæmi sem hafa komist upp eiga það sameiginlegt að glæpamaðurinn gerði mistök.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 9.9.2008 kl. 20:55
Það er ótrúlegt að svona skuli geta gerst í nútímaþjóðfélagi. Óhuggulega oft sem maður heyrir slíkar fréttir núorðið. Þessi frétt í dag og önnur um mann sem beitti vikugamla dóttur sína kynferðis og líkamlegu ofbeldi


Dísa Dóra, 9.9.2008 kl. 21:03
Agnes Ólöf Thorarensen, 9.9.2008 kl. 21:16
.....út undir hlöðuvegg...og....BANG!!
Haraldur Davíðsson, 9.9.2008 kl. 21:27
Anna Ragna, Hólmdís, Agnes: Já, maður fær sko hroll af þessum ógeðslega viðbjóði
Skattborgari: Við fögnum svoleiðis mistökum
Dísa D: Ég hafði ekki heyrt um þetta vikugamla barn, nú liggur við að maturinn minn komi allur upp aftur

Haraldur: Ég vill helst sjá svona fólk kveljast, ekkert pínt eða neitt svoleiðis til þess er ég of mjúk. En ég vill sjá það lifa löngu lífi í einveru eða eitthvað álíka. En svo er aftur annað mál, af hverju ætti hinn almenni borgari að halda svona mönnum uppi, fangelsi er jú frítt fæði og húsnæði.
Sporðdrekinn, 9.9.2008 kl. 23:51
Því miður eru sennilega margir svo útsjónasamir og útpældir að þeir gera ekki mistök þess vegna munu mörg svona mál aldrei komast upp. Ég er með grein inni hjá mér þar sem ég fer yfir hvað þarf til að gera svona lagað sem er því miður einum of auðvelt.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 9.9.2008 kl. 23:54
Ég hef stundum skrifað um það hér hvað ég er "hrædd" við allt þetta tölvudót. Ég er nokkuð viss um að það á eftir að verða stór slys.
En.... Það er ein tækni sem að ég hefði ekkert á móti að yrði fundin upp. Ég myndi vilja sjá vél sem gæti einhvernvegin lesið þjáningar, hræðslu og sársauka fólks aftur í tímann. Þessi vél myndi svo dæla þessum tilfinningum inn í sökudólginn. Svo að sá sem að misþyrmdi fórnarlambinu myndi upplifa sömu tilfinningar sem sínar. Þetta væri ég til í að sjá (ekki bókstaflega samt) og svo má losa jörðina við viðbjóðinn.
Sporðdrekinn, 9.9.2008 kl. 23:57
Skattborgari, skrifaðir þú greinina?
Sporðdrekinn, 9.9.2008 kl. 23:59
Ég held að þessir menn séu svo veikir að þeir hafi eingar tilfinningar því miður. Annars væri þetta góð refsing ef þeir hefðu á annað borð einhverjar tilfinningar.
Kveðja Skattorgari.
Skattborgari, 10.9.2008 kl. 00:00
Já ég setti hana saman á 20min til að sýna hvað Það þarf lítið til að setja þetta saman fyrir utan hugmyndaflug.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 10.9.2008 kl. 00:03
Nei sjáðu þú ert ekki að ná mér, ég vill að tilfinningin sem fórnarlambið finnur skili sér sem sönn tilfinning fyrir skrímslið. Fattar þú mig?
Ég ætla að kíkja á hana, hver veit nema að ég finni mér mann sem að ég vill hafa hjá mér um aldur og æfi
Sporðdrekinn, 10.9.2008 kl. 00:07
Ég held að aðili sem er fær um að gera svona lagað sé svo skaddaður tilfiningalega og siðblindur að það sé allt annar skali hjá honum en venjulegu fólki þannig að svona tæki munu sennilega ekki virka á svona menn því miður annars væri þetta virkilega góð refsing fyrir þá að finna sársaukan sem þeir eru búnir að valda alla sína ævi.
Mæli með að þú farir sérstaklega eftir síðustu setningunni til að byrja með.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 10.9.2008 kl. 00:12
Sporðdrekinn, 10.9.2008 kl. 00:17
Það er svo undarlegt þó einhver hafi barið mann, reynt að kæfa mann, misboðið flestum í fjölskyldu manns verið vondur við gamalt og fatlað fólk, niðurlægt mann, skotið úr byssu heima hjá manni, drepið fugla í garðinum þá þykir manni samt vænt um einstaklinginn þó að ég sé ekki að bera það saman við það að vera lokaður inni í mörg ár þá er ég að segja að aðstandendur geta orðið andskoti fuckt up. Varðandi mömmuna þá.
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 10.9.2008 kl. 18:35
Ó ég veit það, hef prufað ýmislegt sjálf. En þegar að það kemur að börnunum mínum..... ég ætla rétt að vona að ég myndi segja nei!
Sporðdrekinn, 11.9.2008 kl. 00:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.