24.9.2008 | 04:45
...étið eitt stk harðann fituklump á dag
Ég var að lesa færslu hjá henni Ólínu Þorvarðardóttir "Við erum of feit!" og hún kveikti í mér. Ég ætlaði að setja inn smá athugasemd en endaði víst óvar með að setja inn langa athugasemd, ég vona að Ólína fyrirgefi mér
Mig langar til að deila þessu með ykkur:
Málið er að það er ekki fitan sem að er að drepa fólk úr fitu, heldur er það sykurinn. En þetta vilja sumir ekki sjá. Það er til "gervi" sykur sem heitir Splenda og er unninn úr sykri, ég held að það væri ráð fyrir jógúrt framleiðendur (og fleiri) að fara að nota það í staðin fyrir allan sykurinn sem núna er dælt í jógúrtin og annan mat.
Okkur hefur líka verið kennt síðustu 30 ár að við eigum að borða mikið af korni. Matar þríhyrningurinn sem að okkur var/er kennt í skóla segir að korn eigi að vera aðal uppistaða máltíðarinnar. Þetta er náttúrulega bara bull, prótein ætti að vera aðal uppistaðan í máltíðum okkar. Ég er auðvitað ekki að segja að við eigum ekki að borða neitt korn.
Ég held að á borðum margra heimila sé pasta með smá próteini / hrísgrjón með smá próteini. Málið er að það ætti að vera Prótein m/ grænmeti, prótein m/smá pasta, prótein m/smá hrísgrjónum.
Sem sagt prótein, prótein, prótein!
Jóna segir: það var étin hamsatólg, fitan af kjötinu var sleikt utan af beinunum, skyr með rjóma og allt steikt upp úr smjörlíki. Munurinn var sá að fólk vann ekki kyrrsetustörf og börn voru á iði allan daginn. Og þetta er mikið rétt hjá henni.
En munurinn er ekki bara sá að fólk vann ekki kyrrsetustörf og að börnin hreyfðu sig meira, þó að þetta sé stór þáttur.
Þá var borðuð fita og við þurfum á fitu að halda. Það var borðað mikið af fisk og í fisk finnst eins sú besta fita sem við fáum. Ég er ekki að mæla með að þið étið eitt stk harðann fituklump á dag. Þá var sykur ekki heldur étinn í alla mata og börn fengu ekki nammi á hverjum degi. Ég veit að ekki allir krakkar fá nammi poka á hverjum degi en morgunkornin, jógúrtin, djúsið og kexið eru engu betri.
Svo er það nestið sem börnin fara með í skólann, brauð, brauð og brauð. Já og kókómjólk, eða dýsætur vatnsdrykkur, sumir kalla það djús.
Mér þykir sérstaklega slæmt að sjá jógúrt eða bara hvaða mat sem er, sem eru "fitu minni" en stút full af sykri.
Það er ekki fitan sem er að stífla allar æðar.
Það er ekki fitan sem veldur sykursýki 2.
Það er sykurinn!
Þessi kynslóð sem er að vaxa úr grasi núna gæti orðið fyrsta kynslóðin sem lifir styttra lífi en foreldrarnir.... Og það vegna heilsukvilla sem orsakast af offitu!
Allir matvælaframleiðendur ættu að leggja metnað sinn í að búa til hollan mat fyrir börnin okkar og okkur, í stað þess að ath hversu mikinn sykur er hægt að troða í eitt cheerios.
Pössum börnin okkar, pössum okkur, minkum sykurinn!
Athugasemdir
Úff ekki banna mér að borða kolvetnaríkan mat...ég er forfallinn kolvetnadjönkí og innbyrði stundum 4000 til 6ooo hitaeiningar á dag, samt er ég þvengmjór !
Ég heyrði einhverntímann að fólk skiptist í grófum dráttum í tvennt í þessu sambandi. Sumir semsagt þurfa að byggja mataræði sitt á próteinum og aðrir á kolvetnum, en auðvitað þýðir það ekki að maður eigi að sleppa restinni af fæðuhringnum.
Hvað varðar viðbættan sykur, þá vil ég meina að hvítur sykur og ekki síst hin stórhættulega breytta maissterkja séu ekkert annað en dóp fyrir börn.
Haraldur Davíðsson, 24.9.2008 kl. 11:58
Allar mjólkurvörur og morgunkorn er dísætt. En hóf er best á öllu . Verst hvað fólk er farið að borða lítinn fisk. Við fáum nóg prótein úr fæðinu.....ef það er skysamlega samsett.
Hólmdís Hjartardóttir, 24.9.2008 kl. 12:31
Já en sko málið er Haraldur minn að stundum getur fólk verið þvengmjótt en samt með of mikla fitu utan á sér, ég er ekki að segja að svo sem komið með þig. Ég er líka kolvetnadjönki eins og þú orðar það svo skemmtilega. Ef að ég leyfi mér eina brauðsneið þá verða það minnst fimm, ef að ég fæ mér einn nammi mola þá verður það allur kassinn. Mér líður alltaf illa í líkamanum eftir að ég missi stjórnina, ég verð því að vera vakandi yfir því sem að ég set ofan í mig. Svo eru kolvetni líka svo léleg orka.
Líkaminn okkar þarf prótein ef að hann fær ekki prótein úr fæðunni þá bara brýtur hann sjálfan sig niður. Þá verða vöðvarnir litlir, svona hálf gerð vöðvarýrnun. Hjartað er vöðvi....
Nei almáttugur, ekki sleppa neinu, tja nema þá, hvíta sykrinum og hvíta hveitinu.
Ég er svo sammála þér, ég sá einhverstaðar að erfiðara væri að venja sig af sykri en Heróíni.
Hvað er breytt maíssterkja?
Sporðdrekinn, 24.9.2008 kl. 12:38
Hólmdís mín, hvar annarstaðar eigum við af fá próteinið en úr fæðunni

Sporðdrekinn, 24.9.2008 kl. 12:43
Sporðdreki á Íslandi borða margir próteinduft og drykki...til að byggja upp vöðva.
Hólmdís Hjartardóttir, 24.9.2008 kl. 13:17
Modified corn starch, finnst í ótrúlega miklu af unnu og tilbúnu fæði, þetta er sykra og hún er mjög konsentreruð og virðist hafa þau áhrif að heilinn sendir ekki skilaboð um mettun og kallar á meira.
Fyrir vikið er hún oft ávísun á ofneyslu sykurs og offitu.
Haraldur Davíðsson, 24.9.2008 kl. 15:14
Vel mælt og þarft að benda á þessa hluti!
www.zordis.com, 24.9.2008 kl. 16:58
Ég drekk sjálf prótein hristinga, sérstaklega kemur það fyrir á morgnanna þar sem að ég er löt að elda mér á morgnanna.
Sporðdrekinn, 24.9.2008 kl. 17:56
Já ok Haraldur. Jakk ég verð að lesa mér til um, corn starch. Þetta virðist þá vera enn einn hluturinn sem að maður verður að leita eftir þegar verslað er í matinn, eins og það er gaman
Sporðdrekinn, 24.9.2008 kl. 17:59
Takk Zordis mín. Já það er nokkuð ljóst að við drepum (ég veit stór orð) börnin okkar fyrir aldur fram og þau börnin sín ef að við gerum ekkert í málunum
Sporðdrekinn, 24.9.2008 kl. 18:01
Eg kaupi nu aldrey sykur fyrir Cheriosid krakkanna og vid erum oll med protein drykki her.En thad tharf ad lesa a umbudir drykkjanna tannlaeknirinn minn benti mer a thad ad thad var allt of mikill sykur i minum drykk
svo eg er alltaf ad leita ad sykurlausum einhverjar abendingar?
Ásta Björk Solis, 24.9.2008 kl. 21:03
Ásta: Það sem að ég átti við að það er svo mikill sykur í mörgum morgunkornum, alger óðarfi að bæta hvítum sykri út á. Ég man þó eftir að hafa stolist til að sykurbæta mitt cheerios þegar að ég var stelpa
Ég nota bara prótein duft, ekki tilbúna drykki, svo að ég þekki það því miður ekki neitt. Þú verður bara að vera dugleg og lesa á pakkningarnar. Þú lætur mig svo kannski vita að hverju þú kemst
Sporðdrekinn, 24.9.2008 kl. 21:24
Fólk heldur stundum að ef að það drekkur prótein drykki þá verði það svaka stórt, það er að segja vöðvarnir. En málið er að þú þarft að borða svo rosalega mikið til að fá stóra vöðva, prótein drykkir breyta þar engu. Ekki þá nema að þeir séu notaðir á milli mála og í miklu magni og þetta gerir bara fólk sem er að reyna að bæta á sig vöðvum eða fitu.
Við venjulega fólkið sem erum ekki að bæta á okkur vöðvum eða fitu þurfum samt að borða mikið prótein. Í raun ættu allar okkar máltíðir að innihalda minnst 40% prótein.
Líkaminn getur unnið kolvetni og fitu úr próteini. En hann getur ekki unnið prótein úr fitu eða kolvetnum.
Líkaminn verður að fá nægt prótein annars gengur hann á vöðva líkamans til að ná í það prótein sem að hann vantar.
Ég man þegar að ég byrjaði að drekka prótein hristinga þá var oft sagt við mig "Hvað ætlar þú að verða vöðva fjall eða hvað" eða "Mér finnst konur með stóra vöðva ljótar".
Ég var auðvitað í sjokki og fór hlaupandi til Ljónsins "Verð ég einhver vaxtarækta kelling, með risa vöðva?!".
Hann bara hló að mér og sagði: Sporðdreki þú átt aldrei eftir að verða svoleiðis, þú borðar ekki nóg. Þessar konur leggja mikið á sig til að verða svona stórar. Ég er alveg hissa á að hann hafi ekki bæt við "Kjáninn minn", því að þannig horfði hann á mig.
En við vitum ekki fyrr en lært höfum og núna borða ég mikið af próteini en er samt enginn vaxtarækta kelling, jafnvel þó að ég fari í ræktina
Sporðdrekinn, 24.9.2008 kl. 21:41
Takk fyrir þetta, þetta er fróðleg og góð lesning.
Linda litla, 25.9.2008 kl. 17:07
Gott að þér líkaði vel
Sporðdrekinn, 25.9.2008 kl. 21:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.