15.9.2008 | 04:02
Gluggar sálarinnar - Lambalæri - Ungar
Ég hef fundið fyrir auknu öryggi síðustu daga, það gerðust tveir atburðir sem án efa hjálpuðu til. Ég er líka búin að öskra í huganum á allar áttir og biðja um hjálp, leiðbeiningu um það hvernig ég á að taka á hlutunum.
"Augun eru gluggar sálarinnar", við þekkjum þetta öll en mér til mikillar furðu varð ég fyrir reynslu í gær sem að mig langar til að deila með ykkur:
Allt í einu um sex leitið fór ég að þrífa glugga og gardínur, ég er ekki búin með allt húsið enda óteljandi gluggar hér. En ég þreif og þreif og með hverjum glugganum leið mér betur. Það var eins og að ég væri að þrífa glugga sálar minnar og ég var farin að sjá inn.
Ég tók stóra ákvörðun seinna um kvöldið, setti nokkra skilmála. Svo grét ég af hræðslu og söknuði. Kannski með því að taka í burtu það eina sem við áttum saman fyrir utan ungana, hafði ég brennt allar brýr að baki mér. Nú er bara að bíða og sjá.
Ég eldaði Íslenskt lambalæri í kvöld, namm namm namm. Þegar að ilmurinn færðist um húsið fóru ungarnir sem heima voru að ath hvaða góða lykt þetta væri. Elsti-Unginn spurði hvaða meðlæti væri og taldi það upp fyrir hann.
Sósa, hvernig sósa? Spurði hann, uppstúf?
Nei svona, sósa sósa.
Ömmu sósa?
Mmm.. já svona rjómasósa. Ég fékk smá hnút í magann, eins gott að klúðra ekki sósunni!
Namm hún er svo góð. Nú varð ég nerfus, ég verð að standa mig!
Maturinn var æði og sósan heppnaðist sem betur fer vel. Guð hvað ég elska Íslenskt lambakjöt!
Við matarborðið sagði Yngsti-Unginn eitthvað og ég svaraði eins og sannri móður ber að ansa ".... rassinn út í vindinn"
Ert þú með rassinn út í vindinn? spurði Yngsti-Unginn
Nei þú!
Gott af því að þinn er hræðilegur. Sagði þetta litla gerpi glottandi.
Heyrðu vinur!... Ég er með fallegri rass en nokkur önnur kona í þessum heimi! Ég verð að viðurkenna að ég hafði mjög gaman af þessu og hinir Ungarnir fylgdust vel með.
Nei!
Jú víst! Ég vissi hvar ég gæti fengið stuðning. Spurðu bara hann pabba þinn!! Sagði ég sigri hrósandi.
Mammm.... Sagði Elsti-Unginn hálf flissandi og með vantrú í röddinni, samt er hann nú nokkuð vanur mér.
Þetta er ekki sanngjarnt, hann er giftur þér. Sagði Mið-Unginn
Good one! Sagði þá litla skrípið glottandi. Og þar með var það búið. Ljónið hringdi svo í kvöld og sagði ég honum frá þessu.
Þú hefur allan minn stuðning í þessu máli, ég veit að þú ert með flottasta rass í heimi. Sagði Ljónið með mikilli sannfæringu og mýkt. Mér fannst það gott og það fékk mig til að brosa.
Það hljóp í mig púki þegar að ég var að koma tveimur yngri Ungunum í rúmið. Ég söng eins hátt og ég gat: Ég er besta mamma í heimi tra la la la la, ég er besta mamma í heimi.....
Yngsti-Unginn stoppar mig: Nei það ert þú ekki!
Ha? Af hverju segir þú það? Hann horfði lengi á mig með rannsakandi augum án þess að segja neitt, svo kom.
Sagðir þú versta mamma í heimi?
Nei BESTA!
Já ok, það er rétt
Svo tóku þeir undir sönginn með mér:
Ég er besta mamma í heimi..... Já það ert þú.
Ég er besta mamma í heimi.... Já það ert þú.
Við fórum nokkra svona hringi og í hvert skipti sem að þeir svöruðu mér með sínum blíðu barna röddum, stækkaði hjartað mitt
Athugasemdir
Áfram kona
Hólmdís Hjartardóttir, 15.9.2008 kl. 08:25
Sporðdrekinn, 15.9.2008 kl. 12:30
og íslenska lambalærið hefur sameinað íslenskar fjölskyldur svo lengi sem elstu menn muna enda gott...
Hólmdís Hjartardóttir, 15.9.2008 kl. 12:33
Já
Við vorum vön að hittast öll heima hjá mömmu og pabba í mat á Sunnudögum. Það var svo til alltaf lambakjöt, læri, hryggur, kótelettur... það er svo yndislegt að hafa alla fjölskylduna saman við eitt borð. Það er að segja ef að maður á jafn yndislega og skemmtilega fjölskyldu og ég á
Sporðdrekinn, 15.9.2008 kl. 12:49
Stundum er eina leiðin áfram sú að eiga enga leið til baka........það er samt ÁFRAM.
Lambalæri með öllu er nú ekkert slor.....
Annars á ég nokkrar einfaldar sósuuppskriftir handa þér ef þú vilt.....
Annars smakkast allur matur best í félagsskap þeirra sem manni þykir vænt um...ekki satt?
Haraldur Davíðsson, 15.9.2008 kl. 15:31
Já það er víst rétt.
Takk fyrir það, gott að vita
Jú það er sko satt
Sporðdrekinn, 15.9.2008 kl. 15:52
Mig hlakkar til að fá eitthvað spænskt núna, knúsa litla Ljónið minn í koddann sinn og takast á við heimasætuna mína.
Fjallið verður í heiðurssessi ... hlakka til!
Já og lambakjötið er ekki sem verst
(yndislegt að eiga þessa frábæru unga til að dúlla sér í og með ... sakn sakn hjá mér ....)
www.zordis.com, 15.9.2008 kl. 19:36
Já, mér finnst spænskur matur góður. Það er ekki langt þangað til þú hefur öll gullin þín í fanginu
Við erum ríkar konur Zordis mín.
Sporðdrekinn, 16.9.2008 kl. 01:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.