Brosi í gegnum tárin

Ó VÁ! Hvað það er gott að lesa góðar fréttir svona einu sinni. Ekki að það sé neitt gott við að húsið hafi brunnið, nei als ekki. En það er yndislegt að sjá tryggðina í hundinum. Þrátt fyrir að hafa orðið fyrir reykeitrun sést í enda myndbrotsins þar sem að hann er í óðaönn að þrífa einn kettlinginn. Bara fallegt og bara gott. Bara tár og bros.


mbl.is Gætti nýfæddra kettlinga uns hjálpin barst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 26.10.2008 kl. 21:47

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 26.10.2008 kl. 21:49

3 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Ég er einmitt nýfluttur í sveitina, og þar vorum við að bjarga 3 vikna gömlum kettlingum sem læðan hafnaði, tíkin hún Ella sem er af labradorkyni, breyttist samstundis í afar ábyrgðarfulla móður sem fylgist með þeim og þvær, og þrífur upp eftir þá og heldur þeim saman í hóp. Hún t.d. var ekki sátt við að þeir væru á teppi á gólfinu, svo hún bar þá einn og einn uppí stól sem er með hrútsgæru á, sjálfan húsbóndastólinn.

Dásamlegt að sjá svona, við gætum lært ýmislegt af dýrunum ef við værum ekki svona góð með okkur.

Haraldur Davíðsson, 27.10.2008 kl. 00:40

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Ó Haraldur, Takk fyrir þessa yndislegu sögu! Nú fæ ég aftur tár í augu og bros á vör

Það er sko rétt hjá þér, við getur lært fullt af þessum elskum.

Áttu myndir til að sýna okkur? Það væri voða gaman að fá að sjá

Sporðdrekinn, 27.10.2008 kl. 01:30

5 Smámynd: Skattborgari

Mörg dýr eru góð og þau bjarga mjög oft eigendum sínum. Það er fátt betra en góður hundur.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 27.10.2008 kl. 01:50

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Mig langar svo til að geta gefið ungunum mínum hund, en ég get það ekki, ekki núna, kannski einn daginn.

Við vorum að passa hund í sumar, um leið og hundurinn hafði tekið eitt skref (ég er ekki að ýkja með skrefa fjöldann) þá segir yngsti unginn: "Það er svo gott að hafa hund á heimilinu"

Ég bráðnaði

Sporðdrekinn, 27.10.2008 kl. 01:54

7 Smámynd: Skattborgari

Ég er persónulega hirfnari af fuglum og langar í fálka eða örn næst. Það þarf minna að hafa fyrir þeim og svo er hægt að vera með fugla í blokk.

Kveðja hinn ljóti.

Skattborgari, 27.10.2008 kl. 01:57

8 Smámynd: Sporðdrekinn

Þú ferð ekki að vera með fálka eða örn í blokk! Ertu með fugla núna?

Ég átti svona litla páfagauka þegar að ég var stelpa, ég er ekkert allt of hrifin af þeim, ég vill kelirófur

Sporðdrekinn, 27.10.2008 kl. 02:21

9 Smámynd: Sporðdrekinn

Ekki skrifa svona neikvæð orð um þig Skatti

Sporðdrekinn, 27.10.2008 kl. 02:22

10 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

já mér fannst þetta voðarlega sætt sendi ykkur öllum knús

persónulega er ég hrifnust af Hrafninum og finnst hann lang fallegasti fuglinn skýrði son minn Blæng sem er gamalt Hrafns heiti, þegar ég var lítil og pabbi spurði mig hvað segir bíbí þá krunkaði ég þetta þykir fjölskyldunni voða fyndið en mér finnst fuglar vera þess eðlis að þeir eigi að fá að njóta vængjanna sinna en annars værum við Blængur til í að hafa Hrafninn. 

Það er ágætt að búa í blogg því þá veit maður að maður er hyski ég er hyski hehe 

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 27.10.2008 kl. 13:03

11 Smámynd: Sporðdrekinn

Knús Emma mín

Já ég er mjög hrifin af Hrafninum. Þegar að ég var í sveitinni fylgdist ég með honum svífa um loftin blá og ímyndaði mér fullt af þjófa sögum, hreiður full af gulli og gersemum.

Það er ekkert að því að búa í blokk, ég er hyski hvort sem að ég bý í blokk, raðhúsi eða húsi. Ég er viss um að ég verð ennþá hyski þegar að ég flyt í höllina

Sporðdrekinn, 27.10.2008 kl. 14:31

12 Smámynd: Skattborgari

Ég á eingan fugl núna en hef átt gára og Dísarpáfagauka og þeir eru frábærir greyin.  Hef hann bara í stofunu eða læt hann hafa sér herbergi enda veitir ekki af því.

maður á alltaf að segja sannleikan um sjálfan sig.

Kveðja Skattborgari hinn ljóti.

Skattborgari, 27.10.2008 kl. 19:26

13 Smámynd: Sporðdrekinn

Gátu þeir talað? Mér finnst það svolítið krúttaralegt

Það er mikið rétt Skatti minn, en það er eitt að segja sannleikann og annað að kvitta með honum. Annars er ég viss um að þú sért myndar maður og blíðari en þú lætur oft í ljós.

Sporðdrekinn, 27.10.2008 kl. 19:51

14 Smámynd: Skattborgari

Nei en einn dísarpáfagaukirnn blístraði alltaf og tók á móti mér þegar ég kom heim og ef ég var að borða popp þá flaug hann alltaf ofan í poppskálina og ég þurfti alltaf að reka hann á brúnina.

Kveðja Skattborgari. Ég er mun blíðari en ég lít út fyrir að vera.

Skattborgari, 27.10.2008 kl. 19:55

15 Smámynd: Sporðdrekinn

hahaha en sætt

Sporðdrekinn, 28.10.2008 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband