Ég hitti einn svona í morgunn!

Ég var í ræktinni og þar reyni ég eftir bestu getu að hunsa annað fólk. Ég fer ekki þangað til þess að eignast vini eða kunningja heldur til að taka á, stynja og svitna. Vá þetta hljómar bara eins og að ég vari í ræktina til að stunda "one morningstand", en auðvitað er það ekki málið.

En allavega ég er í miðjum magaæfingum, svoleiðis að kúka á mig ég tók svo á, kallar ekki gamall gaur á mig. Ég er sko oftast með Ipodið  á mér en gleymdi því í morgun, svo að ég heyrði í kallinum og gat ekki verið dónaleg og ekki svarað.

Hann byrjar: "Finnst þér ekki magaæfingar leiðinlegar?"

"Neiii" segi ég brosandi og reyni að labba í burtu, en nei, nei það var ekki að gera sig.

"Sko ef að þú gerðir þær eins og ég þá myndir þú hata þær líka."

"Já, ok....". Í alvöru leifðu mér bara að halda áfram. Kallin hélt mér þarna fanga í c. tvær mínútur og sagði mér hvernig magaæfingar hann gerir. Eins og mér sé ekki sama, fyrir utan það þá er hann með þungan hreim og ég með mína ÍslENSKU skil oft ekki fólk voða vel ef að það er með þungan hreim og talar óskírt í þokkabót. EN alla vega þessi gaur sagði við mig sex sinnum á meðan að hann var að tala við mig "Ég vill ekki monta mig" svo hélt hann áfram. Á endanum þegar að ég var farinn ósköp pent að bakka burtu. Grípur hann í höndina á mér og segir "komdu með puttann á þér". Komi ég með puttann á mér!? Kom þú með höndina á mér! (ég sagði það nú ekki upphátt). Byrjar kallinn ekki að nudda puttanum á mér við efstu magavöðvana á sér.

Ok, nú var ég búin að fá nóg og dró höndina í burtu. Og enn einu sinni segir kallinn "Ég vill ekki monta mig.... en ég er 65 ára......"

"Montaðu þig bara" Sagði ég brosandi um leið og ég labbaði í burtu.

En mig langaði til að segja "Þú lyktar eins og 65 ára gamall maður sem ert búin að vera að vinna upp svita í ræktinni. Þú lítur út fyrir að vera 65 ára gamall núna en þú hefur örugglega verið mjög myndarlegur þegar að þú varst svona 20 - 25 árum yngri. Frábært að þú sért með magavöðva en ég mun aldrei sjá þá!"  

 

 

 


mbl.is Karlar ofmeta persónutöfra sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Mér finnst ég kannast við þennan mann.......  nema þeir séu fleiri svona.

Marta Gunnarsdóttir, 20.9.2008 kl. 00:42

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Þeir eru örugglega margir svona Marta, þessi býr í bandaríkjunum, en "þinn"?

Sporðdrekinn, 20.9.2008 kl. 01:30

3 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Tæknilega fullkominn þessi

Markús frá Djúpalæk, 20.9.2008 kl. 19:29

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Já finnst þér ekki Markús 

Ég hef stundum verið að spá í hvað það hlýtur að vera erfitt að vera með eldri líkama, segjum 65 ára en 35 ára huga. Ég tala nú ekki um ef að þú hefur verið algert hunk á yngri árum.

Sporðdrekinn, 20.9.2008 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband