3.10.2008 | 18:15
Kannski væri hægt að nota þetta höfuð til að leysa vanda Íslendinga
Þau höfuð sem notuð hafa verið upp á síðkastið til að vinna í vandamálum þjóðarinnar hafa ekki staðið fyrir sínu. Kannski að hið þurrkaða höfuð sem sat á herðum ættarhöfðingjans og töframanns Shuar-indíána, geti leyst vandann.
Ég mæli með að allir sem vettlingi geta valdið fari að höfðinu og biðji um aðstoð. En ekki samt biðja um að það leggi sig í bleyti því að það gæti eyðilagt þetta forna, þurra höfuð Já og ekki búast við svörum einn tveir og þrír, ég hef heyrt að hann sé nokkuð þurr á manninn
En svona án als gríns "Öllu gríni fylgir einhver alvara", og óhætt að segja að við þurfum að leita allra ráða til að rétta krónuna af.
![]() |
Þurrkað höfuð í Kópavogi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
fólk er orðið hrætt og þunglynt hér.....fjölmiðlar og stjórnmálamenn verða að vanda sig þega þeir tala til fólksins.
Hólmdís Hjartardóttir, 3.10.2008 kl. 19:31
Vegna allrar þreytu, hræðslu og þunglyndis er gott að gera grín að sjálfum sér og öðrum. Lyftum okkur upp, neikvæðni dregur neikvæða hluti að sér og jákvæðni dregur jákvæða hluti að sér.
Nú er tími fyrir jákvæðni, glens og grín


Sporðdrekinn, 3.10.2008 kl. 20:08
jebb er að reyna það

Hólmdís Hjartardóttir, 3.10.2008 kl. 21:04
Sporðdrekinn, 4.10.2008 kl. 02:21
Um að gera að vera jákvæður þrátt fyrir andstyggðar ástand!
Ótrúlegt hvernig staðan er komin langt í djúpið.
www.zordis.com, 4.10.2008 kl. 18:08
Kannski þetta sé lausnin á höfuðvanda Íslands, það eru allavega engin tákn að fá úr höfuðáttunum. Allt samfélagið er á haus og engin lausn á þessum höfuðverk í sjónmáli. Höfuðsyndirnar eru nú að koma í hausinn á þeim sem bera höfuð og herðar yfir aðra í spillingunni, og ekkert ætti að geta komið í veg fyrir að höfuð fái að rúlla...
...hvernig er það annars, þegar höfuð eru að þorna og skreppa saman, byrjar það á heilanum ? Var þessi Shuar höfðingi í pólitíkinni ?
Haraldur Davíðsson, 5.10.2008 kl. 20:14
Sporðdrekinn, 7.10.2008 kl. 04:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.