Talandi um fordóma!

Ég hélt að þetta væri grínfrétt en svo er víst ekki.

Fordómar koma í öllum stærðum og gerðum en "Halló". Það er alveg óhætt að segja í þessu tilfelli að sá sem lendir í eineltinu hafi ekki gert neitt af sér annað en líta öðruvísi út. Hann heitir það sama, bragðast eins en samt fékk hann stimpil á sig "ekki nægilega góður".

Er þetta ekki það sama með fólkið? Það eru ekki allir eins í útliti, hæð, breidd, lit, áferð. Það tala ekki allir sama tungumálið eða trúa á sama Guð og sumir trúa ekki á neinn Guð. Það búa ekki allir í sama landi, við sömu aðstæður.

Svo hvað þýðir það? Erum við ekki öll mannfólk?

Jú við erum öll mannfólk! Við höfum öll okkar tilfinningar, við elskum, syrgjum, þráum, gleðjumst, við finnum til sársauka. Við erum öll mannleg!

Sum okkar eru ekki góðar manneskjur og við vildum helst vilja losna við svoleiðis. En það hefur ekkert með hæð, breidd, lit, áferð, tungumál eða trúa að gera. Það er alltaf rotið epli innan um þau fersku og við verðum bara að takast á við það.

Svo að ég fagna þessari ákvörðun Evrópusambandsins, nú er pínulítið minna um fordóma í heiminum.

Ég verð að lýsa "gleði" minni yfir því að svona mikilvæg mál séu tekin fyrir hjá Evrópusambandinu. Það styrkir bara skoðun mína á því að við ættum að drífa okkur í þetta samband svo að við getum orðið eins og allir hinir ávextirnir. Já eða ekki....


mbl.is Aflétta banni við bognum gúrkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

HAHAHAHAHAHA

Ómar Ingi, 15.11.2008 kl. 08:42

2 Smámynd: www.zordis.com

Bognar gúrkur eru örugglega gómsaetar í beygjunum ... Alltaf zarf ad vera flokkun á öllu.

Ég hélt ad faerslan fjalladi um allt annad en graenmeti, hahhahahha ... Knús og yndi í daginn zinn!

www.zordis.com, 15.11.2008 kl. 11:18

3 Smámynd: Skattborgari

Þetta er fáanlegt. Það sem er helsta vandamál ESB er að margir sem eru í stjórnkerfinu vilja leysa allt með reglugerðum en gera sér ekki grein fyrir því að þær valda kostnaði og vandræðum fyrir mörg fyrirtæki og einstaklinga.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 15.11.2008 kl. 14:21

4 Smámynd: Haraldur Davíðsson

hehehe....skoðaðu mister cook making babies, á youtube.....hann mismunar grænmeti eftir útliti......hilarious.

Haraldur Davíðsson, 15.11.2008 kl. 20:37

5 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Mér finnst þetta bara skemmtilegt...hehehe..........Hafðu það gott vinan og takk fyrir öll kvittin..

Agnes Ólöf Thorarensen, 16.11.2008 kl. 18:09

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Takk fyrir innlitin gullin mín!

Ég fann þetta ekki Halli.

Sporðdrekinn, 17.11.2008 kl. 03:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband