23.10.2008 | 13:32
Íslenskur Rannsóknarlögreglumaður - Fox news - Ég fékk þennan tölvupóst...
..og ákvað að googla hann. Hér eru tvær, 1, 2, síður sem að ég fann.
Málið er að í póstinum er linkur á síðu hjá Fox news, þar er frétt um þetta efni "strawberry quick", svo að það er kannski ekkert skrítið þótt að fólk verði hrætt. Við nefnilega trúum oftast fréttunum, eða við viljum geta trúað frétta flutningnum.
Hér er dæmi: As for meth, anyone whos seen a meth addict, with their scabbed skin and rotting teeth, knows what a con Strawberry Quick is.
Ég hef það fyrir vana að goggla allan viðvörunar póst sem að ég fæ.
En málið er að þessi póstur sem gengur um á Íslandi byrjar á fullyrðingu frá Íslenskum rannsóknarlögreglumanni. Hann gefur upp fullt nafn, atvinnu, síma, vefpóstfang og flr. Ég googlaði nafnið hans og hann er til. Hvort að einhver er að nota nafnið hans og upplýsingar án leyfis veit ég ekki. En ég skil vel að foreldrar verði skelkaðir þegar að þeir fá svona tölvupóst. Ég varð það.
![]() |
Foreldrar varaðir við nýju fíkniefni - Gabb sem gengur á netinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það þarf að fara í saumana á því hvernig stendur á að íslenskur rannsóknalögreglumaður er viðriðinn þennan flökkusögupóst sem er búinn að vera til á netinu í næstum 2 ár!
Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 14:37
Þetta er bara kjaftæði
Ómar Ingi, 23.10.2008 kl. 18:10
Tjah, þetta lýsir nú löggunni hér ágætlega, ég hef þurft að útskýra fyrir fulltrúum fullnustudeildar lögreglunnar, að nágranni minn sem þeir vildu gjarnan fá að handtaka, var búinn að vera í fangelsi í 4 mánuði....hmmm....
Haraldur Davíðsson, 23.10.2008 kl. 22:37
Ragnheiður: Ég sagði ekki að þessi íslenski rannsóknarmaður hafi verið með í byrjun, enda hefur þessi póstur ekki verið í gangi á íslandi í 2 ár.
Sporðdrekinn, 24.10.2008 kl. 00:06
Ómar: Hvað er kjaftæði?
Sporðdrekinn, 24.10.2008 kl. 00:06
Nei.... Haraldur, það er ömurlegt
Sporðdrekinn, 24.10.2008 kl. 00:08
úff......en nú erum við Íslendingar í vondum málum
Hólmdís Hjartardóttir, 24.10.2008 kl. 14:02
Þetta var einkapóstur sem var forwardaður áfram og lenti á svona bandvitlausan stað!! Kjaftasaumaklúbbskellingar voru sko fljótar til að dreifa þessu og búa til múgæsing.
Þannig að aumingja rannsóknalögreglumaðurinn er blásaklaus í þessu umrædda máli.
Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 14:16
Hólmdís: Já það má vera en það kemur þessum pósti ekkert við

Ragnheiður Anna: Þú segir einkapóstur, ég sagði aldrei að þetta hafi komið frá lögreglustöðinni. Bara að allar upplýsingar mannsins væru í bréfinu.
Ég var alsekki að segja að rannsóknarmaðurinn hafi verið sekur um neitt, annað en þá kannski að rannsaka ekki hvort að þetta var rétt eða ekki áður en að hann sendi bréfið áfram.
Ég tel að það þurfi ekki kjaftakellingar til að áframsenda svona póst, heldur foreldra sem eru annt um börnin sín. Ég var hinsvegar að benda á, að ég skil vel að foreldrar verði skelkaðir og dreifi bréfinu áfram þegar að það sér nafn hans og stöðu á bréfinu. Hann hefði kannski átt að láta þennan vin sinn vita að hann mætti ekki áframsenda póstinn, svona þar sem að þetta var einkapóstur og allt það.
Sporðdrekinn, 24.10.2008 kl. 22:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.