17.10.2008 | 02:09
NEYTENDUR OG FJÖLMIÐLAR ATHUGIÐ!
Ég fékk þetta lánað af vef "Félag Íslenskra flugmanna" eftir ábendingu frá Nonna, nokkrum á vefnum hennar Hólmdísar
NEYTENDUR OG FJÖLMIÐLAR ATHUGIÐ!
Í tilefni atburða undanfarna daga telur FÍA rétta að það komi skýrt fram að til að styrkja íslenskt atvinnulíf sé nauðsynlegt að velja íslenskt, þar á meðal að fljúga með íslenskum flugfélögum frekar en erlendum samkeppnisaðilum.
Það skal því áréttast að ef keyptur er farmiði, eins og með Iceland Express, er í raun verið að kaupa miða með Breska flugfélaginu Astreus, þar sem flogið er á þeirra flugvélum með breskum flugmönnum og á bresku flugnúmeri. Það flug fellur í einu og öllu undir reglur "vina" okkar breta sem hafa staðið svo vel við bakið á okkur í hremmingum undanfarinna daga eins og raun ber vitni.
VELJUM ÍSLENSKT!
Það er svolítið áhugavert að lesa þetta á þeim tíma sem að Ísland vantar peninga og við erum reið út í það hvernig Bretland er að koma fram við okkur sem þjóð.
Athugasemdir
Góð ábending
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 17.10.2008 kl. 12:00
Veljum Íslenskt virðist einhvernvegin miklu nauðsynlegra núna. Ég er meira að segja að spá í að fara út í dýru-búð og kaupa Íslenskan fisk
Sporðdrekinn, 17.10.2008 kl. 17:11
Það eru tvær leiðir útúr þessari kreppu og þær eru með express eða icelandair .
Væntanlega aðra leiðina.
Gunnar Gunnarsson, 18.10.2008 kl. 00:40
Nei..... ekki segja svona Gunnar minn, nú er að berjast fyrir landi og þjóð. Og ég veit að þú ert rétti maðurinn í það
svo ekki fara neitt.
Sporðdrekinn, 18.10.2008 kl. 02:47
Ég er að skoða að flytja til Íraks get fegnið góða vinnu þar. Kem sennilega ekki heim aftur og er að skoða hvort ég eigi að afsala mér ríkisborgararétti.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 19.10.2008 kl. 04:01
Til Íraks já, hmm...
Ég er nokkuð viss um að þetta sé grín en til vonar og vara ERTU RUGGLAÐUR MAÐUR?!?!?
Sporðdrekinn, 19.10.2008 kl. 21:36
held að skatti þurfi að horfa á Hemma Gunn myndbandið
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 19.10.2008 kl. 22:55
Já nákvæmlega Emma
Skatti minn kíktu nú á síðuna hennar Emmu og horfðu á myndbandið
Sporðdrekinn, 19.10.2008 kl. 22:57
Emma þetta myndband er bara eitt það fáranlegasta sem ég hef séð en þetta hefur vonandi jákvæð áhrif á einhverja.
Sporðdreki ég verð víst að svara því játandi því að það fer einginn með fullu viti að vinna sem öryggisvörður í Írak er það nokkuð?
Komdu með mér launin eru 10-12þúsund evrur á mánuði.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 19.10.2008 kl. 23:34
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 19.10.2008 kl. 23:46
Nei ég held ekki, en þú sagðir góð vinna. Ég vissi ekkert hvað það var
Fáránleikinn og léttleikinn er einmitt það sem hefur jákvæðu áhrifin
Nei Emma mín, það er sko ekki fáránlegt, eða ég vona ekki..... er alltaf með mína í brjóstvasanum....
Sporðdrekinn, 19.10.2008 kl. 23:51
Sporðdreki þetta er góð vel launuð vinna og það er aðgangur að tölvu og öllu þannig að maður hefur það gott. Það er frítt fæði og húsnæði þannig að maður þarf ekki nema 300 evrur til að lifa af á mánuði til að leyfa sér lúxus eins og víski eða eitthvað..
Emma. Ég er ekki með neina mynd í vasanum hjá mér.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 20.10.2008 kl. 01:09
Ég kem samt ekki með í þetta skipti, get ekki sagt að mig langi að flytja til Íraks. En ef að þú ferð þá er gott að vita að við fáum að fylgjast með þér, þar sem að þú verður með tölvu og svona
En já alveg nauðsynlegt að geta fengið sér viskí tár við og við
Sporðdrekinn, 20.10.2008 kl. 01:23
Skil þig vel það fyrirfinst var hættulegra starf sem er allt í lagi enda munu vafalaust fleiri fagna dauða mínum en syrgja mig. Ég mun setja inn myndir ef ég verð fyrir áras en ég verð sem betur fer á brynvörðum bílum enda mun ekki veita af því.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 20.10.2008 kl. 01:53
Takktu með þér mynd í vasann
hmm er ekki betra að halda lífi. Það er nú þannig Skattborgari að maður á ekki að gera því fólki sem að er ílla við mann til geðs að drepast 
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 20.10.2008 kl. 02:00
Emma. Ég mun kannski taka með mér mynd af hjólinu sem ég ætla að kaupa. Það væri betra að koma heim á almennu farými en í líkpoka en ég á ekki börn þannig að það er allt í lagi að koma heim í poka. Maður á aldrei að gera þeim sem er illa við mann til hæfis nema að það sé manni sjálfum í hag.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 20.10.2008 kl. 02:17
Ekki bara af árásum! Ég vill fá að sjá miklu, miklu meira en það. hahaha áttu von á að það verði gerð út sveit til að gera út af við þig
Hvaða tal er þetta um dauða og líkpoka?
Skítt með þá sem munu fagna ég hef nú meiri áhyggjur af okkur hinum, þessum sem hafa svo gaman af svartsýni þinni og blómlegu skrifum
Þú ferð nú varla að neita okkur um þau, er það? 
En svona til vonar og vara, vertu með mynd af Sporðdreka og Emmu sitjandi á hjólinu, í brjóstvasanum. Hver veit nema að það færi þér Lukku. Svona þar sem að þú tekur fyrir að ganga um með mynd af Hemma Gunn, sem er nú bara eitthvað sem að ég get ekki skilið
Sporðdrekinn, 20.10.2008 kl. 03:35
skil þetta alveg okkur líður öllum stundum ílla en það er að þauka betri tímar koma:) Skítt með þá sem munu fagna ég hef nú meiri áhyggjur af okkur hinum tek undir þessi orð.
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 20.10.2008 kl. 18:40
Ég mun vinna við það að fylgja fólki á milli staða ef ég fer út og það er ekki óalgengt að það sé ráðist á bílalestir þannig að það eru góðar líkur á því að ég lendi í skotárás.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 20.10.2008 kl. 20:39
Er þetta eitthvað sem að þig langar til að gera?
Og ef svo, af hverju? Hvað er það sem heillar?
Sporðdrekinn, 21.10.2008 kl. 01:32
Þetta er ekki besta vinnan en launin eru það sem heillar. Miðað við núverandi gengi þá verð ég með vel yfir miljón á mánuði sem er mjög gott og mun gera mér kleift að gera það sem mig langar eftir 2 ár. Ég veit ekki hvað ég geri en ég er að skoða þetta.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 21.10.2008 kl. 01:37
Já ok. Ég býst við launin verði að vera góð fyrir áhættuna.
Ég skil löngunina til að skoða ný lönd og menningar, sem er gott að gera áður en að börnin koma. Ég get líka vel skilið löngunina til að afla góðra tekna. En ég veit að þú átt eftir að skoða þetta mjög vel áður en ákvörðunin er tekin.
Sporðdrekinn, 21.10.2008 kl. 01:44
Já skoða vel vinkona mín var nýlega myrt hún var á svæði sem að var áhættusamt hennar er nú sárt saknað og ég hugsa til hennar daglega, það er að gera sér grein fyrir því að þetta er ekkert spaug.
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 21.10.2008 kl. 15:48
Ég samhryggist þér vegna vinkonu þinnar Emma
Sporðdrekinn, 21.10.2008 kl. 17:23
Takk fyrir það.
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 21.10.2008 kl. 18:51
Ég samhryggist vegna vinkonunnar Emma.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 21.10.2008 kl. 19:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.