Færsluflokkur: Bloggar

Ég hitti einn svona í morgunn!

Ég var í ræktinni og þar reyni ég eftir bestu getu að hunsa annað fólk. Ég fer ekki þangað til þess að eignast vini eða kunningja heldur til að taka á, stynja og svitna. Vá þetta hljómar bara eins og að ég vari í ræktina til að stunda "one morningstand", en auðvitað er það ekki málið.

En allavega ég er í miðjum magaæfingum, svoleiðis að kúka á mig ég tók svo á, kallar ekki gamall gaur á mig. Ég er sko oftast með Ipodið  á mér en gleymdi því í morgun, svo að ég heyrði í kallinum og gat ekki verið dónaleg og ekki svarað.

Hann byrjar: "Finnst þér ekki magaæfingar leiðinlegar?"

"Neiii" segi ég brosandi og reyni að labba í burtu, en nei, nei það var ekki að gera sig.

"Sko ef að þú gerðir þær eins og ég þá myndir þú hata þær líka."

"Já, ok....". Í alvöru leifðu mér bara að halda áfram. Kallin hélt mér þarna fanga í c. tvær mínútur og sagði mér hvernig magaæfingar hann gerir. Eins og mér sé ekki sama, fyrir utan það þá er hann með þungan hreim og ég með mína ÍslENSKU skil oft ekki fólk voða vel ef að það er með þungan hreim og talar óskírt í þokkabót. EN alla vega þessi gaur sagði við mig sex sinnum á meðan að hann var að tala við mig "Ég vill ekki monta mig" svo hélt hann áfram. Á endanum þegar að ég var farinn ósköp pent að bakka burtu. Grípur hann í höndina á mér og segir "komdu með puttann á þér". Komi ég með puttann á mér!? Kom þú með höndina á mér! (ég sagði það nú ekki upphátt). Byrjar kallinn ekki að nudda puttanum á mér við efstu magavöðvana á sér.

Ok, nú var ég búin að fá nóg og dró höndina í burtu. Og enn einu sinni segir kallinn "Ég vill ekki monta mig.... en ég er 65 ára......"

"Montaðu þig bara" Sagði ég brosandi um leið og ég labbaði í burtu.

En mig langaði til að segja "Þú lyktar eins og 65 ára gamall maður sem ert búin að vera að vinna upp svita í ræktinni. Þú lítur út fyrir að vera 65 ára gamall núna en þú hefur örugglega verið mjög myndarlegur þegar að þú varst svona 20 - 25 árum yngri. Frábært að þú sért með magavöðva en ég mun aldrei sjá þá!"  

 

 

 


mbl.is Karlar ofmeta persónutöfra sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmm hvað er til ráða Hr. Bush?

Hvernig væri að byrja á að minka flæði peninga úr landinu til styrktar öðrum löndum (ekki að það sé ekki fallleg hugsun)  Já og svo hitt sem er náttúrulega bara langdregin vitleysa og ég bara skil ekki hvernig mér dettur í hug að skrifa þetta.  Minka það fjármagn sem sett er í hernað!  Og byggja upp landið í staðin.

 


mbl.is Bush fundar með ráðgjöfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

YEAS!!!!!

You go Obama!

You go Obama!

Obama , bama.

Ég ætla bara rétt að vona að hann rúlli þessu upp!


mbl.is Obama endurheimtir forskotið á McCain
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrafangelsi

Er ekki allt í lagi með fólk?

Svona svo að ég svari sjálfir mér: Nei, það er ekki allt í lagi með fólk!

Hvernig í ósköpunum getur fólki dottið í hug að setja dýr í fangelsi? Það er eins gott að þetta verði ekki tekið upp á Íslandi, ég veit ekki betur en að kindur, kýr og hestar borði gras nágrannans.

Verður kannski komið upp dýrafangelsi?

Mikið ofboðslega getur fólk verið ruglað!


mbl.is Asni í fangelsi fyrir að stela korni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér finnst bara rétt að halda áfram þessu blondínu tali ;-P

Tveir starfsmenn spilavítis stóðu við spilaborð þegar ákaflega
Hugguleg ljóska kom að svífandi og kvaðst ætla að veðja 20.000 dollurum á
eitt númer í borðinu. 'Ég vona að ykkur sé sama' sagði ljóskan, 'en ég er
alltaf heppnari þegar ég er nakin' og þar með svipti hún sig klæðum,
studdi á spilahnapp og skrækti 'nú er lag, mig vantar ný föt!'
Síðan hoppaði hún hæð sína og hrópaði
'Yes, yes, ég VANN, ÉG VANN!', þreif fötin sín ásamt öllum peningunum sem
voru á borðinu og hvarf á braut.
Gjafararnir störðu undrandi hvor á annan, að endingu gat annar
þeirra stunið upp: 'Á hvaða tölu veðjaði hún?'
Hinn svaraði: 'Það veit ég ekki, varst þú ekki að fylgjast með því?'

LÆRDÓMUR: Ljóskur eru ekki allar heimskar, EN karlmenn eru og
verða KARLMENN!

 

E.S. Nei!..... Þetta var ekki ég Tounge En svona þegar að ég fer að spá í málið þá er þetta bara nokkuð góð hugmynd. Læt ykkur vita ef að hún virkar fyrir stutthærðar blondínur Whistling


Nú spyr sú ljóshærða:

Hvað fær Íslenska þjóðin út úr þessu?

Fylgja einhver fríðindi eða laun?

Er það bara jákvætt ef við fáum þetta af því að þá er "okkur" sýnt traust? Ekki það að við treystum okkar þingmönnum neitt rosalega vel núna.

Eða er þetta kannski bara kostnaður fyrir Íslensku þjóðina?

 


mbl.is 140 þjóðir hafa lýst yfir stuðningi við framboð Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Keyptu fimm ára telpu.....

 .....til þess að hópnauðga!

Ég var að skoða bloggið hennar Nönnu og þar talar hún um þessa grein sem að Óli Tynes skrifar.

Eftir lesturinn á greininni langaði mig til að gubba og ég bara græt. Fimm ára, fimm ára barn, hvernig er þetta hægt?!? Kvalirnar sem að barnið hefur fundið síðustu daga lífs síns hljóta að vera svo hrikalegar að við getum ekki einu sinni reynt að ímynda okkur þær.

Það er fátt saklausara en fimm ára gamalt barn. Fimm ára gamalt barn treystir á fullorðna til að sjá um sig, fæða sig og klæða. Svo koma Djöflar í mannsmynd og taka allt það saklausa í burtu á svona hrikalegan hátt.

Og það er ekki nóg með það, þessi Djöfull hefur eyðilagt mörg mannslíf með vonsku sinni.

 

Að vanda er þetta mjög góð færsla hjá henni Nönnu, þar bryddar hún upp á mörgu sem að við ættum að hugsa um.

 

 


Unginn sem passar mömmu sína

Um daginn var Mið-Unginn eitt hvað illaf fyrirkallaður þegar að það kom að kvöldmat. Hann hafði átt langan dag og var bæði þreyttur og svangur.

Ég man ekki hvað ég sagði eða hvað gerðist en hann svaraði mér með leiðinlegum tón. Tón sem að ég líð ekki hér á þessu heimili. Þá segir Elsti-Unginn:

"Þú talar ekki svona við mömmu!"

Svo setjumst við, við borðið til að snæða. Ég var með fjórar tegundir af grænmeti með kjötinu en Mið-Unginn tók bara eina tegund og ætlaði ekki að smakka hinar. Svo eins og ég geri alltaf þegar að ungarnirvilja ekki eitthvað sem að er í boði, þá setti ég eitt stk af hverju hinna þriggja grænmeti á diskinn hans og sagði honum að smakka, honum gæti þótt þau góð. Mið-unginn byrjaði að mótmæla og vera með einhverja stæla:

"Ég vill þetta ekki"

Áður en að ég gat opnað á mér munninn segir Elsti-Unginn:

"Hún mamma er búin að standa heillengi þarna inni í eldhúsi að elda þetta fyrir okkur og þú ætlar ekki einu sinni að smakka! Það er ekki rétt"

Án þess að segja nokkuð meira borðaði Mið-Unginn grænmetið sitt.

Það er alltaf gott að hafa einhvern á sinni hlið, en það er samt svolítið sæt/sárt að sjá hvað Elsti-Unginn hefur tekið á sig mikla ábyrgð undan farið.

Ég er rík kona InLove

 


Gluggar sálarinnar - Lambalæri - Ungar

Ég hef fundið fyrir auknu öryggi síðustu daga, það gerðust tveir atburðir sem án efa hjálpuðu til. Ég er líka búin að öskra í huganum á allar áttir og biðja um hjálp, leiðbeiningu um það hvernig ég á að taka á hlutunum.

"Augun eru gluggar sálarinnar", við þekkjum þetta öll en mér til mikillar furðu varð ég fyrir reynslu í gær sem að mig langar til að deila með ykkur:

Allt í einu um sex leitið fór ég að þrífa glugga og gardínur, ég er ekki búin með allt húsið enda óteljandi gluggar hér. En ég þreif og þreif og með hverjum glugganum leið mér betur. Það var eins og að ég væri að þrífa glugga sálar minnar og ég var farin að sjá inn.

Ég tók stóra ákvörðun seinna um kvöldið, setti nokkra skilmála. Svo grét ég af hræðslu og söknuði. Kannski með því að taka í burtu það eina sem við áttum saman fyrir utan ungana, hafði ég brennt allar brýr að baki mér. Nú er bara að bíða og sjá.

 

Ég eldaði Íslenskt lambalæri í kvöld, namm namm namm. Þegar að ilmurinn færðist um húsið fóru ungarnir sem heima voru að ath hvaða góða lykt þetta væri. Elsti-Unginn spurði hvaða meðlæti væri og taldi það upp fyrir hann.

Sósa, hvernig sósa? Spurði hann, uppstúf?

Nei svona, sósa sósa.

Ömmu sósa?

Mmm.. já svona rjómasósa. Ég fékk smá hnút í magann, eins gott að klúðra ekki sósunni!

Namm hún er svo góð. Nú varð ég nerfus, ég verð að standa mig!

Maturinn var æði og sósan heppnaðist sem betur fer vel. Guð hvað ég elska Íslenskt lambakjöt!

Við matarborðið sagði Yngsti-Unginn eitthvað og ég svaraði eins og sannri móður ber að ansa ".... rassinn út í vindinn"

Ert þú með rassinn út í vindinn? spurði Yngsti-Unginn

Nei þú!

Gott af því að þinn er hræðilegur. Sagði þetta litla gerpi glottandi.

Heyrðu vinur!... Ég er með fallegri rass en nokkur önnur kona í þessum heimi! Ég verð að viðurkenna að ég hafði mjög gaman af þessu og hinir Ungarnir fylgdust vel með.

Nei!

Jú víst! Ég vissi hvar ég gæti fengið stuðning. Spurðu bara hann pabba þinn!! Sagði ég sigri hrósandi.

Mammm.... Sagði Elsti-Unginn hálf flissandi og með vantrú í röddinni, samt er hann nú nokkuð vanur mér.

Þetta er ekki sanngjarnt, hann er giftur þér. Sagði Mið-Unginn

Good one! Sagði þá litla skrípið glottandi. Og þar með var það búið. Ljónið hringdi svo í kvöld og sagði ég honum frá þessu.

Þú hefur allan minn stuðning í þessu máli, ég veit að þú ert með flottasta rass í heimi. Sagði Ljónið með mikilli sannfæringu og mýkt. Mér fannst það gott og það fékk mig til að brosa.

 

Það hljóp í mig púki þegar að ég var að koma tveimur yngri Ungunum í rúmið. Ég söng eins hátt og ég gat: Ég er besta mamma í heimi tra la la la la, ég er besta mamma í heimi.....

Yngsti-Unginn stoppar mig: Nei það ert þú ekki!

Ha? Af hverju segir þú það? Hann horfði lengi á mig með rannsakandi augum án þess að segja neitt, svo kom.

Sagðir þú versta mamma í heimi?

Nei BESTA!

Já ok, það er rétt

Svo tóku þeir undir sönginn með mér:

Ég er besta mamma í heimi..... Já það ert þú.

Ég er besta mamma í heimi.... Já það ert þú.

Við fórum nokkra svona hringi og í hvert skipti sem að þeir svöruðu mér með sínum blíðu barna röddum, stækkaði hjartað mitt InLove


Hvað með nágrannan?

Hefur fólkið í hverfinu verið spurt hvað það vill?

Þarf kannski ekki samþykki nágrannana?

Ég veit ekki hvað mér finnst um svona staði. Sjálf hef ég engan áhuga á að horfa á naktar konur eða karla "dansa" og þó er ég mikið fyrir dans. Ég yrði líka alveg brjáluð ef að maðurinn minn gerði sig heimakæran á svona stað.

Ég get kannski skilið einhleypt fólk sem fer á svona staði, en ekki fólk í samböndum.

 


mbl.is Goldfinger má bjóða upp á nektardans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband