Gott mál

Það þarf auðsjáanlega að taka svolítið harðar á afbrotamönnum landsins, ekki satt?

Tindur Jónsson, var td. dæmdur í sex ára fangelsi árið 2006 en nú árið 2008 er hann tekinn fastur úti í bæ. Ég er ekki góð í reikningi en það bara geta ekki verið sex ár frá því árið 2006, er það nokkuð?

Afbrotamenn landsins eru fáir en knáir, til að koma reglu á hlutina þarf að taka á þeirra málum með hörðum höndum. Þeim þarf að vera settur strangur og stöðugur rammi.

Ég fagna í hvert sinn sem að afbrotamaður er tekinn. Ekki að ég vilji honum/henni illt, en ég vill bara ekki að hann/hún fái að ganga laus til að gera öðrum illt.

 


mbl.is Höfuðpaurar á reynslulausn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dísa Dóra

Sammála.  Ótrúlegt að þeir sem fá svona langa dóma séu komnir á reynslulausn og gefst þannig tækifæri til að halda áfram að brjóta af sér.

Dísa Dóra, 16.10.2008 kl. 20:03

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Já svolítið fáránlegt.

Þetta er svona eins og að gefa barninu sínu þá refsingu að það þurfi að sitja úti í horni í fimm mínútur. En svo eftir eina mínútu nennum við bara ekki að hafa auga með þeim lengur og leifum þeim að fara aftur að leika sér.

Hvað lærir barnið?

EKKERT!! Eða það er kannski ekki rétt, barnið lærir auðvitað að það sé allt í lagi að brjóta reglurnar, því að það þurfi ekkert að taka ábyrgð á gjörðum sínum.

Sporðdrekinn, 16.10.2008 kl. 20:14

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

já menn eiga að taka út sína refsingu.

Hólmdís Hjartardóttir, 16.10.2008 kl. 20:43

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Nákvæmlega.

Sporðdrekinn, 16.10.2008 kl. 20:47

5 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Fullnustu dóma er mjög ábótavant hér á landi. Þegar dómari skellir 10 árum á einhvern, veit viðkomandi samstundis að hann þarf ekki að sitja í 10 ár.

Það er mikið talað um að herða refsirammann í ýmsum málum, en kannski þarf fyrst að bæta fullnustu dómanna, svo má skoða harðari refsingar.

Haraldur Davíðsson, 21.10.2008 kl. 02:13

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Nákvæmlega Haraldur.

Sporðdrekinn, 21.10.2008 kl. 02:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband