Færsluflokkur: Bloggar
27.9.2008 | 17:30
Minn maður
Ég sá nú bara mjög lítinn hluta af þessari kappræðu en mér fannst minn maður auðvitað koma vel út.
Annars er mitt traust til þeirra sem stjórna hvort sem að það er í USA, á Íslandi eða annarstaðar, ekki mikið. Mér finnst eins og að það sem skiptir máli ekki skipta máli lengur, það er fólkið sjálf.
![]() |
Obama kom betur út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.9.2008 | 02:46
Já, hvernig dettur hommunum þetta í hug?!?
Ég meina að velja sér dag til hátíðar í Ramadan mánuðinum! Þvílík og önnur eins vanvirðing þetta er fyrir múslimi!
OK núna gubba ég
Þetta er nú meiri &%$##&%$&$ vitleysan í þessu liði, þá er ég auðvitað ekki að tala um þá samkynhneigðu. Að fólk skuli halda að það geti ætlast til að annað fólk sem ekki er í þeirra trú lyfi sýnu lífi eftir þeirra trú.
Maður, kona, hommi, lesbía, svartur, hvítur, kristinn, múslimi, gyðingur og svo framvegis.
Það eru allir mannlegir, við erum öll hold og andi. Það skiptir nákvæmlega engu máli með allt hitt.
Fólk er fólk en því miður þá er fólk líka fífl
![]() |
Samkynhneigð mótmælt í Bosníu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
24.9.2008 | 04:45
...étið eitt stk harðann fituklump á dag
Ég var að lesa færslu hjá henni Ólínu Þorvarðardóttir "Við erum of feit!" og hún kveikti í mér. Ég ætlaði að setja inn smá athugasemd en endaði víst óvar með að setja inn langa athugasemd, ég vona að Ólína fyrirgefi mér
Mig langar til að deila þessu með ykkur:
Málið er að það er ekki fitan sem að er að drepa fólk úr fitu, heldur er það sykurinn. En þetta vilja sumir ekki sjá. Það er til "gervi" sykur sem heitir Splenda og er unninn úr sykri, ég held að það væri ráð fyrir jógúrt framleiðendur (og fleiri) að fara að nota það í staðin fyrir allan sykurinn sem núna er dælt í jógúrtin og annan mat.
Okkur hefur líka verið kennt síðustu 30 ár að við eigum að borða mikið af korni. Matar þríhyrningurinn sem að okkur var/er kennt í skóla segir að korn eigi að vera aðal uppistaða máltíðarinnar. Þetta er náttúrulega bara bull, prótein ætti að vera aðal uppistaðan í máltíðum okkar. Ég er auðvitað ekki að segja að við eigum ekki að borða neitt korn.
Ég held að á borðum margra heimila sé pasta með smá próteini / hrísgrjón með smá próteini. Málið er að það ætti að vera Prótein m/ grænmeti, prótein m/smá pasta, prótein m/smá hrísgrjónum.
Sem sagt prótein, prótein, prótein!
Jóna segir: það var étin hamsatólg, fitan af kjötinu var sleikt utan af beinunum, skyr með rjóma og allt steikt upp úr smjörlíki. Munurinn var sá að fólk vann ekki kyrrsetustörf og börn voru á iði allan daginn. Og þetta er mikið rétt hjá henni.
En munurinn er ekki bara sá að fólk vann ekki kyrrsetustörf og að börnin hreyfðu sig meira, þó að þetta sé stór þáttur.
Þá var borðuð fita og við þurfum á fitu að halda. Það var borðað mikið af fisk og í fisk finnst eins sú besta fita sem við fáum. Ég er ekki að mæla með að þið étið eitt stk harðann fituklump á dag. Þá var sykur ekki heldur étinn í alla mata og börn fengu ekki nammi á hverjum degi. Ég veit að ekki allir krakkar fá nammi poka á hverjum degi en morgunkornin, jógúrtin, djúsið og kexið eru engu betri.
Svo er það nestið sem börnin fara með í skólann, brauð, brauð og brauð. Já og kókómjólk, eða dýsætur vatnsdrykkur, sumir kalla það djús.
Mér þykir sérstaklega slæmt að sjá jógúrt eða bara hvaða mat sem er, sem eru "fitu minni" en stút full af sykri.
Það er ekki fitan sem er að stífla allar æðar.
Það er ekki fitan sem veldur sykursýki 2.
Það er sykurinn!
Þessi kynslóð sem er að vaxa úr grasi núna gæti orðið fyrsta kynslóðin sem lifir styttra lífi en foreldrarnir.... Og það vegna heilsukvilla sem orsakast af offitu!
Allir matvælaframleiðendur ættu að leggja metnað sinn í að búa til hollan mat fyrir börnin okkar og okkur, í stað þess að ath hversu mikinn sykur er hægt að troða í eitt cheerios.
Pössum börnin okkar, pössum okkur, minkum sykurinn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
24.9.2008 | 03:42
Mér finnst þetta ekki rétt
Ég er ekki að segja að það sé rétt að bíta börnin sín. Það er gaman að naga tær og svona en ekki fast.
En ég get ekki ímyndað mér að það sé betra fyrir börnin að vera á fósturheimili í fimm mánuði á meðan að mamman er í fangelsi.
Væri ekki réttar að senda móðurina á uppeldis námskæð eða eitthvað slíkt.
![]() |
Móðir dæmd fyrir að bíta son sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.9.2008 | 20:19
Miðgarði!!!
Alveg hrikalega fer þetta í taugarnar á mér, alltaf þarf að íslenska allt. Þessi garður heitir ekki "Miðgarður" hann heitir "Central Park"!
Fólk var alltaf að reyna að íslenska nafnið á Ljóninu, garggg. "Hvernig hefur nafnið-hans-íslenskað það" það fékk varið "ég veit það ekki, þekki engan með því nafni".
Svo að ég sé ekki misskilin þá finnst mér frábært að Íslenskan hafi haldist eins vel og hún hefur gert. Ég styð það heilshugar að fundin séu ný orð fyrir nýja hluti. En það á ekki við um hér.
Annars líst mér ekkert á þessa hugmynd hans David´s Blaine, Ég sé fyrir mér þrútið andlit, fullt af blóði. Ég vona að hann komist ok út úr þessu.
![]() |
Blaine hangir í Miðgarði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
21.9.2008 | 04:18
Var ekki einhver að biðja um myndir?!?! ;-P
Jæja ég held að ég geti gert þetta án þess að uppljóstra hver ég er Það hjálpar líka til að #%&"!)/&$%# myndavélin virkar ekki rétt. Það þarf sko að halla henni á réttan hátt og þá er samt bara svona happa og glappa hvort að hún taki mynd. En hér kemur þetta, verið góð
Svona er svo hnakkinn, ég veit að flassið er ekki alveg að hjálpa til en ég gafst upp á að reyna að blekkja myndavélina til að taka góða mynd.
Koll af kolli
Þá er það hnakkinn enn einu sinni
Ég vona að þið hafið gaman af þessum myndum en fattið samt ekki hver ég er
Hvað segir þú um handverkið Haraldur, ræður þú mig í vinnu ef að þú opnar einhvertíma stofu
Bloggar | Breytt 24.9.2008 kl. 03:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
20.9.2008 | 02:51
Mamma hefur nú samt sagt að ég megi passa mig!
Sporðdreki: Heimurinn á svar við skörpum húmor þínum. Útpældur húmor bætir bæði einkalífið og vinnuna. Ný sambönd hefjast á því að þú kemur fólki til að hlæja.
Ég er alltaf að lenda í því að fólk nær mér ekki, sérstaklega hér í þessu landi. Það tók tengdó nokkur ár að ná mér alveg, góðir hlutir gerast hægt Núna annað hvort kurrar í þeim gömlu, það er þegar að ég er pínu klúr. Eða þau hlægja dátt og taka undir grínið.
Ég elska fólk sem getur gert grín að sjálfum sér.
En ég hef einmitt tekið eftir því að fólk sem á erfitt með að gera grín að sjálfum sér, á erfiðara með að ná mér og mínum húmor. I dont know why
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.9.2008 | 21:10
Gæsahúð
Frábært! Vel gert bæði hjá Björk og Sigur Rós. Til hamingju með þetta öllsömul!
Á meðan að ég horfði á myndband Sigur Rósar við lagið Svefn-g-Englar þá fann ég fyrir því. Mér fannst næstum því að ég væri þarna að dansa fallegan engladans með þessu yndislega fólki. Sakleysið og fegurðin yfirtók mig.
Ég held að Sigur Rós hafi gert frábæran hlut með að tengja músík og myndband.
Ég klappa fyrir ykkur!
![]() |
Björk og Sigur Rós með bestu myndböndin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2008 | 20:41
"venjulega Íslendinga"
Eru þeir þá að eltast við óvenjulega Íslendinga og útlendinga?
Eru hærri sektir fyrir það fólk?
Ef svo er þá skil ég alveg að þeir hafi snúið sér að þeim, setur meiri pening í ríkiskassann og svona.
![]() |
Hætt að elta venjulega Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.9.2008 | 18:37
Ég er hætt!
Ég varð skíthrædd!!!
Frá og með morgundeginum er ég hætt að lesa!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)