21.9.2008 | 04:18
Var ekki einhver að biðja um myndir?!?! ;-P
Jæja ég held að ég geti gert þetta án þess að uppljóstra hver ég er Það hjálpar líka til að #%&"!)/&$%# myndavélin virkar ekki rétt. Það þarf sko að halla henni á réttan hátt og þá er samt bara svona happa og glappa hvort að hún taki mynd. En hér kemur þetta, verið góð
Svona er svo hnakkinn, ég veit að flassið er ekki alveg að hjálpa til en ég gafst upp á að reyna að blekkja myndavélina til að taka góða mynd.
Koll af kolli
Þá er það hnakkinn enn einu sinni
Ég vona að þið hafið gaman af þessum myndum en fattið samt ekki hver ég er
Hvað segir þú um handverkið Haraldur, ræður þú mig í vinnu ef að þú opnar einhvertíma stofu
Athugasemdir
góð
Hólmdís Hjartardóttir, 21.9.2008 kl. 10:50
Takk
Sporðdrekinn, 21.9.2008 kl. 15:11
þú ert langflottust
Gunnar Gunnarsson, 21.9.2008 kl. 16:07
Þú færð allavega að koma í prufu...ég held nú að ég hafi svosem séð verri hluti, undirskrifaða af fagfólki.
Well done, svona sjálf....
Haraldur Davíðsson, 22.9.2008 kl. 00:15
Takk Gunnar minn
Takk Haraldur, ég fer þá bara í að prufa mig áfram, æfingin skapar meistarann ekki satt

Sporðdrekinn, 22.9.2008 kl. 01:08
Algjörlega, þú lærir ekki að klippa uppúr bók...
Haraldur Davíðsson, 22.9.2008 kl. 01:14
Annars var ég að prufa smá snúning á hári og skera í það til að fá stutt og langt blandað samann. En hérna hmm hmm ég skar of þvert á og fékk því svona fallegan stuttan stall þarna efst. Svo þegar að ég reyndi að bjarga því þá varð bara stallur hinumegin líka
En nú er ég búin að læra af þeirri reynslu 
Sporðdrekinn, 22.9.2008 kl. 01:23
Flott opinberun!
Man eitt sinn (talandi um hnakka) að ég var á dansleik með samstarfsaðila og hann er gay sem skiptir náttúrulega engu máli nema hvað hann tók eftir öllum fallegu hnökkunum á dansgólfinu!
Það var fyndið .... Flott seinasta hnakkamyndin sýnir vel hvað klippingin er töff ...... fyndið hvað ég var búin að sjá klippingun í öðru ljósi!
www.zordis.com, 22.9.2008 kl. 23:36
Takk Zordis mín
Hnakkar skipta máli
Ég vona að hún sé skárri en þú varst búin að ímynda þér
Sporðdrekinn, 23.9.2008 kl. 01:05
Stórglæsileg kona - eins og mig grunaði
Ég var nú reyndar meira að skoða árangurinn af líkamsræktinni og sýnist hann líka ansi góður
Ein-stök, 23.9.2008 kl. 20:34
Sporðdrekinn, 24.9.2008 kl. 02:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.