Vöðvarnir hnyklast en heilinn er dofinn

Ég bíð eftir að vorið komi inn í hjartað mitt og huga, thví thá hlýtur mér að fara að líða betur!

Sólin skín úti, blómin á trjánum blómstra, páskaliljur blómstra í görðum, Ungarnir eru heilbrigðir, ég er kominn með miða til að fara í heimsókn heim í sumar, thad gengur vel í vinnunni, thad gengur vel hjá okkur Ljóninu en samt er enn myrkur í sálu minni. Af hverju er thad svo? Ég skil thetta ekki.

Ég vill losna við thungann og verða ég aftur. Sá Sporðdreki sem alltaf var hress með hreint heimili. 

Hefur thunglyndid undanfarin ár gert mig lata, vanthakláta og bitra? Ég spyr mig en fœ engin svör.

Ég og Ljónið áttum yndislega stund saman um helgina. Við fórum út að borda fengum okkur í glas, hlógum mikið og áttum yndislegt kvöld og nótt samann. Ungarnir sváfu hjá ættingja svo að við Ljónið notuðum tœkifœrið til að geta sofið í faðmi hvors annars. 

Thetta var yndislegt en samt er ég hálf tóm, af hverju?

Ég er reið og svekkt út í sjálfa mig, finnst ég vera vanthakklát.

Sjálfsagt tharf ég að gefa mér tíma, tíma til að verða heil aftur. En ég vill verða hamingjusöm NÚNA!

Hér er annað til að vera thakklát fyrir, ég er komin í thad gott form að ókunnug kona spurði mig í rœktinni um daginn hvort ad ég vœri "body builder". Ég er nú ekki jafn "stór" og konur sem eru body builder's og vill ég ekki verða thad en thetta var samt sagt sem hrós og tók ég thví thannig. 

Ég býst við að ég verði bara að setja hausinn niður og taka húsið í gegn, kannski verður hreint í sálunni ef að heimilið er eins og ég vill hafa thad.

Ég verð að hrista af mér slenið og fara að lifa lífinu lifandi, ég veit bara ekki hvar ég á að byrja.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Byrjaðu úti í garði....útivist getur gert kraftaverk á sálartetrinu.....mér finnst gott að dunda ein úti ef ég er eitthvað boginn...

Hólmdís Hjartardóttir, 31.3.2009 kl. 13:38

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

En ég þekki þessa fjandans líðan.....og maður ræður bara ekki alltaf við sjálfan sig

Hólmdís Hjartardóttir, 31.3.2009 kl. 13:39

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Thetta er sko alveg rétt hjá thér, ég œtti ad koma mér út í gard. Thar er stundum eins og ad vinna úti hreinsi mann ad innan.

Nei, thad er rétt, thar er eitt ad vita hvad best er ad gera og annad ad gera thad.

Knús og thakkir fyrir innlit og gód ord

Sporðdrekinn, 31.3.2009 kl. 13:49

4 Smámynd: Ein-stök

Elsku krúttið. Stundum er bara eins og hjartað þurfi tíma til að ná sér .. gleðin kemur ekki alltaf þó manni finnist maður hafa nóg til að gleðjast yfir. Gefðu þessu bara tíma sæta mín. Ég upplifði svona tíma eftir langt erfiðleikatímabil. Hláturinn var aldrei innilegur, brosið náði ekki til augnanna og mér fannst ég eiginlega alltaf vera að þykjast vera glöð.. eða eins og þú lýsir að gleðin væri aldrei einlæg og sönn. Þetta kemur :D Tek alveg undir með Hólmdísi í sambandi við garðvinnuna. Öll útivera gerir manni alltaf gott og vinna í garðinum er góð heilun :) Gangi þér vel mín kæra.

Knús og kreist

Ein-stök, 1.4.2009 kl. 21:38

5 Smámynd: Hannes

Ég held að þú þurfir að fara á þunglyndislyf gamla norn og kannski leggjast inn á geðdeild.

Þetta ætti að lagast hjá þér gamla.

Hannes, 1.4.2009 kl. 23:36

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Já veistu thetta er örugglega rétt hjá thér Einstök, hjartad tharf örugglega bara smá tíma til ad ná sér, sjá ad thad hrinji ekki allt strax aftur.

Knús

Já var thad ekki Hannes, ég lœt bara deyfa mig og loka inni :-P

Já vonandi sem fyrst.

Sporðdrekinn, 2.4.2009 kl. 02:09

7 Smámynd: Hannes

Ég held að þú Þurfir bara á viðtalsmeðferð að halda gamla nema þú viljir fara inn á geðspítala til að losna við manninn og krakkana.

Hannes, 2.4.2009 kl. 02:21

8 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég vœri nú alveg til í smá tíma alveg alein :o)

Thad er alveg rétt hjá thér ég œtti ad tala vid einhvern.

Sporðdrekinn, 2.4.2009 kl. 02:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband